Fara í efni

Nýrækt

Í jaðri bæjarins er Nýræktin og þar er skógrækt Hólmara með fjölbreyttum gróðri og fuglalífi. Hægt er að þræða göngustíga sem hlykkjast um skóginn og einnig má finna borð, bekki og útigrill til afnota fyrir almenning. Skógurinn er mikið nýttur af bæjarbúum, þar í skjóli trjágróðurs eru t.a.m. oft haldin barnaafmæli og leikskólinn stundar sína útikennslu á svæðinu.

Stykkishólmsbær og Skógræktarfélag Stykkishólms hafa unnið saman að uppbyggingu á skógræktarsvæðinu við Grensás með það að markmiði að auka útivistarmöguleika í nálægð við Stykkishólm. 

Unnið hefur verið að gagnvirku korti og skilti sem kynna gesti skógarins fyrir þeim gönguleiðum sem liggja um suðvesturhluta skógræktarinnar. Fjórir stígar á vestursvæði Grensáss hafa nú fengið nafn og auk þess þrír áfangastaðir í skóginum. Fuglar svæðisins eru innblástur að nöfnunum en stígarnir heita: Uglustígur, Glókollastígur, Starastígur og Þrastastígur. Áfangastaðirnir heita: Rjúpurjóður, Þrastalundur og Arnarhreiður.

Hólmarar og gestir bæjarins eru hvattir til að nýta sér þessar skemmtilegu gönguleiðir og njóta alls þess sem skógurinn hefur uppá að bjóða.

SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA GAGNVIRKT KORT AF SVÆÐINU

Getum við bætt efni síðunnar?