Fara í efni

Hólmurinn heillar

Bærinn 

bærinnStykkishólmur hefur á síðustu árum orðið að einum vinsælasta áfanga- og áningarstað landsins. Þar kemur margt til, ef til vill vegur þar þungt metnaður bæjarbúa fyrir að varðveita umhverfi sitt og sögu svo komandi kynslóðir fái notið þeirra á sama hátt og við gerum nú. Sú hugsun endurspeglast hvað best í miðbæ Stykkishólms sem óhætt er að vísa til sem safns gamalla húsa. Stykkishólmsbær fékk Skipulagsverðlaunin 2008, sem veitt eru af Skipulagsfræðifélagi Íslands, fyrir deiliskipulag miðbæjar, stefnu og framfylgd hennar og eru bæjarbúar ákaflega stoltir og þakklátir fyrir þá viðurkenningu.

Umhverfisvottun

Umhverfismál eru í hávegum höfð í Stykkishólmi. Á áttunda áratugnum var gert mikið átak í endurbyggingu gatnakerfisins, opin svæði grædd upp og trjárækt aukin í bæjarlandinu. Árið 2003 fékk höfnin í Stykkishólmi Bláfánann og var það í fyrsta skipti að höfn fékk Bláfánann á Íslandi sem er mikilvæg viðurkenning á sviði umhverfismála hafnanna. Var það vegleg viðurkenning enda er hafnarsvæðið einstakt. Grænfáninn var dregin að húni við Leikskólann í Stykkishólmi og við yngri deildir grunnskólans vorið 2007. Í janúar 2008 hófust íbúar handa við að flokka allt sorp fyrstir landsmanna í svokallað þriggjatunnukerfi. Árið 2008 fékk Stykkishólmur ásamt öðrum sveitarfélögum á Snæfellsnesi umhverfisvottun Earth Check og hefur hún verið endurnýjuð árlega síðan þá. Sá áfangi vakti verðskuldaða athygli innanlands sem utan þar sem sveitarfélögin á Snæfellsnesi voru þau fyrstu í Evrópu til þess að hljóta slíka vottun og fjórða samfélagið í heiminum öllum.

Fjölbreytt afþreying

Mikil áhersla hefur verið lögð á uppbyggingu þjónustu í Stykkishólmi sem nýtist ferðamönnum jafnt sem heimamönnum vel. Glæsileg sundlaugaraðstaða var tekin í notkun árið 1999. Meðal þess sem þar er boðið upp á er 25 metra útisundlaug, risarennibraut, innisundlaug og heitir pottar með sérstaklega vottuðu vatni vegna eiginleika þess við að vinna á ýmsum húðsjúkdómum. Þá hefur golfvöllurinn, sem staðsettur er við tjaldsvæðið, verið endurgerður undanfarin ár og er nú orðinn einn af glæsilegustu 9 holu völlum landsins. Ferjan Baldur siglir yfir Breiðafjörð milli Stykkishólms og Brjánslækjar með viðkomu í Flatey, eyjarinnar þar sem tíminn stendur í stað. Daglega eru skoðunarferðir um Breiðafjarðareyjarnar óteljandi þar sem náttúran og fuglalíf er skoðað. Í ferðunum er m.a. plógur dreginn upp og farþegum gefinn kostur á að smakka á því sem matarkista fjarðarins gefur af sér. Þessi upplifun gerir heimsókn í Stykkishólm ógleymanlega.

Eldur og ís

Andstæðurnar í íslenskri náttúru eru sérkenni landsins og þær áhrifamestu eru eldur og ís. Í Stykkishólmi eru tvö glæsileg söfn þar sem þessum efnum eru gerð góð skil. Annars vegar er það Vatnasafn/Library of water sem er innsetningarverk bandarísku listakonunnar Roni Horn. Þar á hæsta punkti Stykkishólms með útsýni til allra átta hefur gömlu bókasafnsbyggingunni verið breytt í safn vatns, orða og veðurfrásagna. Safnið prýða 24 glersúlur með vatni úr helstu jöklum landsins.

Hins vegar er það Eldfjallasafn sem er opið daglega á sumrin. Safnið er mjög fjölbreytt þar sem m.a. er alþjóðasafn af listaverkum, fornum og nýjum, sem sýna eldgos. Einnig munir, forngripir, minjar og steintegundir úr einstöku safni Haraldar Sigurðssonar prófessors sem hefur stundað eldfjallarannsóknir í yfir 40 ár um allan heim. Í Eldfjallasafni eru kynningar eða erindi flutt af Haraldi, á íslensku og ensku, um eldgos og áhrif þeirra ásamt fræðslu um jarðfræði sem hentar fólki og nemendum með litla eða enga þekkingu á þessu sviði. Á vegum Eldfjallasafnsins er boðið upp á fræðsluferðir umhverfis Snæfellsnes. Í ferðunum er skoðuð ótrúleg jarðfræðifjölbreytni svæðisins undir handleiðslu Haraldar Sigurðssonar. Ferðin er ekki aðeins kynnisferð, heldur skipulögð þannig að hún skilur eftir heilsteypta mynd af jarðfræði og landmótun í lok ferðarinnar hjá hverjum þátttakanda. Nánari upplýsingar má nálgast á www.eldfjallasafn.is og safn@eldfjallasafn.is

Norska húsið

Byggðasafn Snæfellinga, sem nefnist Norska húsið, er staðsett í Stykkishólmi og er þangað bæði skemmtilegt og fróðlegt að koma. Í safninu er fastasýning á heimili Árna Thorlacius eins og talið er að það hafi verið á seinni hluta 19. aldar. Í risinu er opin safngeymsla og falleg krambúð er á fyrstu hæð hússins. Sýningar á fyrstu hæð hússins eru breytilegar en tengjast menningu, sögu og listum svæðisins.

Menning

Þrátt fyrir að íbúar Stykkishólms séu einungis um 1200 þá þrífst þar blómlegt íþrótta- og menningarlíf. Íþróttir skipa stóran sess í daglegu lífi Hólmara hvort sem þeir eru sjálfir á vellinum eða úr áhorfendapöllunum, í boltaíþróttum eða annarri líkamsrækt. Bærinn er orðinn þekktur sem körfuboltabær, þar sem lið þeirra Snæfell hefur náð frábærum árangri undanfarin ár. Margvíslegt tómstundastarf er einnig í boði í Stykkishólmi fyrir alla aldurshópa. Ótal mörg félög og áhugahópar eru starfræktir allan ársins hring og skipulagt félagsstarf með mesta móti. Má þar nefna íþróttaiðkun af ýmsu tagi, tónlistarstarf, Lionsstarf og margt fleira. Yfir sumarmánuðina er boðið upp á tónleika í Stykkishólmskirkju og koma þar fram ýmsir góðir tónlistarmenn bæði íslenskir og erlendir.

Matur

Fyrir þá sem unna góðum mat og vilja láta kitla bragðlaukana þá eru allnokkrir veitingastaðir í Stykkishólmi sem bjóða upp á fjölbreytt úrval rétta, auk þess sem gott bakarí er í bænum. Þeir sem hins vegar kjósa að matreiða sjálfir geta keypt aðföngin í Bónus sem er með verslun á staðnum.

Gisting

Fjölbreytnin er mikil í Stykkishólmi þegar kemur að möguleikum til gistingar og ættu allir að finna eitthvað sem hæfir þeirra þörfum. Nýtt og glæsilegt þjónustuhús við tjaldsvæðið var tekið í notkun sumarið 2009 og samhliða því hefur öll aðstaða verið bætt til muna fyrir húsbíla, hjól- og fellihýsi. Til að mæta þörfum gesta enn frekar hefur verið komið upp þráðlausri nettenginu á tjaldsvæði og í miðbæ Stykkishólms. Auk tjaldsvæðisins eru farfuglaheimili, hótel, orlofshús og heimagistingar í bænum.

 

Stykkishólmsbær rekur í samstarfi við önnur sveitarfélög á Vesturlandi, Markaðsstofu Vesturlands. Á vegum markaðsstofunnar er rekinn upplýsingavefurinn west.is Þar er að finna upplýsingar um Vesturland á íslensku og ensku. Hér að neðan má fara beint inn á ákveðna kafla á vef markaðsstofunnar um Snæfellsnes og/eða Stykkishólm.

Á Visit Stykkishólmur má einnig finna góðar upplýsingar um þjónustu og afþreyingu í bænum.

Getum við bætt efni síðunnar?