Afmælishátíð skólastarfs í Stykkishólmi - Opið hús
Málsnúmer 2602006
Vakta málsnúmerSkóla- og fræðslunefnd - 24. fundur - 10.02.2026
Þriðjudaginn 24. febrúar 2026 verður merkum tímamótum í sögu skólahalds í Stykkishólmi fagnað. Á þessu ári eru liðin 130 ár frá því að rekstur barnaskóla hófst í Stykkishólmi, eftir byggingu fyrsta skólahússins árið 1896. Í fyrra voru liðin 90 ár frá því að Barnaskólinn í Stykkishólmi við Skólastíg var tekinn í notkun (1935), bygging sem í dag hýsir Tónlistarskóla Stykkishólms. Jafnframt voru 40 ár í fyrra liðin frá vígslu núverandi skólabyggingar grunnskólans við Borgarbraut.
Til að fagna þessum tímamótum mun sveitarfélagið bjóða öllum íbúum sveitarfélagsins og öðrum gestum í opið hús í Grunnskólanum í Stykkishólmi, við Borgarbraut, þriðjudaginn 24. febrúar frá 12:00 til 13:30. Þar gefst gestum og gangandi tækifæri til að kynna sér nýjustu innviði og aðstöðu fyrir skóla- og frístundastarf í Stykkishólmi á sama tíma og framangreindum tímamótum er fagnað.
Skólastjóri gerir nánari grein fyrir viðburðinum.

Ýmsar hugmyndir voru ræddar, meðal annars að halda þemaviku á næsta skólaári og að nemendur skólans útbúi boðskort sem þeir myndu síðan dreifa í öll hús í bænum
Fyrverandi kennarar og starfsmenn eru sérstaklega hvattir til að mæta á viðburðinn 24. febrúar.