Fara í efni

Bæjarráð

44. fundur 16. júní 2026 kl. 09:54 - 12:00 í bæjarráðssal
Nefndarmenn
  • Steinunn Ingibjörg Magnúsdóttir formaður
  • Sigurður Grétar Jónasson
  • Björn Ásgeir Sumarliðason (BÁS)
Starfsmenn
  • Jakob Björgvin Jakobsson bæjarstjóri
  • Gyða Steinsdóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Gyða Steinsdóttir Skrifstofu- og fjármálastjóri
Dagskrá

1.Skóla- og fræðslunefnd - 26

Málsnúmer 2606003FVakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð 26. fundar skóla- og fræðslunefndar.
Lagt fram til kynningar.

2.Skipulagsnefnd - 42

Málsnúmer 2606002FVakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð 42. fundar skipulagsnefndar.
Lagt fram til kynningar.

3.Fundargerðir - Samband íslenskra sveitarfélaga

4.Umsagnarbeiðni - Rekstrarleyfi fyrir kaffihús Icewear Stykkishólmi

Málsnúmer 2606033Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn Drífu ehf. um rekstrarleyfi til reksturs veitingastaðar í flokki II, kaffihús, sem rekið verður sem Icewear Stykkishólmi að Smiðjustíg 3, 340 Stykkishólmi.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við umbeðið rekstrarleyfi.

5.Erindi frá nemendum 4. bekkjar

Málsnúmer 2605014Vakta málsnúmer

Nemendnur 4. bekkjar komu til fundar við bæjarstjóra 13. maí 2026 og greindu frá hugmyndum sínum til framfara á skólalóð og öðrum tengdum málum. Lagt er fram erindi frá 4. bekk.
Bæjarráð þakkar nemendum 4. bekkjar fyrir innsent erindi.

Bæjarráð vísar tillögum 4. bekkjar hvað varðar skólalóð til umfjöllunar um endurskoðun fyrirliggjandi teikningum og hönnun á skólalóð Grunnskólans í Stykkishólmi. Bæjarráð felur bæjarstjóra að koma öðrum tillögum á framfæri við skólastjóra.

6.Tímabundna niðurfellingu á gatnagerðargjöldum

Málsnúmer 1911024Vakta málsnúmer

Lagt fram til umfjöllunar að nýju tillögu um tímabundna niðurfellingu á gatnagerðargjöldum.
Bæjarráð samþykkir að vegna sérstakra aðstæðna að veittur verði tímabundinn afsláttur (lækkun) skv. 6. gr. laga nr. 153/2006, sbr. og 6. gr. samþykkta um gatnagerðargjald í sveitarfélaginu, á gatnagerðargjöldum af byggingum íbúðarhúsnæðis. Skal umsækjandi greiða 100.000 kr. staðfestingargjald fyrir hverja lóð sem sótt er um og er staðfestingargjald óafturkræft verði umsækjanda úthlutað viðkomandi lóð.

Um er að ræða eftirtaldar lóðir:

Lóðir á 90% afslætti:
-Sundabakki 2
-Laufásvegur 19
-Hjallatangi 9
-Hjallatangi 15
-Hjallatangi 19

Lóðir á 25% afslætti:
-Hjallatangi 42

Bæjarráð vísar afgreiðslunni til staðfestingar í bæjarstjórn.

7.Heildarskipulag áningastaðar og útsýnissvæðis á Súgandisey

Málsnúmer 2004031Vakta málsnúmer

Lagður fram samningur við Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða ásamt tengdum gögnum vegna málsins.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirrita samning við Framkvæmdasjóð ferðamannastaða.

Bæjarráð samþykkir jafnframt að skoðað verði hvort mögulegt sé að breyta forsendum sem liggja að baki verkefninu, sér í lagi með tilliti til staðsetningar.
Steinunn I. Magnúsdóttir vék af fundi

8.Daddavík 6

Málsnúmer 2504010Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að lóðarleigusamningi ásamt merkjalýsingu og lóðarblaði fyrir Daddavík 6.
Bæjarráð samþykkir samninginn og vísar honum til staðfestingar í bæjarstjórn.
Steinunn kom aftur inná fund.

9.Vatnsás 18 - Golfvöllur - lóðarblað

Málsnúmer 1708012Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að lóðarleigusamningi ásamt merkjalýsingu og lóðarblaði fyrir Vatnsás 18.
Bæjarráð samþykkir samninginn og vísar honum til staðfestingar í bæjarstjórn.
Flosi mætti inná fundinn

10.Stefnumörkun um smölun búfjár

Málsnúmer 2606022Vakta málsnúmer

Lögð fram erindi um beiðni um smölun ágangsfjár ásamt öðrum gögnum sem tengjast málinu.
Bæjarráð samþykkir að tillögu að svari sveitarfélagsins við beiðni um smölun ágangsfjár.

Bæjarráð ítrekar jafnframt fyrri stefnumörkun sveitarfélagsins um að áður en sveitarfélagið grípur til smölunar ágangsfjár þurfi að liggja fyrir fullnægjandi upplýsingar um að um sé að ræða ágang á ræktarland í skilningi fjallskilasamþykktar, að viðeigandi ráðstafanir hafi verið gerðar gagnvart eiganda búfjár og að tilefni sé til að sveitarfélagið grípi til viðeigandi ráðstafana samkvæmt lögum. Verði slík gögn ekki lögð fram mun sveitarfélagið taka ákvörðun á grundvelli fyrirliggjandi upplýsinga.

Verði erindinu svarað og fullnægjandi upplýsingar lagðar fram sem sýna fram á að skilyrði laga, fjallskilasamþykktar og framangreindrar stefnumörkunar sveitarfélagsins séu uppfyllt mun sveitarfélagið grípa til viðeigandi ráðstafana. Við það mat verður m.a. litið til þess hvort um sé að ræða ræktarland, hvort hætta sé á tjóni eða tjón hafi orðið af völdum ágangsfjár, umfangs ágangsins og hversu brýnt sé að bregðast við. Við mat á því hvort fullnægjandi upplýsingar liggi fyrir verður meðal annars litið til þess hvort svör hafi borist við þeim atriðum sem sveitarfélagið hefur óskað eftir upplýsingum um.

Afgreiðsla þessi skal send landbúnaðarnefnd til umfjöllunar. Landbúnaðarnefnd er heimilt, á grundvelli fyrri umboðs bæjarráðs, að breyta kröfum og verklagsreglum í svari sveitarfélagsins vegna framkvæmdar þess eða samræmingar við önnur sveitarfélög innan fjallskilaumdæmisins. Slíkar breytingar skulu kynntar bæjarráði og gilda þar til annað verður ákveðið af bæjarráði eða bæjarstjórn.

Að lokum bendir bæjarráð á að umráðamanni lands er heimilt að ákveða að tiltekið og afmarkað landsvæði sé friðað svæði og er þá umgangur og beit búfjár þar bönnuð samkvæmt lögum nr. 38/2013, um búfjárhald.
Flosi vék af fundi.
Á fundinn komu Þóra Margrét Birgisdóttir, skólastjóri Grunnskólans í Stykkishólmi, og Magnús Ingi Bæringsson íþrótta- og tómstundafulltrúi.

11.Sátan - Rokkhátíð í Stykkishólmi

Málsnúmer 2305023Vakta málsnúmer

Lagður fram samningur sveitarfélagsins við Glapræði ehf. vegna Sátunnar árin 2025 og 2026. Magnús Ingi Bæringsson, Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi kemur til fundar við bæjarráð vegna málsins.
Bæjarráð lýsir ánægju með hvernig til tókst með hátíðina í ár og lýsir fyrir sitt leyti yfir vilja til áframhaldandi samstarfs. Bæjarráð leggur þó áherslu á mikilvægi þess að undirbúningur og samskipti við forstöðumenn þeirra stofnana sveitarfélagsins sem tengjast þeim mannvirkjum sem nýtt eru vegna hátíðarinnar fari fram með góðum fyrirvara.

Bæjarráð óskar eftir umsögn safna- og menningarmálanefndar um áframhaldandi samstarf sveitarfélagsins við forsvarsmenn hátíðarinnar vegna tónlistarhátíðarinnar Sátunnar.
Gestir véku af fundi
Þuríður Ragna Stefánsdóttir, skipulagsfulltrúi, kom inná fundinn.

12.Drónamyndir af Stykkishólmi

Málsnúmer 2606023Vakta málsnúmer

Lögð fram tvö tilboð í nýjar drónamyndir af Stykkishólmi, m.a. fyrir vefsjá sveitarfélagsins. Skipulagsfulltrúi kemur til fundar við bæjarráð.
Bæjarráð samþykkir tilboð nr. 24 og felur Skipulagsfulltrúa að ganga frá staðfestingu við bjóðanda.
Þuríður vék af fundi.

13.Samstarf sveitarfélagsins við Félag atvinnulífs í Stykkishólmi

Málsnúmer 2405005Vakta málsnúmer

Lögð fram tvö erindi frá Félagi atvinnulífs í Stykkishólmi.
Bæjarráð samþykkir að veita Dönskum dögum styrk að fjárhæð kr. 1.000.000, til viðbótar við vinnuframlag starfsfólks sveitarfélagsins samkvæmt venju. Jafnframt samþykkir bæjarráð að standa straum af kostnaði vegna sýningar Leikhópsins Lottu í Hólmgarðinum í tengslum við hátíðina, þannig að aðgangur verði öllum íbúum og gestum hátíðarinnar að kostnaðarlausu.

Bæjarráð óskar eftir því að fulltrúar Félags atvinnulífs í Stykkishólmi komi til fundar við bæjarráð til að ræða fyrirhugaðan samstarfssamning við félagið.
Þuríður Ragna Stefánsdóttir, skipulagsfulltrúi, kom inná fundinn.

14.Garðaflöt 6, stækkun á bílskúr

Málsnúmer 2605030Vakta málsnúmer

Sótt er um leyfi til að stækka bílskúr og að byggja við hann gróðurhús.



Í ljósi þess að ekki liggur fyrir deiliskipulag á svæðinu vísaði byggingarfulltrúi erindinu til skipulagsnefndar.



Skipulagsnefnd heimilaði, á 42. fundi sínum, stækkun á gróðurhúsi og bílskúr, en taldi að grenndarkynna skuli erindið fyrir Garðaflöt 4 og 8. Skipulagsnefnd fól skipulagsfulltrúa að kynna erindið fyrir Garðaflöt 4 og 8.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar.

15.Erindi vegna rangt skráðra eða óskráðra fasteigna

Málsnúmer 2606030Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi vegna ábendinga um óskráð mannvirki.



Skipulagsfulltrúi kynnti erindið á 42. fundi skipulagsnefndar. Skipulagsnefnd fól skipulagsfulltrúa í samstarfi við byggingarfulltrúa að skoða nánar skráningarmál eigna í sveitarfélaginu og setja í gang átak við óskráðar fasteignir.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar.

16.Nesvegur 18, viðbygging

Málsnúmer 2606021Vakta málsnúmer

Sótt er um að byggja við eignarhluta 0104 til norðurs. Stækkun um 38,4m2.



Byggingarfulltrúi vísaði erindinu til skipulagsnefndar þar sem farið er út fyrir byggingarreit skv. gildandi deiliskipulagi Hafnarsvæðis við Skipavík.



Skipulagsnefnd hafnaði erindinu, á 42. fundi sínum, þar sem breytingin samræmist ekki gildandi deiliskipulagi.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar og bendir á að sækja þarf um breytingu á deiliskipulagi til þess að áforminn nái fram að ganga.

17.Aðalgata 17

Málsnúmer 2508001Vakta málsnúmer

Lagðar fram fyrstu teikningar af húsi sem fyrirhugað er að byggja á lóðinni Aðalgata 17. Þar er gert ráð fyrir verslunarrými og kaffihúsi/Bistro á neðri hæð og gistirými á efri hæð.



Enn fremur er óskað eftir því að deiliskipulag Miðbæjar Stykkishólms verði skoðað með mögulegri breytingu.



Skipulagsfulltrúi kynnti erindið á 42. fundi nefndarinnar. Skipulagsnefnd samþykkti að láta vinna breytingu á deiliskipulagi Miðbæjar Stykkishólms og taldi breytinguna vera óverulega sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynna skal fyrir Aðalgötu 15 og 15 a og Laufásvegi 10 og 12.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar.
Þuríður vék af fundi.

18.Markmið skólastofnana á sviði næringar

Málsnúmer 2604007Vakta málsnúmer

Á 25. fundi skóla- og fræðslunefndar var tekið til umræðu markmið skólastofnana sveitarfélagsins á sviði næringar, en Grunnskólinn í Stykkishólmi er þátttakandi í verkefninu Heilsueflandi grunnskóli þar sem m.a. er lögð áhersla á að heildstæð markmið séu skilgreind á sviði næringar.



Bæjarstjórn unga fólksins tók málið einnig til umræðu á 3. fundi sínum og lagði fram ályktun sem skerpir á heilsueflandi áherslum.



Bæjarráð tók, á 43. fundi sínum, undir að full ástæða sé til að taka málefni mötuneyta skólastofnana sveitarfélagsins til heildstæðrar skoðunar, með það að markmiði að efla næringu og heilsusamlegt mataræði í samræmi við leiðbeiningar Embættis landlæknis um skólamötuneyti.



Bæjarráð lagði til við bæjarstjórn að í júní 2026 verði skipaður starfshópur með aðkomu utanaðkomandi fagaðila sem vinni með skólastofnunum og starfsfólki mötuneyta að heildstæðri skoðun og gerð tillagna með hliðsjón af framangreindum markmiðum.



Bæjarstjórn staðfesti á 47. fundi sínum afgreiðslu bæjarráðs.



Málið tekið að nýju fyrir á vettvangi bæjarráðs.
Bæjarráð leggur til að skipaðir verði eftirfarandi aðilar í starfshóp sveitarfélagsins: Formaður skólanefndar, skólastjórar leik- og grunnskóla, Gyða Steinsdóttir og Magnús Ingi Bæringsson. Óskað verði eftir að Sæþór H. Þorbergsson verði sem utanaðkomandi fagaðili. Formaður starfshópsins verði formaður skólanefndar.

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu í bæjarstjórn.
Á fundinn mættu Þóra Margrét Birgisdóttir, skólastjóri, Ragnar Ingi Sigurðsson, aðstoðarskólastjóri, og Íris Fönn Pálsdóttir, deildarstjóri stoðþjónustu, frá Grunnskólanum í Stykkishólmi, og Magnús Ingi Bæringsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi.

19.Beiðni Grunnskólans í Stykkishólmi um notkun á innilaug

Málsnúmer 2606035Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni Grunnskólans í Stykkishólmi um notkun á innilaug.
Skólastofnanir hafa forgang á íþróttamannvirkjum sveitarfélagsins, nema veigamiklar ástæður séu til annarrar notkunar. Að svo stöddu liggja þær ekki fyrir fundinum, en málið verður tekið til endurskoðunar komi þær fram. Bæjarráð felur bæjarstjóra í samráði við oddvita beggja lista að afla upplýsinga varðandi áhrif þessa á starfsemi bakdeildar, funda með aðilum og meta hvort veigamiklar ástæður séu fyrir hendi til að bakdeildin hljóti forgang á umrædda notkun innilaugar. Að öðrum kosti munu skólastofnanir njóta forgangs.
Gestirnir véku af fundi

Fundi slitið - kl. 12:00.

Getum við bætt efni síðunnar?