Tónlistarvefur um tónlist og tónlistarsögu á Íslandi. Á þessum vef er að finna alla íslenska vefi sem tengjast tónlist - og meira til.
Tónmenntarvefurinn er kennsluvefur um tónlist. Tónlistarskólinn okkar er aðili að honum og geta allir nemendur hans fengið aðgang að honum í gegnum kennara sinn eða skrifstofu skólans.
Á þessum vef eru síður um tónskáld, tónfræði, tónlistarsögu, hljóðfæri, sönglög og margt fleira. Auk þess er hægt að fara í alls konar tónlistarleiki, bæði einn og í hóp (keppni).