Ráðningarteymi
Málsnúmer 2608029
Vakta málsnúmerBæjarráð - 45. fundur - 20.08.2026
Lagt er til að sett verði á fót ráðningarteymi hjá Sveitarfélaginu Stykkishólmi sem hafi það hlutverk að rýna fyrirhugaðar ráðningar áður en ráðningarferli er hafið eða ráðning fer fram. Nefndin verði skipuð fjármála- og skrifstofustjóra, launafulltrúa og aðstoðarmanni bæjarstjóra.
Gert er ráð fyrir að allar ráðningar hjá sveitarfélaginu fari fyrir teymið, hvort sem um er að ræða ráðningu í starf sem þegar er gert ráð fyrir í launaáætlun, afleysingu vegna langtímaveikinda eða fæðingarorlofs eða aðra tímabundna eða ótímabundna ráðningu.
Viðkomandi stjórnandi eða forstöðumaður leggi fram beiðni um ráðningu, rökstyðji þörfina fyrir hana og geri eftir atvikum grein fyrir því hvort unnt sé að mæta þörfinni með breytingum á verkaskiptingu, tilfærslu verkefna eða annarri innri hagræðingu.

Allar fyrirhugaðar ráðningar skulu, að teknu tilliti til þeirra undantekninga sem kunna að verða skilgreindar í verklagi, fara fyrir ráðningarteymið áður en heimild er veitt til ráðningar. Aðkoma ráðningarteymisins lýkur þegar afstaða hefur verið tekin til beiðni um ráðningu og teymið kemur ekki að sjálfu ráðningarferlinu
eða vali á umsækjanda.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að útfæra nánar hlutverk, verklag og framkvæmd ráðningarteymisins á grundvelli framangreinds, án þess að það raski því ráðningarvaldi sem samkvæmt lögum, samþykktum og reglum sveitarfélagsins er falið einstökum stjórnendum.