Fara í efni

Smábátadælustöð á Hafskipabryggju

Málsnúmer 2608034

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 45. fundur - 20.08.2026

Lögð fram tillaga Atlantsolíu ehf., unnin af COWI, að fyrirkomulagi smábátadælustöðvar á Hafskipabryggju fyrir afgreiðslu bensíns og dísilolíu.



Um er að ræða drög að fyrirkomulagi stöðvarinnar, með fyrirvara um endanlega staðsetningu eldsneytisgeymis, rafmagnskassa og afgreiðslutækis. Áður en endanlega verður gengið frá framkvæmdinni þarf jafnframt að afla umsagnar Heilbrigðiseftirlits og Slökkviliðs og annarra tilskilinna leyfa eftir því sem við á.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti uppsetningu smábátadælustöðvar Atlantsolíu ehf. á Hafskipabryggju á grundvelli fyrirliggjandi tillögu og teikninga.

Samþykkið er með fyrirvara um endanlega útfærslu og staðsetningu eldsneytisgeymis, rafmagnskassa, afgreiðslutækis og lagna, sem verði ákveðin í samráði við sveitarfélagið og hafnarstjóra. Jafnframt er framkvæmdin háð umsögnum viðeigandi eftirlitsaðila og öðrum tilskildum leyfum.

Málinu er vísað til hafnarstjórnar til staðfestingar.
Getum við bætt efni síðunnar?