Birkilundur 13, umsókn um viðbyggingu
Málsnúmer 2604028
Vakta málsnúmerAfgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 47. fundur - 19.05.2026
Sótt er um leyfi fyrir 17,5 fermetra tengibyggingu milli frístundahúss og gestahúss. Meginburðarvirki er úr timbri á steyptum grunni. Með umsókn fylgja aðaluppdrættir frá Kvarða, dagsettir 12.04.2026.
Umsóknin fellur undir umfangsflokk 1.skv.grein 1.3.2 í byggingarreglugerð.
Byggingarheimild verður veitt að uppfylltum skilyrðum gr. 2.3.8 í byggingarreglugerð nr 112/2012 með áorðnum breytingum.