Fara í efni

Eyðing minks í íslenskri náttúru

Málsnúmer 2609015

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 46. fundur - 17.09.2026

Lögð fram tillaga til þingsályktunar um eyðingu minks í íslenskri náttúru, þar sem lagt er til að umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra verði falið að móta, í samráði við sveitarfélög og aðra hagaðila, stefnu og aðgerðaáætlun með það að markmiði að eyða mink í íslenskri náttúru, en í greinargerð með tillögunni er m.a. vísað til sérstaks tilraunaverkefnis sem fram fór á Snæfellsnesi og í Eyjafirði á árunum 2007?2009, þar sem markviss aukning veiðisóknar leiddi til verulegrar fækkunar minks, m.a. um 56% á Snæfellsnesi.
Bæjarráð tekur undir meginmarkmið þingsályktunartillögunnar um að mótuð verði stefna og aðgerðaáætlun með það að markmiði að eyða mink úr íslenskri náttúru. Bæjarráð telur mikilvægt að byggt verði á reynslu fyrri verkefna þar sem markviss aukning veiðisóknar leiddi til verulegrar fækkunar minks.

Bæjarráð lýsir jafnframt yfir vilja Sveitarfélagsins Stykkishólms til að taka þátt í þeirri stefnumótun og samráði sem fyrirhugað er og leggur áherslu á að tryggt verði nægjanlegt fjármagn og verkaskipting við framkvæmd verkefnisins.
Getum við bætt efni síðunnar?