Íbúafundur 12. mars vegna aðalskipulags
Íbúafundur um lýsingu og stefnumótun fyrir nýtt aðalskipulag sveitarfélagsins verður í Félagsheimilinu Skildi fimmtudaginn 12. mars kl. 17:00.
Líkt og kynnt var á íbúafundi 8. desember 2025 er nú unnið að nýju aðalskipulagi fyrir Sveitarfélagið Stykkishólm, það fyrsta fyrir sameinað sveitarfélag. Í aðalskipulaginu verður mörkuð framtíðarstefna sveitarfélagsins í þróun þéttbýlis og dreifbýlis. Á íbúafundinum, sem fram fór á Höfðaborg þann 8. desember sl., kynnti fulltrúi Alta, fyrirtækisins sem leiðir vinnuna, vinnuferla við mótun nýs aðalskipulags og nálgun við stefnumótun.
Bæjarstjórn samþykkti lýsingu fyrir skipulagsverkefnið á fundi sínum 26. febrúar sl. og hefur hún verið birt í Skipulagsgátt með umsagnarfresti til 7. apríl 2026. Tilgangur lýsingar er að kynna fyrir íbúum og öðrum hagsmunaaðilum hvernig staðið verður að skipulagsvinnunni og hver eru helstu viðfangsefni.
Allir hagaðilar eru hvattir til að kynna sér lýsinguna og senda sínar ábendingar um efni hennar, annað hvort í Skipulagsgátt eða til skipulag@stykkisholmur.is, til að tryggja að verkefnið nái yfir umhverfis- og skipulagsmál sem á þeim brenna.
Íbúafundur á Skildi
Kynningar- og umræðufundur um lýsinguna og stefnumótun sveitarfélagsins verður í Félagsheimilinu Skildi þann 12. mars kl. 17:00. Þar gefst tækifæri til að spyrja út í aðalskipulagsverkefnið og ræða viðfangsefni í umhverfis- og skipulagsmálum. Samhliða kynningu lýsingar fyrir mótun nýs aðalskipulags er birt vefkönnun til íbúa annarsvegar og landeigenda/ábúenda hinsvegar. Könnununum er ætlað að draga fram upplýsingar og sjónarmið um helstu viðfangsefni aðalskipulags. Óskað er eftir að svör berist fyrir 7. apríl 2026. Ábendingar og svör verða tekin til umfjöllunar skipulagsnefndar í næstu áföngum verkefnisins.