Fara í efni

Tangagata 13 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.

Málsnúmer 2103044

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 13. fundur - 09.04.2021

Um er að ræða tvílyft steinsteypt einbýlishús byggt 1945 með aðliggjandi bílskúr byggðum 1965. Útveggir eru steinsteyptir, múraðir og einangraðir að innan og utan. Bílskúr er steinsteyptur og klæddur með bárujárni.
Sótt er um breytingar á útliti íbúðarhússins og fyrirkomulagi innanhúss. Um er að ræða nýjan glugga á austurhlið íbúðarhússins, síkkun á núverandi glugga og breyta honum í hurð á suðurhlið íbúðarhússins. Einnig er sótt um að fjarlægja núverandi steniklæðningu af íbúðarhúsinu og klæða með standandi timburklæðningu og einangra að utanverðu.
Innanhúss er sótt um að koma fyrir EICS-60 hurð milli bílskúrs og íbúðarhúss, færa eldhús og koma baðherbergi og þvottahúsi fyrir norðanmegin.
Með erindinu fylgdi aðaluppdráttur dags. 30.03.2021 frá Indro Candi hjá VA-Arkitektum.
Byggingaráform samþykkt. Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012, með síðari breytingum og samræmist skipulagsáætlunum.

Byggingarleyfi verður gefið út að uppfylltum skilyrðum sbr. gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð nr. 112/2012 með síðari breytingum og að uppfylltum skilyrðum/athugasemdum byggingarfulltrúa.
Getum við bætt efni síðunnar?