Fara í efni

Bæjarstjórn

408. fundur 24. febrúar 2022 kl. 17:00 - 17:53 í bæjarstjórnarsal
Nefndarmenn
  • Gunnlaugur Smárason aðalmaður
  • Steinunn Ingibjörg Magnúsdóttir aðalmaður
  • Haukur Garðarsson aðalmaður
  • Ásmundur Sigurjón Guðmundsson aðalmaður
  • Hildur Lára Ævarsdóttir varamaður
  • Guðmundur Kolbeinn Björnsson varamaður
  • Anna Margrét Pálsdótir varamaður
  • Theódóra Matthíasdóttir varamaður
  • Árni Ásgeirsson varamaður
  • Ragnar Már Ragnarsson varamaður
  • Erla Friðriksdóttir aðalmaður
  • Jakob Björgvin Jakobsson bæjarstjóri
  • Gunnar Ásgeirsson varamaður
  • Hrafnhildur Hallvarðsdóttir (HH) forseti
  • Hrafnhildur Hallvarðsdóttir
  • Lárus Ástmar Hannesson aðalmaður
  • Lárus Ástmar Hannesson (LÁH)
  • Haukur Garðarsson (HG) aðalmaður
  • Gísli Pálsson varaformaður
Starfsmenn
  • Þór Örn Jónsson fundarritari
  • Jón Sindri Emilsson
Fundargerð ritaði: Jakob Björgvin Jakobsson bæjarstjóri
Dagskrá
Hrafnhildur Hallvarðsdóttir, forseti bæjarstjórnar, setti fund og stjórnaði.

Forseti lagði til að samþykkt verði afbrigði frá dagskrá og að bætt verði inn dagskrárlið 29. Breiðafjarðarferjan Baldur - tillaga til þingsályktunar um kaup á nýrri Breiðafjarðarferju (málsnr. 2011013).

Samþykkt með öllum samhljóða atkvæðum.

Forseti leitaði eftir samþykkis bæjarfulltrúa við því að 26. mál á dagskrá fundarins (Aðalgata 3 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi - málsnr. 2202001) yrði tekið fyrir fyrst á fundinum.

Samþykkt með öllum samhljóða atkvæðum.

1.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 19

Málsnúmer 2202004FVakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð 19. afgreiðslufundar byggingafulltrúa
Fundargerð lögð fram til kynningar.

2.Atvinnu- og nýsköpunarnefnd - 10

Málsnúmer 2202002FVakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð 10. fundar atvinnu- og nýsköpunarnefndar.
Fundargerð lögð fram til kynningar.

3.Skóla- og fræðslunefnd - 190

Málsnúmer 2202001FVakta málsnúmer

Lögð fram 190. fundargerð skóla- og fræðslunefndar.
Fundargerð lögð fram til kynningar.

4.Skipulags- og bygginganefnd - 257

Málsnúmer 2202003FVakta málsnúmer

Lögð fram 257. fundargerð skipulags- og bygginganefndar.
Fundargerð lögð fram til kynningar.

5.Bæjarráð - 636

Málsnúmer 2202005FVakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð 636. fundar bæjarráðs.
Fundargerð lögð fram til kynningar.

6.Ægisgata 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2006015Vakta málsnúmer

Lögð fram greinargerð Stykkishólmsbæjar vegna stefnu Rakelar Olsen og Agustson ehf. sem höfða mál fyrir Héraðsdómi Vesturlands vegna málefna Ægisgötu 1 þar sem aðallega eru gerðar dómkröfur á hendur stefnda, Guðbrandi Björgvinssyni, en til vara á hendur stefndu, Guðbrandi Björgvinssyni og Stykkishólmsbæ.
Framlagt til kynningar.

7.Skólaakstur við Fjölbrautaskóla Snæfellinga

Málsnúmer 2005082Vakta málsnúmer

Lagðir fram reikningar vegna skólaaksturs við Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Á 636. fundi bæjarráðs var málinu vísað til vinnu við viðauka 1 við fjárhagsáætlun 2022-2025.
Framlagt til kynningar.

8.Styrkir til félagasamtaka vegna fasteignagjalda 2022

Málsnúmer 2202007Vakta málsnúmer

Lagður fram listi yfir styrki til félagasamtaka vegna fasteignagjalda 2022.
Framlagt til kynningar.

9.Heilsuefling eldri borgara í Stykkishólmi

Málsnúmer 1907014Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar skýrsla um viðbót við starfsemi og þjónustu í félagsstarfi og heilsueflingu 60 ára og eldri í kjölfar COVID-19.

Stykkishólmsbær sótti um styrk til félagsmálaráðuneytisins vegna sérstakra viðbótarverkefna í félagsstarfi fullorðinna fyrir árið 2021, sökum COVID-19. Bærinn hlaut styrk að fjárhæð 304.300 kr. og er markmiðið að koma upplýsingum og aðstöðu fyrir á 9 stöðvum á heilsustíg við Grensás og Þröskulda. Hluti verkefnisins var að framleiða rafræn æfingamnydbönd sem nýttust vel þegar samkomutakmarkanir voru ríkjandi og nýtast áfram í þessu verkefni þar sem sett verða upp skilti á æfingastöðvunum með QR kóða sem vísar í myndböndin.
Framlagt til kynningar.

10.Aðalfundarboð 2022

Málsnúmer 2202016Vakta málsnúmer

Lagt fram fundarboð á aðalfund SSV sem fer fram miðvikudaginn 16. mars n.k. á Hótel Hamri í Borgarnesi.
Framlagt til kynningar.
Fylgiskjöl:

11.Samkomulag um uppbyggingu/breytingu hluta húsnæðis Sjúkrahúss HVE í Stykkishólmi fyrir hjúkrunarheimili

Málsnúmer 1805008Vakta málsnúmer

Lagt fram til undirritað samkomulag milli heilbrigðisráðuneytis og Stykkishólmsbæjar um flutning á þjónustu Dvalarheimilisins í Stykkishólmi til Heilbrigðisstofnunar Vesturlands.
Framlagt til kynningar.

12.Tillaga til þingsályktunar um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, 332. mál.

Málsnúmer 2202008Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sem sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, 332. mál.

Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 25. febrúar nk.
Framlagt til kynningar.

13.Rannsóknar-, vinnslu- og afurðamiðstöð þangs í Stykkishólmi

Málsnúmer 1810056Vakta málsnúmer

Á 10. fundi atvinnu- og nýsköpunarnefndar var gerð grein fyrir stöðu mála varðandi áform Acadian Seaplants um að reisa þörungavinnslu við Kallhamra. Fyrir liggja samningsdrög milli Stykkishólmsbæjar og Acadian um skipulagsvinnu og vilyrði fyrir lóð.

Atvinnu- og nýsköpunarnefnd fagnaði því að líkur á ákvörðun Acadian Seaplants um að reisa þörungavinnslu við Kallhamra séu meiri en áður. Nefndin hvatti bæjarstjórn til að flýta vinnu við skipulag á atvinnulóðum við Hamraenda og Kallhamra og kynna möguleika svæðisins fyrir fjárfestum.
Framlagt til kynningar.

14.Tillaga að breytingu á samþykkt um stjórn Stykkishólmsbæjar

Málsnúmer 2109019Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga til síðari umræðu að breytingu á samþykkt um stjórn Stykkishólmsbæjar vegna breytinga á samþykkt um stjórn Stykkishólmsbæjar sem snýr að umboði skipulagsfulltrúa til ákvarðanatöku, ásamt nýju erindisbréfi skipulagsnefndar, sem og heimild til að taka þátt með rafrænum hætti í fundum bæjarstjórnar og nefnda og ráða á vegum sveitarfélagsins, en sú heimild var ekki í fyrri tillögu.

Einnig er lagður fram tölvupóstur frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu þar sem kemur fram að sveitarfélögum beri að mæla fyrir um rétt sveitarstjórnarmanna til að taka þátt í fundum sveitarstjórna og í nefndum og ráðum á vegum sveitarfélagsins með rafrænum hætti í samþykktum um stjórn sveitarfélaga.

Bæjarráð samþykkti, á 631. fundi sínum, að vísa tillögunni til umsagnar í skipulags- og bygginganefnd. Skipulags- og byggingarnefnd gerði, á 255. fundi sínum, ekki athugasemdir við tillögu bæjarráðs að breytingu á samþykkt bæjarins um umboð skipulagsfulltrúa til ákvörðunartöku og nýtt erindisbréf sem breytir heiti nefndarinnar í skipulagsnefnd.

Bæjarráð samþykkti, á 635. fundi sínum, tillögu að breytingu á Samþykktum um stjórn Stykkishólmsbæjar varðandi fjarfundi og meðferð skipulagsmála og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tillöguna, að teknu tilliti til umræðna á fundinum.

Bæjarstjórn samþykkti á 407. fundi sínum að vísa tillögunni til síðari umræðu. Bæjarráð samþykkti, á 636. fundi sínum, fyrir sitt leyti tillögu að breytingu á samþykktum um stjórn Stykkishólmsbæjar og lagði til við bæjarstjórn að samþykkja þær.
Bæjarstjórn samþykkir framlagðar breytingar á samþykkt um stjórn Stykkishólmsbæjar.

Samþykktar breytingar á samþykkt um stjórn Stykkishólmsbæjar verða sendar til staðfestingu innviðaráðuneytisins, sbr. 1. mgr. 9. gr. sveitarstjórnarlaga, og þær birtar í framhaldinu í B-deild Stjórnartíðinda, sbr. 1. mgr. 3. gr. laga nr. 15/2005, um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað.

15.Sameiginleg svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs 2022-2033

Málsnúmer 2201013Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að nýrri svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs fyrir tímabilið 2022 -2033.

Óskað er eftir staðfestingu sveitarstjórnar á tillögunni fyrir 26. febrúar 2022.
Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar staðfestir tillöguna með þeim áherslum og fyrirvörum sem komu fram í umsögn Stykkishólmsbæjar.

16.Ósk um aukið stöðuhlutfall við Grunnskólann í Stykkishólmi

Málsnúmer 2201022Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni skólastjóra Grunnskólans í Stykkishólmi um aukið stöðuhlutfall stuðningsfulltrúa við skólann.

Bæjarráð samþykkti, á 636. fundi sínum, að leitað yrði frekari upplýsinga varðandi erindið og að upplýsingar yrðu sendar á bæjarfulltrúa fyrir næsta bæjarstjórnarfund.
Bæjarstjórn samþykkir beiðni skólastjóra Grunnskólans í Stykkishólmi um aukið stöðuhlutfall við Grunnskólann í Stykkishólmi í samræmi við erindið út þetta skólaár.

17.Húsnæðisáætlun 2022

Málsnúmer 2202005Vakta málsnúmer

Lögð fram rafræn húsnæðisáætlun Stykkishólmsbæjar 2022 er byggð á samþykktri húsnæðisáætlun Stykkishólmsbæjar 2020-2028, sem samþykkt var á 391. fundi bæjarstjórnar.

Bæjarráð samþykkri, á 636. fundi sínum, fyrir sitt leyti rafræna Húsnæðisáætlun Stykkishólmsbæjar 2022 og lagði til við bæjarstjórn að samþykkja hana.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu bæjarráðs.

18.Möguleg þátttaka Snæfellsness í UNESCO

Málsnúmer 2108015Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi Ragnhildar Sigurðardóttur, framkvæmdastjóra Svæðisgarðsins Snæfellsness, þar sem óskað er eftir viðbrögðum bæjarstjórnar við því að Snæfellsnes verði tilnefnt sem UNESCO, man and biosphere svæði. Einnig er lagt fram minnisblað framkvæmdarstjóra Svæðisgarðsins um málið.

Bæjarráð samþykkti, á 636. fundi sínum, þátttöku Stykkishólmsbæjar í verkefninu og vísaði afgreiðslunni til staðfestingar í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs.

19.Skógarstrandarvegur

Málsnúmer 1912009Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sem sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um hagkvæmnisathugun á uppbyggingu Skógarstrandarvegar, 33. mál.

Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 24. febrúar nk.

Bæjarráð fól bæjarstjóra, á 363. fundi sínum, að senda umsögn um tillögu til þingsályktunar um hagkvæmnisathugun á uppbyggingu Skógarstrandarvegarfyrir hönd Stykkishólmsbæjar sem tekur mið af fyrri umsögnum og ályktunum bæjarins vegna Skógarstrandarvegar.

Lagt fram til staðfestingar í bæjarstjórn.
Bæjartsjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs.

20.Snjómokstur stíga og gangstétta í Stykkishólmi

Málsnúmer 2202010Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga Hrafnhildar Hallvarðsdóttur og Steinunnar I. Magnúsdóttur um að að snjómokstur stíga- og gangstétta í Stykkishólmi verði þjónustuflokkaður og tímasettur í verklagsreglum með sambærilegum hætti og snjómokstur gatna bæjarins, og að í þeirri vinnu verði lögð áhersla á snjómokstur á aðalstígum- og gangstéttum sem tengja hverfi og skólasvæði.

Bæjarráð samþykkti, á 636. fundi sínum, tillöguna og fól sviðstjóra umhverfis- og skipulagssviðs að útfæra tillöguna í samráði við bæjarstjóra.

Lagt fram til staðfestingar í bæjarstjórn.
Bæjartsjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs.

21.Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða og lögum um veiðigjald (öflun sjávargróðurs í atvinnuskyni).

Málsnúmer 2202012Vakta málsnúmer

Lagt fram frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða (veiðistjórn sandkola og hryggleysingja). Frumvarpið var gefið út 9. febrúar sl. af matvælaráðherra.

Bæjarráð Stykkishólmsbæjar bókaði, á 636. fundi sínum eftirfarandi:

Stykkishólmsbær telur að mikilvægt sé að tryggja fyrirsjáanleika í rekstri atvinnufyrirtækja á sama tíma og lagðar séu skyldur á þá sem stunda þangslátt með nýtingaráætlun til þess að tryggja sjálfbærni.

Stykkishólmsbær fagnar því tekið hafi verið tillit til athugasemda landeigenda við Breiðafjörð í fyrirliggjandi frumvarpi varðandi afnám veiðigjalds. Stykkishólmsbær leggur þunga áherslu á, líkt og frumvarpsdrög gera ráð fyrir, að ekkert svæði eigi að njóta forgangs á kostnað annars svæðis eins og fyrri lög gerðu ráð fyrir.

Bókun bæjarráðs er lögð fram til staðfestingar í bæjarstjórn.
Bæjartsjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs.

22.Frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða (veiðistjórn sandkola og hryggleysingja)

Málsnúmer 2202013Vakta málsnúmer

Lagt fram frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða og lögum um veiðigjald (öflun sjávargróðurs í atvinnuskyni). Frumvarpið var gefið út 9. febrúar sl. af matvælaráðherra.

Bæjarráð lýsti yfir vonbirgðum sínum, á 636. fundi, með þá ákvörðun að ákvæði er varðar grásleppuveiðar hafi verið felld út úr framvarpinu. Bæjarráð telur brýnt að endurskoða fyrirkomulag grásleppuveiða sem fyrst og vísar til fyrri ályktana og umsagna vegna málsins.

Bæjarráð gerði að öðru leyti ekki efnislegar athugasemdir við fyrirliggjandi frumvarp.

Bókun bæjarráðs er lögð fram til staðfestingar í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs.

23.Erindi frá félagi atvinnulífs í Stykkishólmi

Málsnúmer 2202014Vakta málsnúmer

Frá því í lok árs 2019 hefur FAS haldið úti heimasíðunni visitstykkisholmur.is og öflugum markaðsherferðum sem bæði beinast að íslenskum- og erlendum ferðamönnum.

Lögð er fram ósk félagsins um áframhaldandi samstarf við Stykkishólmsbæ svo hægt sé að halda kostnaðarsömu markaðsstarfi í þágu samfélagsins áfram.

Bæjarráð samþykkti, á 636. fundi sínum, að styðja Félag atvinnulífs í Stykkishólmi með sama hætti og gert var með samningi við félagið á síðasta ári, sbr. 3. gr. þess samnings, m.t.t. hækkana, en að hámarki kr. 1.300.000.
Bæjartsjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs.

24.Heildarskipulag áningastaðar og útsýnissvæðis á Súgandisey

Málsnúmer 2004031Vakta málsnúmer

Lögð er fram til staðfestingar tillaga að deiliskipulagi fyrir Súgandisey. Markmiðið með deiliskipulaginu er að móta ramma fyrir göngu- og náttúruupplifun á eyjunni og tryggja jafnframt öryggi sjófarenda með sjótengdum mannvirkjum. Skipulagstillagan byggir á núverandi aðstæðum og niðurstöðum úr hugmyndasamkeppni um skipulag og hönnun útsýnisstaðar á eyjunni.

Lýsing deiliskipulagsverkefnisins var auglýst á heimasíðu bæjarins 4. maí 2021 og prentað eintak haft til sýnis í ráðhúsinu. Frestur til að gera athugasemdir var til og með 3. júní 2021. Engar athugasemdir við lýsinguna bárust. Lýsingin var einnig send til umsagnar hjá eftirfarandi stofnunum: Skipulagsstofnun, Heilbrigðiseftirlit Vesturlands, Minjastofnun Íslands, Náttúrufræðistofnun Íslands, Náttúrustofa Vesturlands, Umhverfisstofnun, Vegagerðinni, Breiðarfjarðarnefnd og Svæðisskipulagsnefnd sveitarfélaganna fimm á Snæfellsnesi og bárust umsagnir frá öllum nema Heilbigðiseftirliti Vesturlands og og Náttúrustofu Vesturlands. Lýsingin var einnig lögð fyrir á 90. fundi hafnarstjórnar Stykkishólmshafnar, sem gerði engar athugasemdir. Við áframhaldandi vinnslu tillögunnar hefur verið tekið tillit til ábendinga sem fram komu í umsögnum ofangreindra hagsmunaaðila. Á 400. fundi bæjarstjórnar þann 26.júní s.l., samþykkti bæjarstjórn lýsingu deiliskipulagsins og vísaði til áframhaldandi deiliskipulagsvinnu og kynningar meðal bæjarbúa.

Á 629. fundi bæjarráðs var lögð fram tillaga að deiliskipulagi fyrir Súgandisey ásamt greinagerð og samþykkti bæjarráð, í umboði bæjarstjórnar, að tillagan verði kynnt fyrir bæjarbúum samkvæmt 4. mgr. 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010, í samræmi við tillögu skipulags- og byggingarnefndar þar um. Deiliskipulagstillagan var kynnt á heimasíðu bæjarins 20. ágúst s.l. og var opinn dagur á skrifstofu sveitarfélagsins þann 25. og 26. ágúst 2021 þar sem allir voru velkomnir til að kynna sér deiliskipulagstillöguna og koma á framfæri athugasemdum og/eða ábendingum. Engar frekari athugasemdir eða ábendingar um deiliskipulagstillöguna bárust á opnum dögum, en athugasemdir eða ábendingar sem bárust eftir opnu dagana yrðu teknar til meðferðar eftir auglýsingafrest, eftir atvikum ásamt öðrum athugasemdum.

Skipulags- og byggingarnefnd (254. fundur) og bæjarráð (631. fundur) samþykktu tillöguna og lögðu til við bæjarstjórn að tillagan, þ.e. uppdráttur og greinargerð ásamt húsakönnun, verði auglýst í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Á 402. fundi sínum staðfesti Bæjarstjórn að auglýsa tillöguna. Tveir sátu hjá.

Tillagan var auglýst frá 21. desember til 4. febrúar. Engar athugasemdir bárust á auglýsingartímanum en tvær athugasemdir bárust 31. ágúst.

Skipulags- og byggingarnefnd yfirfór, á 257. fundi sínum, framkomnar athugasemdir og umsagnir. Nefndin tók ekki undir efni þeirra tveggja athugasemda sem bárust. Nefndin lagði til við bæjarstjórn að að samþykkja tillöguna að deiliskipulagi fyrir Súgandisey og að tillagan verði send til yfirferðar hjá Skipulagsstofnun skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarráð samþykkri, á 636. fundi sínum, fyrir sitt leyti tillöguna og lagði til við bæjarstjórn að samþykkja fyrirliggjandi tillögu að deiliskipulagi fyrir Súgandisey og að tillagan verði send til yfirferðar hjá Skipulagsstofnun skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarstjórn tekur undir með skipulags- og byggingarnefnd, staðfestir fyrirliggjandi umsagnir og samþykkir fyrirliggjandi tillögu að deiliskipulagi fyrir Súgandisey, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarstjórn felur skipulagsfulltrúa að senda svör til þeirra sem athugasemdir gerðu, senda tillöguna til yfirferðar skipulagsstofnunnar og að birta auglýsingu um samþykkt deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda eftir yfirferð skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Samþykkt með sex atkvæðum fulltrúa H-lista, L-lista og eins fulltrúa O-lista.

Erla Friðriksdóttir fulltrúi O-lista sat hjá við afgreiðslu málsins.

25.Ósk Asco Harvester um samstarf vegna atvinnuuppbyggingar

Málsnúmer 2202015Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Asco Harvester sem felur í sér umsókn um lóðina Nesveg 22a til vinnslu, rannsókna og kynninga á framleiðslu þörunga, ásamt ósk um samstarf um atvinnuuppbyggingu.

Bæjarráð samþykkri, á 636. fundi sínum, að fela bæjarstjóra að ganga til samninga við Asco Harvester ehf. í samræmi við erindi félagsins.

Bæjarráð lagði jafnframt áherslu á að fulltrúar Asco Harvester ehf. kynni áformin fyrir íbúum og að endanlegar útfærslur verði unnar í sem mestri sátt við umhverfi, íbúa og aðra hagsmunaaðila.

Afgreiðsla bæjarráðs er lögð fram til staðfestingar í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs.
Steinunn Ingibjörg Magnúsdóttir víkur af fundi undir umræðum og afgreiðslu málsins og tekur Anna Margrét Pálsdóttir sæti á fundinum.

26.Aðalgata 3 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2202001Vakta málsnúmer

SS-Veitingar sækja um að nýta núverandi "óráðstafað rými" í kjallara Aðalgötu 3 ásamt því að bæta aðkomu að kjallaranum með tröppum niður að útisvæði. Leitast er við að nota samskonar klæðningu og er á viðbyggingu aftan við húsið, þ.e. svarta timburklæðningu. Svalir sem snúa í norður verða fjarlægðar og tröppur að 1. hæð verða endurbyggðar. Bílastæði verða færð til á lóðinni og þeim fjölgað úr fimm í sex, o.fl.

Þar sem ekki er fyrir hendi gilt deiliskipulag fyrir svæðið vísaði byggingarfulltrúi framkvæmdum utanhúss til skipulags- og byggingarnefndar.

Skipulags- og bygginganefnd hafnaði, á 257. fundi sínum, beiðni um fjölgun bílastæða á lóðinni með vísun í tillögu að deiliskipulagi miðbæjar austan Aðalgötu, sem samþykkt hefur verið í bæjarstjórn og bíður nú til staðfestingar hjá Skipulagsstofnun. Jafnframt samþykkti nefndin samhljóða að grenndarkynna erindið skv. 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, fyrir lóðarhöfum Austurgötu 2.

Á 636. fundi sínum vísaði bæjarráð afgreiðslu skipulags- og byggingarnefndar til bæjarstjórnar.

Fyrir bæjarstjórn eru lagðar umsagnir byggingarfulltrúa Stykkishólmsbæjar og Ívars Pálssonar, lögmanns hjá Landslögum, en fagleg afstaða skipulagsfulltrúa til málsins liggur þegar fyrir þar sem skipulagsfulltrúi sem lagði til við skipulags- og byggingarnefnd að grenndarkynna erindið, sbr. bókun skipulags- og byggingarnefndar.
Bæjarstjórn samþykkir að grenndarkynna erindið skv. 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, fyrir lóðarhöfum Austurgötu 2, Aðalgötu 1 og Aðalgötu 2.
Steinunni Ingibjörg Magnúsdóttir tekur aftur sæti á fundinum og Anna Margrét Pálsdóttir víkur af fundi.

27.Höfðagata 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2202006Vakta málsnúmer

Sara Gilles sækir um, fyrir hönd Höfðagötu 1 ehf., breytingar á samþykktum aðaluppdráttum (byggingarleyfi 1811003).

Sótt er um 1. að rífa hluta af byggingu á bakhlið húss, 2. endurbyggja norð-austur hluta sem stakt hús og breyta því í vinnustofu og 3. breyta innraskipulagi og útliti suðvesturhluta hússins og þannig fækka gistiherbergjum í 5 (fjögur tveggjamanna og eitt fjölskylduherbergi).

Að mati byggingarfulltrúa er hér ekki um að ræða óverulega breytingu skv. grein 2.3.4 í kafla um byggingarleyfisskyldar framkvæmdir í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Er hér m.a. vísað til breytinga á útliti hússins og hugsanlegra áhrifa á nærumhverfi. Þar sem að ekki liggur fyrir samþykkt deiliskipulag fyrir svæðið sem heimilar breytinguna, metur byggingarfulltrúa það svo að grenndarkynna skuli breytinguna og leggur til við skipulags- og byggingarnefnd að hún samþykki að grenndarkynna.

Skipulags- og byggingarnefnd benti, á 257. fundi sínum, á að í gildi sé deiliskipulag fyrir Þinghúshöfða frá 2011 og telur að fyrirhugaðar breytingar falli að skilmálum sem þar eru settir fram hvað varðar útlitskröfur. Hinsvegar, þar sem um er að ræða hækkun á þaki að hluta til, telur nefndin engu að síður rétt að grenndarkynna erindið fyrir lóðarhöfum Skólastígs 5, 8 og 10 og Þvervegi 12 sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Á 636. fundi sínum vísaði bæjarráð afgreiðslu skipulags- og byggingarnefndar til bæjarstjórnar.

Lagður er fram skipulagsuppdráttur vegna breytinganna. Þá er lagt fram minnisblað sviðstjóra umhverfis- og skipulagssviðs vegna afgreiðslu umsóknar um breytingu á samþykktum aðaluppdráttum fyrir Höfðagötu 1 í Stykkishólmi.
Bæjarstjórn samþykkir, með vísan til minnisblaðs skipulagsfulltrúa, að vísa málinu til afgreiðslu hjá byggingarfulltrúa þar sem fyrirhuguð breyting á Höfðagötu 1 fellur að markmiðum og skipulagsskilmálum sem settir eru fram í deiliskipulagi Þinghússhöfða frá 2011 hvað varðar útlitsbreytingu, flatarmál, hæð og form og kallar þar af leiðandi ekki á breytingu á deiliskipulagi líkt og tillaga skipulags- og byggingarnefndar gerir ráð fyrir.

28.Úthlutun byggðakvóta 2021-2022

Málsnúmer 2202017Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu er varðar skiptingu á almennum byggðakvóta vegna fiskveiðiársins 2021/2022. Einnig er lögð fram auglýsing um staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2020/2021, leiðbeiningar vegna tillagna sveitarstjórna um sérreglur vegna byggðakvóta ásamt tillögu Stykkishólmsbæjar að sérstökum skilyrðum fyrir úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2021/2022.

Bæjarráð samþykkti, á 636. fundi sínum, framlagða tillögu/ályktun/skilyrði fyrir úthlutun aflamarks í tengslum við byggðakvóta vegna úthlutunar byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið tímabilið 2021-2022.

Afgreiðsla bæjarráðs er lögð fram til staðfestingar í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs.

29.Breiðafjarðarferjan Baldur - tillaga til þingsályktunar um kaup á nýrri Breiðafjarðarferju

Málsnúmer 2011013Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá nefndarviði Alþingis þar sem umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis óskar eftir umsögn Stykkishólmsbæjar um tillögu til þingsályktunar um kaup á nýrri Breiðafjarðarferju, 46. mál.
Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar tekur undir þingsályktunina en leggur áherslu á umhverfisvæna kosti sem bráðabirgðalausn og til lengri tíma.

Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar vekur athygli á ályktunum Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, hvort sem er stjórnar samtakanna og nú síðast á haustþingi samtakanna 29. september 2021 þar sem kom m.a. fram að nauðsynlegt sé að ríkið fjárfesti í nýrri og öflugri ferju sem uppfylli allar nútíma öryggiskröfur og hefji siglingar eins fljótt og verð má, enda sýndi það sig síðastliðinn vetur að litlu mátti muna að illa færi þegar núverandi ferja varð vélavana á miðjum firðinum.

Að öðru leyti vísar bæjarstjórn til fyrri afgreiðslna og ályktana Stykkishólmsbæjar vegna málsins sem skoðast einnig sem hluti af umsögn Stykkishólmsbæjar um þingsályktunartillöguna og felur bæjarstjóra að ganga frá umsögn og senda til umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis.

30.Minnispunktar bæjarstjóra

Málsnúmer 1808022Vakta málsnúmer

Minnispunktar bæjarstjóra lagðir fram til kynningar.
Bæjarstjóri gerir grein fyrir minnispunktum sínum.

Fundi slitið - kl. 17:53.

Getum við bætt efni síðunnar?