Sjálfbærnistefna Snæfellsness 2026-2035
Sameiginleg stefna sveitarfélaga á Snæfellsnesi um sjálfbæra þróun í málefnum umhverfis, menningar, samfélags og efnahags.
Snæfellsnes einkennist af náttúrufegurð og fjölbreytni, með stórbrotinn fjallgarð eftir allri miðjunni, glæsilegar sandstrendur, fagra eyjaklasa og Snæfellsjökul sem trónir yfir. Náttúra Snæfellsness er með eindæmum fjölbreytt á íslenskan mælikvarða, hvort sem litið er til landslags, jarðfræði eða lífríkis, en fimm svæði eru friðlýst í þeim tilgangi að vernda verðmæta náttúru og menningarminjar, þar á meðal Snæfellsjökulsþjóðgarður. Norðurströnd Snæfellsness liggur að Breiðafirði, sem er verndaður með sérlögum um vernd Breiðafjarðar. Byggðin er dreifð og helstu atvinnuvegirnir eru útgerð, fiskvinnsla, ferðaþjónusta, menntun, landbúnaður, verslun og önnur þjónusta. Snæfellsnes á sér ríka sögu og menningararfleið sem skal varðveita eftir fremsta megni.
Sveitarfélögin á Snæfellsnesi hafa sýnt frumkvæði í þágu sjálfbærrar þróunar á Íslandi undanfarna áratugi. Í samræmi við þetta hafa sveitarfélögin Grundarfjarðarbær, Snæfellsbær, Eyja- og Miklaholtshreppur og Sveitarfélagið Stykkishólmur sett sér þessa sameiginlegu stefnu um sjálfbæra þróun með það að markmiði að samfélögin dragi úr neikvæðum umhverfisáhrifum sínum frá ári til árs.