Fara í efni

Ágangur búfjár

Málsnúmer 2206045

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Stykkishólmsbæjar og Helgafellssveitar - 1. fundur - 23.06.2022

Lagt fram erindi Péturs Kristinssonar, lögmanns, f.h Péturs Geirssonar, eiganda jarðarinnar Kljár í Stykkishólmi og Helgafellssveit, þar sem farið er á leit við sveitarfélagið að það bregðist við á grundvelli 33. gr. laga nr. 6/1986 og láti koma ágangsfé sem þar er innan túngirðingar þangað sem það á að vera, ásamt óundirrituðu minnisblaði um álit samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins í máli SRN2007003 frá 8. júní sl. er varðaði skyldur sveitarstjórna til að bregðast við ágangi búfjár.
BÆTA

Bæjarráð frestar erindinu til næsta bæjarráðsfundar og felur bæjarstjóra að afla gagna.

Bæjarráð Stykkishólmsbæjar og Helgafellssveitar - 2. fundur - 18.08.2022

Lagt fram erindi Péturs Kristinssonar, lögmanns, f.h Péturs Geirssonar, eiganda jarðarinnar Kljár í Stykkishólmi og Helgafellssveit, þar sem farið er á leit við sveitarfélagið að það bregðist við á grundvelli 33. gr. laga nr. 6/1986 og láti koma ágangsfé sem þar er innan túngirðingar þangað sem það á að vera, ásamt óundirrituðu minnisblaði um álit samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins í máli SRN2007003 frá 8. júní sl. er varðaði skyldur sveitarstjórna til að bregðast við ágangi búfjár.

Bæjarráð frestaði erindinu á 1. fundi sínum til næsta bæjarráðsfundar og fól bæjarstjóra að afla gagna.
Bæjarráð þakkar erindið og þann lagalega rökstuðning sem fylgdi erindinu. Bæjarráð bendir á að fyrir liggur leiðbeiningar og álit samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins í máli nr. SRN2007003 þar sem tekin var efnisleg afstaða til ágreiningsefnisins. Bæjarráð telur, með vísan til framangreindrar niðurstöðu ráðuneytisins og lögfræðilegum rökstuðningi í því máli, þar sem fjallað var um skörun lagaákvæða á grundvelli forgangsreglna réttarheimildafræðinnar, að ekki séu forsendur til þess að sveitarfélagið gangi gegn fyrirliggjandi leiðbeiningum og áliti ráðuneytisins í þessum efnum. Með vísan til niðurstöðu áðurnefnds úrskurðar telur sveitarfélagið rétt að líta til ákvæða 8. gr. og 9. gr. laga um búfjárhald og að þau ákvæði gangi framan ákvæðum IV. kafla afréttarlaga. Af þessum sökum og með vísan til niðurstöðu samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins í máli nr. SRN-20070003 sér bæjarráð sér ekki fært að fallast á erindið.
Getum við bætt efni síðunnar?