Bæjarráð
1.Skipulagsnefnd - 43
Málsnúmer 2608001FVakta málsnúmer
2.Bréf til Drammen Kommune
Málsnúmer 2608020Vakta málsnúmer
3.Hvatning um að taka afstöðu til loðdýraræktar í aðalskipulagi
Málsnúmer 2608031Vakta málsnúmer
4.Milliuppgjör 2026
Málsnúmer 2608035Vakta málsnúmer
5.Niðurstöður grunnskólakönnunar Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar (ÍÆ) vorið 2026
Málsnúmer 2608027Vakta málsnúmer
6.Umsókn um námsstyrk
Málsnúmer 2608030Vakta málsnúmer
Bæjarráð felur skólastjóra að ganga frá skriflegum samningi við viðkomandi starfsmann í samræmi við reglurnar.
7.Umsókn um námsstyrk
Málsnúmer 2607002Vakta málsnúmer
Bæjarráð felur skólastjóra að ganga frá skriflegum samningi við viðkomandi starfsmann í samræmi við reglurnar.
8.Umsókn um námsstyrk
Málsnúmer 2608041Vakta málsnúmer
Bæjarráð felur skólastjóra að ganga frá skriflegum samningi við viðkomandi starfsmann í samræmi við reglurnar.
9.Nýrækt 14 - Lóðarleigusamningur
Málsnúmer 1906013Vakta málsnúmer
10.Víxil II SH158 - Forkaupsréttur
Málsnúmer 2607003Vakta málsnúmer
11.Umsóknir um tónlistanám utan lögheimilis
Málsnúmer 2406020Vakta málsnúmer
12.Tilnefning í skólanefnd Fjölbrautarskóla Snæfellinga
Málsnúmer 2206036Vakta málsnúmer
13.Fjallskil 2026
Málsnúmer 2608006Vakta málsnúmer
14.Kjörskrá vegna þjóðaratkvæðagreiðslu
Málsnúmer 2608014Vakta málsnúmer
15.Heildarskipulag áningastaðar og útsýnissvæðis á Súgandisey
Málsnúmer 2004031Vakta málsnúmer
16.Starfshópur vegna Aðalskipulags
Málsnúmer 2608019Vakta málsnúmer
Eftirtaldir eru skipaðir í starfshópinn:
Gunnar Ásgeirsson, fulltrúi H-lista (formaður)
Skarphéðinn Berg Steinarsson, fulltrúi Í-lista
Hilmar Hallvarðsson, formaður skipulagsnefndar
17.Stefnumörkun um smölun búfjár
Málsnúmer 2606022Vakta málsnúmer
Bæjarráð áréttar að með þessari afgreiðslu er ekki fullyrt að sauðfé hafi ekki farið inn á umrædd lönd á öðrum tímum, enda liggja fyrir tilkynningar og gögn þar að lútandi. Afgreiðslan byggir á þeim aðstæðum sem sveitarfélagið gat sjálft staðreynt við rannsókn málsins.
Berist nýjar beiðnir eða tilkynningar um ágangsfé verða þær teknar til meðferðar á grundvelli þeirra reglna sem gilda um smölun ágangsfjár, bæði í fjallskilasamþykkt sveitarfélagsins, stefnumótun sveitarfélagsins í málaflokknum og lögum nr. 6/1986, um afréttarmálefni fjallskil o.fl.
18.Markmið skólastofnana á sviði næringar
Málsnúmer 2604007Vakta málsnúmer
19.Icelandic Roots
Málsnúmer 2408022Vakta málsnúmer
20.Arnarborg - Yfirlýsing frá Skipavík
Málsnúmer 2608024Vakta málsnúmer
21.Siðareglur fyrir kjörna fulltrúa í Stykkishólmi
Málsnúmer 1810057Vakta málsnúmer
22.Berserkjahraun - Breyting á aðalskipulagi og gerð nýs deiliskipulags
Málsnúmer 2511001Vakta málsnúmer
Skipulagsnefnd samþykkti, á 43. fundi sínum, svör við umsögn Náttúruverndarstofnunar og uppfærðan texta í aðalskipulagsbreytingunni. Skipulagsnefnd lagði til við bæjarstjórn að samþykkja breytingu á aðalskipulagi Helgafellssveitar skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og að senda til Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar til staðfestingar.
23.Gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu - endurskoðun
Málsnúmer 2608007Vakta málsnúmer
Gjaldskráin var lögð fram á 43. fundi skipulagsnefndar.
24.Jónsnes - Fyrirspurn
Málsnúmer 2604010Vakta málsnúmer
Málið var lagt fram á 43. fundi skipulagsnefndar.
25.Ægisgata 6 - Gróðurhús - Grenndarkynning
Málsnúmer 2607005Vakta málsnúmer
Skipulagsnefnd heimilaði, á 43. fundi sínum, gróðurhús á lóðinni að undangenginni grenndarkynningu. Grenndarkynnt skal fyrir eigendum Tangagötu 7 og 9 og Ægisgötu 8.
26.Reitarvegur 8 - Fyrirspurn
Málsnúmer 2608005Vakta málsnúmer
Skipulagsnefnd tók, á 43. fundi sínum, jákvætt í að gerð verði íbúð í kjallara hússins. Kynna þarf erindið til allra meðeigenda á Reitarvegi 8 og þurfa allir að vera sammála um þessi byggingaráform.
Skipulagsnefnd taldi að gera þurfi breytingu á deiliskipulagi skv. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, ef meðeigendur eru sammála áformunum.
27.Birkilundur 17 - Umsókn um stöðuleyfi
Málsnúmer 2608017Vakta málsnúmer
Skipulagsnefnd samþykkti, á 43. fundi sínum, tímabundið stöðuleyfi fyrir gestahúsi og vísaði erindinu til byggingarfulltrúa sem veitir heimild fyrir stöðuleyfi.
28.Skúlagata 13
Málsnúmer 2608021Vakta málsnúmer
Skipulagsnefnd tók, á 43. fundi sínum, jákvætt í hugmyndir eigenda Skúlagötu 13 um enduruppbyggingu á lóðinni og fól skipulagsfulltrúa að vinna með eigendum um farsæla lausn á lóðinni.
29.Fundargerðir Breiðafjarðarnefndar
Málsnúmer 2005070Vakta málsnúmer
30.Undirgöng við Hamraenda samhliða framkvæmdum á Stykkishólmsvegi nr. 58
Málsnúmer 2608025Vakta málsnúmer
Skipulagsnefnd taldi, á 43. fundi sínum, mikilvægt að gæta að umferðaröryggi og hvetur Vegagerðina til að fara í þessa framkvæmd. Nefndin taldi að undirgöng séu öruggasta og hagkvæmasta lausnin og myndi tryggja samfellda og örugga tengingu á milli svæða, en báðu megin vegarins eru útivistarsvæði og vinnustaðir.
Bæjarráð telur mikilvægt að nýta það tækifæri sem felst í yfirstandandi framkvæmdum til að ráðast í þessa umferðaröryggisaðgerð og telur því nauðsynlegt að undirgöngin verði felld inn í yfirstandandi verk.
31.Ráðningarteymi
Málsnúmer 2608029Vakta málsnúmer
Gert er ráð fyrir að allar ráðningar hjá sveitarfélaginu fari fyrir teymið, hvort sem um er að ræða ráðningu í starf sem þegar er gert ráð fyrir í launaáætlun, afleysingu vegna langtímaveikinda eða fæðingarorlofs eða aðra tímabundna eða ótímabundna ráðningu.
Viðkomandi stjórnandi eða forstöðumaður leggi fram beiðni um ráðningu, rökstyðji þörfina fyrir hana og geri eftir atvikum grein fyrir því hvort unnt sé að mæta þörfinni með breytingum á verkaskiptingu, tilfærslu verkefna eða annarri innri hagræðingu.
Allar fyrirhugaðar ráðningar skulu, að teknu tilliti til þeirra undantekninga sem kunna að verða skilgreindar í verklagi, fara fyrir ráðningarteymið áður en heimild er veitt til ráðningar. Aðkoma ráðningarteymisins lýkur þegar afstaða hefur verið tekin til beiðni um ráðningu og teymið kemur ekki að sjálfu ráðningarferlinu
eða vali á umsækjanda.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að útfæra nánar hlutverk, verklag og framkvæmd ráðningarteymisins á grundvelli framangreinds, án þess að það raski því ráðningarvaldi sem samkvæmt lögum, samþykktum og reglum sveitarfélagsins er falið einstökum stjórnendum.
32.Umsagnarbeiðni - Rekstrarleyfi fyrir Skúrinn
Málsnúmer 2608032Vakta málsnúmer
33.Innkaupastefna sveitarfélagsins
Málsnúmer 2005079Vakta málsnúmer
34.Breiðafjarðarferjan Baldur
Málsnúmer 2011013Vakta málsnúmer
Bæjarráð leggur áherslu á að þær forsendur sem legið hafa til grundvallar notkun Baldurs sem varaskips fyrir Herjólf verði virtar og að sambærilegri ráðstöfun verði ekki beitt á ný nema þegar Herjólfur er óstarfhæfur eða í slipp. Reglubundnar og öflugar samgöngur yfir Breiðafjörð eru sameiginlegt hagsmunamál Vesturlands og Vestfjarða og skipta sköpum fyrir atvinnuuppbyggingu, þjónustu og byggðafestu á svæðinu.
Bæjarráð harmar það verulega tjón sem ákvörðunin um að taka Baldur úr reglubundnum siglingum um Breiðafjörð hefur haft í för með sér fyrir samfélögin við Breiðafjörð í sumar. Áhrifanna hefur gætt með beinum hætti í Stykkishólmi, ekki síst hjá fyrirtækjum í ferðaþjónustu og tengdum greinum á háannatíma, auk þess sem ákvörðunin hefur haft bein fjárhagsleg áhrif á sveitarfélagið. Áætlað beint tekjutap Hafnarsjóðs Stykkishólms vegna fjarveru Baldurs nemur um 3-4 m.kr., auk annarra beinna og óbeinna fjárhagslegra og samfélagslegra áhrifa sem enn hafa ekki verið metin að fullu.
Bæjarráð telur mikilvægt að heildarumfang þess tjóns sem samfélögin við Breiðafjörð urðu fyrir vegna ákvörðunar innviðaráðherra verði metið. Bæjarráð felur bæjarstjóra að óska eftir úttekt á beinum og óbeinum fjárhagslegum og samfélagslegum áhrifum ákvörðunarinnar, þar á meðal á Sveitarfélagið Stykkishólm, Hafnarsjóð Stykkishólms og atvinnulíf á svæðinu, og leggja niðurstöður úttektarinnar fyrir bæjarráð til frekari eftirfylgni.
Bæjarráð skorar jafnframt á innviðaráðuneytið að taka þátt í kostnaði sveitarfélaganna við Breiðafjörð við að meta heildarumfang þeirra áhrifa sem ákvörðunin hefur haft á samfélögin við Breiðafjörð.
35.Eineltisstefna Sveitarfélagsins Stykkishólms (EKKO)
Málsnúmer 2606032Vakta málsnúmer
36.Raforkuöryggi á Snæfellsnesi
Málsnúmer 2004021Vakta málsnúmer
Í umsögninni er m.a. lögð sérstök áhersla á að Snæfellsnes verði tilgreint sem áherslusvæði í 4. tölulið stefnunnar, ásamt Vestfjörðum og Norðausturlandi.
37.Útrás í Maðkavík - bótamál
Málsnúmer 2608033Vakta málsnúmer
Lögmenn sveitarfélagsins koma til fundar við bæjarráð og gera grein fyrir málinu og stöðu þess.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða málið frekar við forsvarsmenn Verkís og kanna hvort unnt sé að ná viðunandi sátt milli aðila.
38.Smábátadælustöð á Hafskipabryggju
Málsnúmer 2608034Vakta málsnúmer
Um er að ræða drög að fyrirkomulagi stöðvarinnar, með fyrirvara um endanlega staðsetningu eldsneytisgeymis, rafmagnskassa og afgreiðslutækis. Áður en endanlega verður gengið frá framkvæmdinni þarf jafnframt að afla umsagnar Heilbrigðiseftirlits og Slökkviliðs og annarra tilskilinna leyfa eftir því sem við á.
Samþykkið er með fyrirvara um endanlega útfærslu og staðsetningu eldsneytisgeymis, rafmagnskassa, afgreiðslutækis og lagna, sem verði ákveðin í samráði við sveitarfélagið og hafnarstjóra. Jafnframt er framkvæmdin háð umsögnum viðeigandi eftirlitsaðila og öðrum tilskildum leyfum.
Málinu er vísað til hafnarstjórnar til staðfestingar.
39.Framtíðaráform Vatnasafns
Málsnúmer 2010035Vakta málsnúmer
40.Breyting á samþykkt og reglum um kosningu í dreifbýlisráð
Málsnúmer 2608036Vakta málsnúmer
Núgildandi ákvæði samþykktar um stjórn sveitarfélagsins og reglur nr. 551/2023 um kosningu í dreifbýlisráð voru sett á árunum 2022 og 2023 og miðast að hluta við þáverandi laga- og reglugerðarumhverfi um framkvæmd kosninga og íbúakosninga sveitarfélaga. Frá þeim tíma hafa orðið breytingar á viðeigandi lögum og reglugerðum og því er jafnframt tilefni til að yfirfara og skýra ákvæði um framkvæmd kosningarinnar.
Lögð eru fram til fyrri umræðu drög að breytingu á 36. gr. samþykktar um stjórn sveitarfélagsins, nr. 1130/2022, ásamt drögum að nýjum reglum um kosningu í dreifbýlisráð sem leysa af hólmi reglur nr. 551/2023.
41.Danskir dagar 2026
Málsnúmer 2608037Vakta málsnúmer
Lagt er til að bæjarráð færi Félagi atvinnulífs í Stykkishólmi og Dönsku daga nefndinni sérstakar þakkir fyrir vel heppnaða hátíð og þá miklu vinnu sem lögð var í undirbúning og framkvæmd Danskra daga 2026.
42.Umhirða bæjarlandsins sumarið 2026
Málsnúmer 2608038Vakta málsnúmer
43.Beiðni Félags atvinnulífs í Stykkishólmi um aðkomu að atvinnu- og nýsköpunarnefnd
Málsnúmer 2608040Vakta málsnúmer
Bæjarráð bendir á að einstök félög og hagsmunasamtök eiga almennt ekki fasta áheyrnarfulltrúa í fastanefndum sveitarfélagsins. Þannig eiga önnur félög og hagsmunasamtök ekki slíka aðkomu þótt starfssvið viðkomandi nefnda tengist með beinum hætti starfsemi þeirra, svo sem UMF Snæfell, Hesteigendafélag Stykkishólms og Golfklúbburinn Mostri gagnvart æskulýðs- og íþróttanefnd og Bátafélagið Ægir gagnvart hafnarstjórn svo einhver dæmi séu tekin.
Bæjarráð telur þó rétt að fá nánari upplýsingar um þær fosendur sem liggja að baki beiðni FAS og býður stjórn félagsins til fundar sé vilji til þess af þeirra hálfu.
44.Fundaáætlun bæjarstjórnar og bæjarráðs
Málsnúmer 1912004Vakta málsnúmer
Fundi slitið - kl. 17:01.