Fara í efni

Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Austurgata 6 - Flokkur 2,

Málsnúmer 2305025

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 28. fundur - 15.06.2023

Tekin er fyrir að nýju umsókn Helga Björgvins Haraldssonar um byggingu svala ásamt tröppum niður í garð og að setja nýjan glugga á eldhús í norður. Á 26. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa vísaði byggingarfulltrúi erindinu til skipulagsnefndar sem tók málið fyrir á 6. Niðurstaða skipulagsnefndar var að fara fram á óverulega breytingu á deiliskipulagi.

Breytingar á deiliskipulagi voru grenndarkynntar samkvæmt 2. mgr. 43. greinar skipulagslaga 123/2010 og bárust engar athugasemdir.

Skipulagsbreytingin tók gildi við birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda þann 31. mars 2023.
Byggingaráform samþykkt. Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012, með síðari breytingum og samræmist skipulagsáætlunum.

Byggingarheimild verður gefin út að uppfylltum skilyrðum sbr. gr. 2.3.8 í byggingarreglugerð nr. 112/2012 með síðari breytingum og að uppfylltum skilyrðum/athugasemdum byggingarfulltrúa.
Getum við bætt efni síðunnar?