Fara í efni

Fréttasafn

Jan Feb Mar Apr Maí Jún Júl Ágú Sep Okt Nóv Des
Lista- og menningarsjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki
Fréttir

Lista- og menningarsjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í lista- og menningarsjóð Stykkishólmsbæjar. Samkvæmt reglum sjóðsins er hlutverk hans meðal annars að styðja og styrkja lista og menningarstarf í Stykkishólmi og hvetja til nýsköpunar á sviði lista og menningar.
09.12.2021
Jólalest frestað vegna nýsmits
Fréttir

Jólalest frestað vegna nýsmits

Tekin hefur verið sú varúðarráðstöfun að fresta jólalest Tónlistarskóla Stykkishólms sem til stóð að aka um bæinn í dag, 8. desember, sökum þess að upp hefur komið eitt covidsmit í Stykkishólmi. Er það gert til þess að gæta fyllstu varúðar. Fólk er beðið um að vera meðvitað um stöðuna og efla sínar persónubundnu sóttvarnir.
08.12.2021
Jólalest Tónlistarskóla Stykkishólms á ferðinni
Fréttir

Jólalest Tónlistarskóla Stykkishólms á ferðinni

Jólalest Tónlistarskóla Stykkishólms ekur um bæinn á milli kl. 18 og 19 miðvikudaginn 8. desember og spilar á völdum stöðum til að gleðja gesti og gangandi með jólatónlist. Með í för verða jólasveinar með jólasleðann góða sem þeir afhentu bæjarbúum fyrir síðustu jól en nú er kominn tími til að koma honum fyrir á góðum stað til að gleðja bæjarbúa.
07.12.2021
Viðvera atvinnuráðgjafa SSV í Stykkishólmi
Fréttir

Viðvera atvinnuráðgjafa SSV í Stykkishólmi

Helga Guðjónsdóttir atvinnuráðgjafi SSV verður til viðtals í Ráðhúsinu í Stykkishólmi þriðjudaginn 7. desember kl. 13-15. Áhugasamir eru hvattir til að nýta sér þjónustuna. SSV ? þróun og ráðgjöf er hluti af stoðkerfi atvinnulífsins og veitir ráðgjöf á sviði atvinnumála og vinnur að þróun búsetuskilyrða á starfssvæði Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi.
06.12.2021
Jólalestinni frestað þar til nær dregur jólum
Fréttir

Jólalestinni frestað þar til nær dregur jólum

Jólalest Tónlistarskóla Stykkishólms sem til stóð að aka um bæinn næstkomandi laugardag, 4. desember, hefur verið frestað. Íbúar þurfa þó ekki að örvænta því hún mun fara sína leið í næstu viku og verður það auglýst þegar nær dregur.
02.12.2021
Búið að tendra jólaljósin í Hólmgarði
Fréttir

Búið að tendra jólaljósin í Hólmgarði

Það hefur eflaust ekki farið framhjá bæjarbúum að ljósin á jólatrénu í Hólmgarði hafa verið tendruð. Tréð var valið af íbúum Stykkishólms, líkt og í fyrra, og er glæsilegt sitkagreni sem gróðursett var í Sauraskógi um 1970.
01.12.2021
Getum við bætt efni síðunnar?