Fara í efni

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

47. fundur 19. maí 2026 kl. 10:00 - 11:00 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Fannar Þór Þorfinnsson byggingarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Fannar Þór Þorfinnsson Byggingarfulltrúi
Dagskrá

1.Hjallatangi 36, nýbygging

Málsnúmer 2602019Vakta málsnúmer

Sótt er um byggingarleyfi fyrir tæplega 243 fermetra íbúðarhúsi við Hjallatanga 36. Megin burðarvirkið er úr timbri, með umsókn fylgja aðaluppdrættir frá Plan teiknistofu dagsettum 09.02.2026.
Byggingaráform eru samþykkt.
Umsóknin fellur undir umfangsflokk 2.skv.grein 1.3.2 í byggingarreglugerð.
Byggingaráform eru í samræmi við gildandi deiliskipulag.
Byggingarleyfi verður veitt að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð nr 112/2012 með áorðnum breytingum.

2.Birkilundur 13, umsókn um viðbyggingu

Málsnúmer 2604028Vakta málsnúmer

Sótt er um leyfi fyrir 17,5 fermetra tengibyggingu milli frístundahúss og gestahúss. Meginburðarvirki er úr timbri á steyptum grunni. Með umsókn fylgja aðaluppdrættir frá Kvarða, dagsettir 12.04.2026.
Byggingaráform eru samþykkt.
Umsóknin fellur undir umfangsflokk 1.skv.grein 1.3.2 í byggingarreglugerð.
Byggingarheimild verður veitt að uppfylltum skilyrðum gr. 2.3.8 í byggingarreglugerð nr 112/2012 með áorðnum breytingum.

3.Ægisgata 1, fyrirspurn um sólskála

Málsnúmer 2601009Vakta málsnúmer

Á 46. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa var tekin fyrir umsókn um byggingu sólskála. Þar sem deiliskipulag lá ekki fyrir vísaði byggingarfulltrúi erindinu til skipulagsnefndar.

Á 39. fundi skipulagsnefndar heimilaði nefndin byggingu sólskála. Á 41. fundi bæjarráðs samþykkti bæjarráð að fyrirhuguð framkvæmd yrði grenndarkynnt og á 45. fundi bæjarstjórnar staðfesti bæjarstjórn afgreiðslu bæjarráðs.

Fyrirhuguð framkvæmd var grenndarkynnt frá 27. febrúar til 27. mars sl. í gegnum skipulagsgáttina, mál nr. 236/2026. Tvær umsagnir bárust og voru ekki gerðar athugasemdir við fyrirhugaða framkvæmd.

Byggingaráform eru samþykkt.
Umsóknin fellur undir umfangsflokk 1.skv.grein 1.3.2 í byggingarreglugerð.
Byggingarheimild verður veitt að uppfylltum skilyrðum gr. 2.3.8 í byggingarreglugerð nr 112/2012 með áorðnum breytingum.

4.Garðaflöt 6, stækkun á bílskúr

Málsnúmer 2605030Vakta málsnúmer

Sótt er um leyfi til að stækka bílskúr og byggja við hann gróðurhús. Meginburðarvirki er úr timbri, með glerþaki á gróðurhúsi. Undirstöður og gólfplata verða steypt. Með umsókn fylgja aðaluppdrættir frá Rerum ehf, dagsettir 29.04.2026.
Í ljósi þess að ekki liggur fyrir deiliskipulag á svæðinu vísar byggingarfulltrúi erindinu til skipulagsnefndar.

5.Fyrirspurn til skipulagsnefndar - Reitarvegur 10-12

Málsnúmer 2604011Vakta málsnúmer

Á 41. fundi skipulagsnefndar var samþykkt umsókn Skipavíkur um að rífa Reitarveg 10. Á 47. fundi bæjarstjórnar staðfesti bæjarstjórn afgreiðslu skipulagsnefndar.
Byggingaráform eru samþykkt.
Umsóknin fellur undir umfangsflokk 1.skv.grein 1.3.2 í byggingarreglugerð.
Byggingarheimild verður veitt að uppfylltum skilyrðum gr. 2.3.8 í byggingarreglugerð nr 112/2012 með áorðnum breytingum.

Fundi slitið - kl. 11:00.

Getum við bætt efni síðunnar?