Fara í efni

Beiðni Félags atvinnulífs í Stykkishólmi um aðkomu að atvinnu- og nýsköpunarnefnd

Málsnúmer 2608040

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 45. fundur - 20.08.2026

Lagt fram erindi stjórnar Félags atvinnulífs í Stykkishólmi þar sem óskað er eftir föstu sæti með málfrelsi og tillögurétti í atvinnu- og nýsköpunarnefnd sveitarfélagsins.
Bæjarráð þakkar Félagi atvinnulífs í Stykkishólmi (FAS) fyrir erindið og tekur undir mikilvægi áframhaldandi góðs samráðs við atvinnulífið.

Bæjarráð bendir á að einstök félög og hagsmunasamtök eiga almennt ekki fasta áheyrnarfulltrúa í fastanefndum sveitarfélagsins. Þannig eiga önnur félög og hagsmunasamtök ekki slíka aðkomu þótt starfssvið viðkomandi nefnda tengist með beinum hætti starfsemi þeirra, svo sem UMF Snæfell, Hesteigendafélag Stykkishólms og Golfklúbburinn Mostri gagnvart æskulýðs- og íþróttanefnd og Bátafélagið Ægir gagnvart hafnarstjórn svo einhver dæmi séu tekin.

Bæjarráð telur þó rétt að fá nánari upplýsingar um þær fosendur sem liggja að baki beiðni FAS og býður stjórn félagsins til fundar sé vilji til þess af þeirra hálfu.
Getum við bætt efni síðunnar?