Útrás í Maðkavík - bótamál
Málsnúmer 2608033
Vakta málsnúmerBæjarráð - 45. fundur - 20.08.2026
Á fundinn mæta Pétur Kristinsson og Kristinn Magnús Pétursson frá Málflutningssstofu Snæfellsness.
Lögð fram gögn sem varða skaðabótakröfu Sveitarfélagsins Stykkishólms á hendur Verkís hf. vegna hönnunar fráveituútrásar í Maðkavík, ásamt svari Verkís við kröfunni.
Lögmenn sveitarfélagsins koma til fundar við bæjarráð og gera grein fyrir málinu og stöðu þess.
Lögmenn sveitarfélagsins koma til fundar við bæjarráð og gera grein fyrir málinu og stöðu þess.
Bæjarráð telur mikilvægt að leitast verði við að finna farsæla niðurstöðu í málinu, sér í lagi með hliðsjón af áralangri viðskiptasögu sveitarfélagsins við Verkís.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða málið frekar við forsvarsmenn Verkís og kanna hvort unnt sé að ná viðunandi sátt milli aðila.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða málið frekar við forsvarsmenn Verkís og kanna hvort unnt sé að ná viðunandi sátt milli aðila.
Gestirnir véku af fundi.