Skóla- og fræðslunefnd
Dagskrá
1.Starfsemi Leikskólans í Stykkishólmi - Greinargerð stjórnenda
Málsnúmer 1910039Vakta málsnúmer
Lögð fram skýrsla Leikskólans í Stykkishólmi, stjórnendur fara yfir starfsemi skólans.
2.Starfsemi Grunnskólans í Stykkishólmi - Greinargerð stjórnenda
Málsnúmer 1910040Vakta málsnúmer
Lögð fram skýrsla Grunnskólans í Stykkishólmi, skólastjóri fer yfir starfsemi skólans.
Lagt fram til kynningar.
Rætt var um viðveru starfsfólk og vinnu bæjarins að viðverustefnu fyrir sveitarfélagið.

3.Starfsemi Tónlistaskóla Stykkishólms - Greinargerð stjórnanda
Málsnúmer 1910043Vakta málsnúmer
Lögð fram skýrsla Tónlistarskóla Stykkishólms, skólastjóri fer yfir starfsemi skólans.
Lagt fram til kynningar.
4.Starfsemi Regnbogalands - skýrsla og yfirferð
Málsnúmer 1910041Vakta málsnúmer
Lögð fram skýrsla Regnbogalands, umsjónarmaður fer yfir starfsemina.
Starfsemin er flutt í nýtt húsnæði og gengur starfið vel. Nemendur og starfsfólk er ánægt með breytinguna.
Fjallað var um stöðu starfsmannamála og þær áskoranir sem tengjast nemendasamsetningu og fjarveru starfsfólks.

5.Ytra mat GSS febrúar 2021
Málsnúmer 2104008Vakta málsnúmer
Lagt fram bréf frá Mennta- og barnamálaráðuneytinu þar sem fram kemur að eftirfylgni með umbótum í kjölfar ytra mats á Grunnskólanum í Stykkishólmi, sem fram fór árið 2021, lokið.
Lagt fram til kynningar.
Umbótaáætlunin er aðgengileg á heimasíðu skólans. Lokið verður við þær aðgerðir sem eru í vinnslu samkvæmt áætluninni.
Rætt var um að skoða umferð á heimasíðu skólans.

6.Afmælishátíð skólastarfs í Stykkishólmi - Opið hús
Málsnúmer 2602006Vakta málsnúmer
Þriðjudaginn 24. febrúar 2026 verður merkum tímamótum í sögu skólahalds í Stykkishólmi fagnað. Á þessu ári eru liðin 130 ár frá því að rekstur barnaskóla hófst í Stykkishólmi, eftir byggingu fyrsta skólahússins árið 1896. Í fyrra voru liðin 90 ár frá því að Barnaskólinn í Stykkishólmi við Skólastíg var tekinn í notkun (1935), bygging sem í dag hýsir Tónlistarskóla Stykkishólms. Jafnframt voru 40 ár í fyrra liðin frá vígslu núverandi skólabyggingar grunnskólans við Borgarbraut.
Til að fagna þessum tímamótum mun sveitarfélagið bjóða öllum íbúum sveitarfélagsins og öðrum gestum í opið hús í Grunnskólanum í Stykkishólmi, við Borgarbraut, þriðjudaginn 24. febrúar frá 12:00 til 13:30. Þar gefst gestum og gangandi tækifæri til að kynna sér nýjustu innviði og aðstöðu fyrir skóla- og frístundastarf í Stykkishólmi á sama tíma og framangreindum tímamótum er fagnað.
Skólastjóri gerir nánari grein fyrir viðburðinum.

Jakob bæjarstjóri kemur inn á fundinn.
Ýmsar hugmyndir voru ræddar, meðal annars að halda þemaviku á næsta skólaári og að nemendur skólans útbúi boðskort sem þeir myndu síðan dreifa í öll hús í bænum
Fyrverandi kennarar og starfsmenn eru sérstaklega hvattir til að mæta á viðburðinn 24. febrúar.

7.Endurgerð lóðar við Gunnskóla Stykkishólms og Amtsbókasafn Stykkishólm
Málsnúmer 1902014Vakta málsnúmer
Lagðar fram tillögur að frágang á skólalóð umhverfis ný húsakynni Regnbogalands. Lagt er til að aðskilja bílaplan frá leiksvæði við Regnbogaland með grindverki eða hleðslu með það að markmiði að bægja börnum frá bílaumferð.
Bæjarráð óskaði, á 40. fundi sínum, eftir umsögn skóla- og fræðslunefndar um hvor tillagan verði fyrir valinu.

Skipulagsfulltrúi kemur inn á fundinn.
Bæjarstjóri greindi frá forsendum tillögunnar sem er bætt öryggi barna.
Skipulagsfulltrúi lýsti mögulegum útfærslum og í kjölfarið skapaðist umræða um þær.
Skóla- og fræðslunefnd vísar málinu til umræðu innan grunnskólans, enda eru starfsmenn þar best til þess fallnir að útfæra slíka lausn.

Aðrir en nefndarmenn yfirgáfu fundinn.
8.Málefni félags- og skólaþjónustu Snæfellsnes
Málsnúmer 2102011Vakta málsnúmer
Skóla- og fræðslunefnd tekur til umræðu störf Félags og skólaþjónustu Snæfellsnes (FSSF) með áherslu á skólaþjónustuþátt stofnunarinnar.
Störf FSSF hafa margoft verið rædd á undanförnum árum og er í dæmaskyni vísað til mála nr. 2102011, 2302036 og 2011022 í málakerfi sveitarfélagsins.

Það er mat skóla- og fræðslunefndar að skoða þurfi alvarlega störf Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga (FSSF) varðandi skólaþjónustu stofnunarinnar og áréttar skóla og fræðslunefnd fyrri bókanir nefndarinnar varðandi skólaþjónustuhluta FSSF.
Vill skóla- og fræðslunefnd minna á sameiginlega ályktun skólastjórnenda á Snæfellsnesi frá 1. febrúar 2021 varðandi nauðsyn þess að bæta um betur í skólaþjónustu á Snæfellsnesi. Ákveðið var í framhaldinu að boðað skildi til fundar með FSSF, fulltrúum Fjölbrautarskóla Snæfellinga og skólastjórnendum, skólanefndum og bæjarfulltrúum þeirra sveitarfélaga sem standa að þjónustunni þar sem taka átti til umræðu stöðu skólaþjónustunnar á Snæfellsnesi. Fyrrgreindur fundur fór aldrei fram, væntanlega sökum faraldursins. Skóla- og fræðslunefnd leggur því til við bæjarstjórn Stykkishólms að óskað verði eftir því að umræddur fundur verði haldinn sem allra fyrst.
Á fundinum væri mögulegt að taka til umræðu hvort halda eigi samstarfinu áfram hvað varðar skólaþjónustu á Snæfellsnesi eða hvort beina ætti kröftum FSSF einungis að félags- og velferðarþjónustu. Jafnframt væri hægt að meta hvort hagsmunum barna á svæðinu væri betur borgið með samstarfi við aðra skólaþjónustu, til dæmis í Borgarbyggð, eða með samvinnu um skólaþjónustu á stærra svæði.
Þó skóla- og fræðslunefnd telji að staðan sé og hafi lengi verið óviðunandi hvað þennan þátt varðar í starfsemi stofnunarinnar, vill nefndin leggja áherslu á að þar er ekki við núverandi starfsfólk eða forstöðumann að sakast.

Fundi slitið - kl. 18:20.
Áhugi er á því innan leikskólans að fá Ásgarð skólaráðgjöf til að leiða skólann í gegnum innra mat.