Drónamyndir af Stykkishólmi
Málsnúmer 2606023
Vakta málsnúmerBæjarráð - 44. fundur - 16.06.2026
Þuríður Ragna Stefánsdóttir, skipulagsfulltrúi, kom inná fundinn.
Lögð fram tvö tilboð í nýjar drónamyndir af Stykkishólmi, m.a. fyrir vefsjá sveitarfélagsins. Skipulagsfulltrúi kemur til fundar við bæjarráð.
Bæjarráð samþykkir tilboð nr. 24 og felur Skipulagsfulltrúa að ganga frá staðfestingu við bjóðanda.
Þuríður vék af fundi.