Auglýsing um skipulag
Á 47. fundi bæjarstjórnar þann 30. apríl 2026 var samþykkt að auglýsa eftirfarandi deiliskipulagsbreytingar, skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Vatnsás í Víkurhverfi
Breytingin nær til svæðis syðst í Víkurhverfi. Skipulagssvæðið minnkar þar sem stór hluti svæðisins er illbyggilegur, göturnar Móvík og Sundvík falla út, fjöldi íbúða fer úr 21-32 í 14-28 og heimilt er að byggja parhús og einbýli. Lóðin R1 helst óbreytt í stærð en fer úr 2-4 íbúðir í 3-6. (Mál nr. 1120/2026 í Skipulagsgátt).
Verslunar- og þjónustusvæði við Klapparás
Breytingin nær til lóða 2 og 3. Lóð 2 stækkar og lóð 3 minnkar og er skipt í tvær lóðir 3 og 3a. Á lóð 2 er fyrir bensínstöð og verður heimilt að byggja bílaþvottastöð á lóðinni að hámarki 80 m2 að stærð. Þar verður enn fremur leyfilegt að vera með 8-9 stæði fyrir hleðslustöðvar. Á lóð 3 er heimilt að vera með hraðhleðslustöðvar fyrir fólksbíla og fellur byggingarreitur niður. Lóð 3a er heimilt að vera með spennistöð og er afmarkaður 22 m2 byggingarreitur. (Mál nr. 1119/2026 í Skipulagsgátt).
Þau sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvött til að kynna sér tillögurnar á vef sveitarfélagsins (www.stykkisholmur.is) og á Skipulagsgáttinni (www.skipulagsgatt.is)
Athugasemdafrestur er til og með 12. nóvember 2026 og er eingöngu tekið við athugasemdum í gegnum Skipulagsgáttina.
Opið hús verður þriðjudaginn 20. október 2026 í Amtsbókasafninu í Stykkishólmi frá kl. 17:00 – 18:00, þar sem tækifæri gefst til þess að kynna sér tillögurnar.
Þuríður Ragna Stefánsdóttir
Skipulagsfulltrúi Sveitarfélagsins Stykkishólms.