Fara í efni

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

7. fundur 25. september 2020 kl. 13:00 - 14:00 Í gegnum fjarfundarbúnað
Nefndarmenn
  • Jökull Helgason byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Sigurður Grétar Jónasson (SGJ) starfsmaður tæknisviðs
Fundargerð ritaði: Jökull Helgason Byggingarfulltrúi
Dagskrá

1.Fákaborg 3. - Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2009044Vakta málsnúmer

Steinunn Helgadóttir sækir um leyfi fyrir útlitsbreytingum á hesthúsi.

Um er að ræða nýjann glugga á gafli Fákaborgar 3.
Skv. kafla 2.3 um byggingarleyfisskyldar framkvæmdir í byggingarreglugerð nr. 112/2012, segir í grein 2.3.4:
Breyting er varðar útlit eða form mannvirkis. Varði breyting á mannvirki útlit þess og form skal leita samþykkis hlutaðeigandi skipulagsnefndar áður en byggingarleyfi er veitt enda liggi ekki fyrir samþykkt deiliskipulag sem heimilar breytinguna. Ekki þarf að leita slíks samþykkis sé breytingin óveruleg.

Að mati byggingarfulltrúa er breytingin óveruleg og því ekki þörf á að leita samþykkis skipulagsnefndar vegna málsins.

Erindið samþykkt.

Fundi slitið - kl. 14:00.

Getum við bætt efni síðunnar?