Fara í efni

Bókhlöðustígur 7 - Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2001023

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 1. fundur - 30.04.2020

Halldór Jónsson sækir um leyfi til að byggja nýjan bílskúr við Bókhlöðustíg 7, samkvæmt aðaluppdráttum frá Sigurbjarti Loftsyni dagsettir 03.05.2019.

Tillagan var grenndarkynnt í samræmi við 2. mgr.43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 frá 11. febrúar til og með 13. mars 2020. Grenndarkynnt var fyrir eigendum húsa við Bókhlöðustíg nr. 5 og 8 og Skólastíg 14. Engar athugasemdir bárust við skipulagsuppdrátt.
Byggingaráform samþykkt. Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012, m/síðari breytingum og samræmist skipulagsáætlunum.

Byggingarleyfi verður gefið út að uppfylltum skilyrðum sbr. gr. 2.4.4 í byggingarregluger 112/2012 með síðari breytingum og uppfylltum skilyrðum/athugasemdum byggingarfulltrúa.
Getum við bætt efni síðunnar?