Fara í efni

Fákaborg 3. - Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2009044

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 7. fundur - 25.09.2020

Steinunn Helgadóttir sækir um leyfi fyrir útlitsbreytingum á hesthúsi.

Um er að ræða nýjann glugga á gafli Fákaborgar 3.
Skv. kafla 2.3 um byggingarleyfisskyldar framkvæmdir í byggingarreglugerð nr. 112/2012, segir í grein 2.3.4:
Breyting er varðar útlit eða form mannvirkis. Varði breyting á mannvirki útlit þess og form skal leita samþykkis hlutaðeigandi skipulagsnefndar áður en byggingarleyfi er veitt enda liggi ekki fyrir samþykkt deiliskipulag sem heimilar breytinguna. Ekki þarf að leita slíks samþykkis sé breytingin óveruleg.

Að mati byggingarfulltrúa er breytingin óveruleg og því ekki þörf á að leita samþykkis skipulagsnefndar vegna málsins.

Erindið samþykkt.
Getum við bætt efni síðunnar?