Bæjarráð
1.Skóla- og fræðslunefnd - 27
Málsnúmer 2609004FVakta málsnúmer
2.Skipulagsnefnd - 44
Málsnúmer 2609003FVakta málsnúmer
3.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 50
Málsnúmer 2609002FVakta málsnúmer
4.Landbúnaðarnefnd - 5
Málsnúmer 2609001FVakta málsnúmer
5.Raforkuöryggi á Snæfellsnesi
Málsnúmer 2004021Vakta málsnúmer
6.Fundargerðir Breiðafjarðarnefndar
Málsnúmer 2005070Vakta málsnúmer
Bæjarráð minnir jafnframt á lögbundna skyldu Breiðafjarðarnefndar til að gæta samráðs við sveitarstjórnir og mikilvægi þess að sveitarfélög hafi greiðan aðgang að gögnum sem liggja til grundvallar vinnu nefndarinnar.
Bæjarráð óskar þess að umbeðin gögn verði afhent sveitarfélaginu án ástæðulauss dráttar.
7.Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2112008Vakta málsnúmer
8.Ágangur búfjár
Málsnúmer 2302001Vakta málsnúmer
9.Erindi frá VR, LÍV og fagfélögnum
Málsnúmer 2609012Vakta málsnúmer
10.Fjallskil 2026
Málsnúmer 2608006Vakta málsnúmer
Bæjarráð veitti landbúnaðarnefnd fullt og ótakmarkað umboð til ákvarðana er varða fjallskil og annað sem tengist réttum 2026.
Landbúnaðarnefnd tók fyrir fjallskil haustsins á 5. fundi sínum og deildi niður dagsverkum á fjáreigendur í sveitarfélaginsu. Miðað er við 18 kindur í dagsverki. Fyrri leit er laugardaginn 19. september og réttað í Arnarhólsrétt sunnudaginn 20. september. Seinni leit er laugardaginn 3. október og réttað sama dag.
11.Ósk um afstöðu sveitarfélagsins vegna aðgengis barns að íþróttastarfi UMF Snæfells
Málsnúmer 2608046Vakta málsnúmer
Bæjarráð felur æskulýðs- og íþróttanefnd jafnframt að fjalla um erindið með hliðsjón af framangreindu og markmiðum samstarfssamningsins og skila umsögn til bæjarráðs.
Að fengnum framangreindum umsögnum verði málið tekið að nýju til umfjöllunar í bæjarráði og eftir atvikum boðað til samráðsfundar ef tilefni er til.
12.Afsögn bæjarfulltrúa
Málsnúmer 2608050Vakta málsnúmer
13.Stofnun barnaverndarþjónustu Snæfellsness, Borgarbyggðar & Hvalfjarðarsveitar
Málsnúmer 2403002Vakta málsnúmer
14.Umsókn um námsstyrk
Málsnúmer 2609001Vakta málsnúmer
Bæjarráð felur skólastjóra að ganga frá skriflegum samningi við viðkomandi starfsmann í samræmi við reglurnar að framangreindum skilyrðum uppfylltum.
15.Umsókn um námsstyrk
Málsnúmer 2609020Vakta málsnúmer
Bæjarráð felur skólastjóra að ganga frá skriflegum samningi við viðkomandi starfsmann í samræmi við reglurnar, að framangreindum skilyrðum uppfylltum.
16.Minnisblað vegna skammtímadvalar í Holti
Málsnúmer 2609011Vakta málsnúmer
17.Stykkishólmur í sókn - Efling atvinnulífs í Stykkishólmi (þekkingarsetur)
Málsnúmer 2107012Vakta málsnúmer
Bæjarstjóra er jafnframt falið að vinna með SSV að nánari útfærslu og mögulegri fjármögnun undirbúningsvinnu næstu mánuði, þ.m.t. vegna rekstrar- og starfsáætlunar og fyrirkomulags starfseminnar.
18.Endurskoðun aðalskipulags
Málsnúmer 2206040Vakta málsnúmer
19.Samningur um nýtingu sjávargróðurs
Málsnúmer 1907015Vakta málsnúmer
20.Veiðistjórn grásleppu og fyrirkomulag hrognkelsaveiða
Málsnúmer 2005020Vakta málsnúmer
Drögin eru unnin í kjölfar setningar laga nr. 18/2026, um breytingu á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og lögum um stjórn fiskveiða (veiðistjórn grásleppu), sem tóku gildi 1. september sl. Með lagabreytingunni var horfið frá fyrirkomulagi aflahlutdeilda í grásleppu og aftur tekið upp fyrirkomulag sérstakra grásleppuveiðileyfa Fiskistofu.
Bæjarráð bendir jafnframt á að gögn Hafrannsóknastofnunar frá árunum 2025 og 2026 sýna að sókn og fjöldi neta minnkaði meðan aflamarkskerfið var við lýði. Stofnunin bendir einnig á að aflamarkskerfi geri bátum kleift að sækja heimilaðan afla með færri netum og að meðafli sé líklegur til að vera minni miðað við sama heildarafla.
Að því er varðar reglugerðardrögin tekur bæjarráð undir áhyggjur Hafrannsóknastofnunar af mögulegri aukinni sókn og meðafla við afturhvarf til sóknarstýringar og leggur áherslu á að tekið verði tillit til athugasemda stofnunarinnar við endanlega útfærslu reglugerðarinnar.
Bæjarráð samþykkir að afgreiðslan verði send atvinnuvegaráðuneytinu sem umsögn sveitarfélagsins um reglugerðardrögin.
21.Skógarstrandarvegur
Málsnúmer 1912009Vakta málsnúmer
Bæjarráð fagnar því að áframhaldandi uppbygging Skógarstrandarvegar hafi verið tryggð í samþykktri samgönguáætlun 2026?2040 og ítrekar mikilvægi þess að framkvæmdum verði fylgt eftir af krafti. Skógarstrandarvegur er stofnvegur og hluti grunnnets samgangna og hefur sveitarfélagið um árabil lagt þunga áherslu á uppbyggingu hans með vísan til umferðaröryggis, byggðaþróunar, atvinnulífs og þjónustu á svæðinu. Samþykkt samgönguáætlun gerir ráð fyrir áframhaldandi fjármögnun vegarins, bæði á fyrsta tímabili og síðari tímabilum áætlunarinnar.
Bæjarráð leggur sérstaka áherslu á að útboð vegna kaflans frá Stykkishólmsvegi að Svelgsá verði auglýst sem fyrst og að framkvæmdum verði hagað þannig að unnt verði að ljúka verkinu eigi síðar en vorið 2027, í samræmi við fyrri áform Vegagerðarinnar. Bæjarráð óskar jafnframt eftir að Vegagerðin skoði, í samráði við sveitarfélagið og eftir atvikum landeigendur, hvort unnt sé að koma fyrir tímabundinni hjáleið um sumarhúsasvæðið að Saurum á framkvæmdatíma.
Bæjarráð leggur jafnframt þunga áherslu á að undirbúningi áframhaldandi uppbyggingar vegarins frá Svelgsá verði hraðað, þar á meðal rannsóknum, valkostagreiningu og ákvörðun um framtíðarveglínu og þverun Álftafjarðar. Mikilvægt er að niðurstaða um nýja veglínu yfir Álftafjörð liggi fyrir eins fljótt og kostur þannig að unnt verði að hefja nauðsynlega skipulagsvinnu og tryggja samfellu í undirbúningi og framkvæmdum. Sveitarfélagið vinnur nú að nýju aðalskipulagi og því er sérstaklega brýnt að fyrir liggi framtíðarveglína yfir Álftafjörð svo unnt sé að samræma hana aðalskipulagi Sveitarfélagsins Stykkishólms og Dalabyggðar. Í því sambandi leggur bæjarráð áherslu á mikilvægi þess að um þessa vinnu ríki náið samráð Vegagerðarinnar og beggja sveitarfélaga sitthvorum megin Álftafjarðar.
22.Endurbygging Stykkishólmsvegar (58)
Málsnúmer 2602010Vakta málsnúmer
Bæjarráð fagnar því að framkvæmdir við endurbyggingu Stykkishólmsvegar séu hafnar og leggur áherslu á mikilvægi framkvæmdarinnar fyrir umferðaröryggi og bættar samgöngur til og frá Stykkishólmi.
Bæjarráð leggur áherslu á að samhliða framkvæmdinni verði ráðist í nauðsynlega færslu og frágang göngustíga beggja vegna Stykkishólmskirkjugarðs og gerðar viðeigandi ráðstafanir vegna þeirra breytinga sem framkvæmdin hefur í för með sér, þ.m.t. að Hannesarsteini verði fundinn viðeigandi staður við göngustíg í nágrenni við fyrri staðsetningu hans.
Bæjarráð leggur jafnframt sérstaka áherslu á að komið verði fyrir gönguröri undir Stykkishólmsveg til að tryggja örugga tengingu fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur milli útivistarsvæða beggja vegna vegarins. Þá óskar bæjarráð eftir því að sérstaklega verði skoðað að hækka veginn í brekkunni milli Vogsbotns og Ögursafleggjara, m.a. með hliðsjón af aðstæðum og umferðaröryggi á þessum kafla.
23.Miðbæjarskipulag Stykkishólms
Málsnúmer 2609013Vakta málsnúmer
Lagt er til að vinnuhópi verði falið að móta hugmyndir og tillögur að frekari þróun svæðisins, í samráði við viðkomandi fastanefndir, og leggja þær fyrir bæjarráð.
Bæjarráð samþykkir að skipaður verði þriggja manna vinnuhópur, einskonar spretthópur, sem falið verði að móta forsendur, hugmyndir og tillögur að uppbyggingu á svæðinu, með hliðsjón af meginmarkmiðum miðbæjarskipulags um að styrkja gamla bæjarkjarnann, styðja við þéttingu byggðar og tryggja að ný uppbygging falli vel að yfirbragði og byggðamynstri gamla bæjarins, jafnframt því sem hugað verði að gæðum almenningsrýma og mannlífi í miðbænum. Í hópnum sitji Gerður Kristjánsdóttir (formaður), Jón Ragnar Daðason og Björvin Ólafsson.
Við vinnu sína skal hópurinn leita samráðs við skipulagsnefnd, safna- og menningarmálanefnd og víðar eftir atvikum, þ.m.t. hjá félagasamtökum í sveitarfélaginu, og leggja niðurstöðu vinnunar að því loknu fyrir bæjarráð sem tekur ákvörðun um næstu skref málsins.
24.Deiliskipulag hafnarsvæðis við Stykkið
Málsnúmer 1604036Vakta málsnúmer
25.Víkurhverfi - heildstæð endurskoðun deiliskipulags
Málsnúmer 2111004Vakta málsnúmer
26.Lögheimilisskráning fasteignaeigenda í Stykkishólmi
Málsnúmer 2609014Vakta málsnúmer
Áður hefur sveitarfélagið beint sambærilegri hvatningu til eigenda íbúðarhúsnæðis í Stykkishólmi sem ekki áttu þar lögheimili.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að hún hvetji þá fasteignaeigendur sem eiga sitt annað heimili í Sveitarfélaginu Stykkishólmi, en eru skráðir með lögheimili annars staðar, til að skrá lögheimili sitt í sveitarfélaginu, en með því leggi þeir sitt af mörkum til að standa undir þeim innviðum og þeirri þjónustu sveitarfélagsins sem þeir nýta ásamt öðrum íbúum sveitarfélagsins og taki þannig virkari þátt í að viðhalda góðu þjónustustigi í samfélaginu.
27.Eyðing minks í íslenskri náttúru
Málsnúmer 2609015Vakta málsnúmer
Bæjarráð lýsir jafnframt yfir vilja Sveitarfélagsins Stykkishólms til að taka þátt í þeirri stefnumótun og samráði sem fyrirhugað er og leggur áherslu á að tryggt verði nægjanlegt fjármagn og verkaskipting við framkvæmd verkefnisins.
28.Refa- og minkaveiðar
Málsnúmer 2401025Vakta málsnúmer
Málið hefur áður verið til umfjöllunar í dreifbýlisráði og bæjarráði, m.a. með tilliti til samninga við veiðimenn og mögulegrar setningar reglna um refa- og minkaveiðar innan sveitarfélagsmarka.
Óskar Hjartarson, sem komið hefur að refa- og minkaveiðum í sveitarfélaginu, kemur til fundarins og gerir grein fyrir stöðu mála og reynslu af framkvæmd veiðanna.
29.Kosning í dreifbýlisráð
Málsnúmer 2608036Vakta málsnúmer
Tekin er til umræðu ákvörðun um kjördag vegna kosningar í dreifbýlisráð.
Bæjarráð leggur jafnframt til að bæjarstjóra verði falið að annast nauðsynlegar tilkynningar vegna kosningarinnar, þ.m.t. til kjörstjórnar og Þjóðskrár Íslands. Jafnframt verði því beint til kjörstjórnar að Félagsheimilið Skjöldur verði kjörstaður vegna kosningarinnar.
Kjörstjórn annist að öðru leyti undirbúning og framkvæmd kosningarinnar, þ.m.t. endanlega ákvörðun um kjörstað og opnunartíma, í samræmi við samþykkt um stjórn sveitarfélagsins, reglur um kosningu í dreifbýlisráð og reglugerð um íbúakosningar sveitarfélaga.
30.Atvinnustefna
Málsnúmer 2609016Vakta málsnúmer
31.Niðurstöður grunnskólakönnunar Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar (ÍÆ) vorið 2026
Málsnúmer 2608027Vakta málsnúmer
Bæjarráð vísaði, á 45. fundi sínum, málinu til umfjöllunar í skóla- og fræðslunefnd.
Skóla- og fræðslunefnd tók málið fyrir á 27. fundi sínum. Nefndin taldi heildarmyndina nokkuð jákvæða, sérstaklega hvað varðar skóla, vináttu, fjölskyldu- og öryggismál. Aftur á móti er andleg líðan nemenda, hreyfing og einelti þau atriði sem helst kalla á athygli. Nefndin taldi jafnframt mikilvægt að huga að áhrifum mikillar samfélagsmiðlanotkunar ungs fólks á líðan og félagsleg samskipti.
Nefndin hvatti skólastjórnendur til að rýna niðurstöður rannsóknar og nýta þær til að greina styrkleika og áskoranir í skólastarfinu og efla eftir atvikum aðgerðir sem stuðla að bættri líðan, öryggi og heilbrigðum lífsháttum nemenda.
Nefndin taldir mikilvægt að niðurstöður rannsóknarinnar verði hafðar til hliðsjónar við áframhaldandi þróun skóla- og forvarnarstarfs.
32.Bekkir í Stykkishólmi
Málsnúmer 2609003Vakta málsnúmer
Skipulagsfulltrúi lagði fram og kynnti tillögu að samantekt á 44. fundi skipulagsnefndar. Mælst er til þess að fínni bekkir verði í miðbænum og með u.þ.b. 150 metra á milli þeirra.
Skipulagsnefnd tók vel í verkefnið og lagði til að kynna það fyrir m.a. umhverfis-og náttúruverndarnefnd, ungmennaráði og öldungaráði.
33.Deiliskipulagsmál í sveitarfélaginu
Málsnúmer 2609008Vakta málsnúmer
Skipulagsfulltrúi kemur til fundar og gerir grein fyrir tillögum að þéttingarreitum í sveitarfélaginu.
34.Heimild til grenndarkynningar Víkurflöt 10
Málsnúmer 2609005Vakta málsnúmer
Skipulagsnefnd heimilaði, á 44. fundi sínum, byggingu geymsluskúrs á lóðinni að undangenginni grenndarkynningu. Grenndarkynna skal fyrir eigendum Garðaflatar 7 og 9 og Víkurflatar 8.
35.Fyrirspurn um byggingu frístundahús á jörðini Fjarðarhorni
Málsnúmer 2609007Vakta málsnúmer
Skipulagsnefnd tók, á 44. fundi sínum, jákvætt í áformin um að byggja frístundahús en sbr. 4.3.2.14. gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013 skal ekki reisa mannvirki nær vötnum, ám eða sjó en 50 metra. Enn fremur bendir nefndin á að óska þarf umsagnar Minjastofnunar Íslands og Náttúuverndarstofnunar.
36.Reitarvegur 8, Fyrirspurn til skipulags- og byggingarfulltrúa
Málsnúmer 2608005Vakta málsnúmer
Skipulagsnefnd samþykkti á 43. fundi sínum að kynna ætti áform um íbúð fyrir íbúum hússins og þurfa allir að vera sammála um byggingaráformin. Íbúar voru ekki sammála og höfnuðu áformunum. Að svo stöddu sá skipulagsnefnd sér ekki fært að samþykkja erindið.
37.Viðauki 2 við fjárhagsáætlun 2026-2029
Málsnúmer 2609017Vakta málsnúmer
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vekja athygli forstöðumanna á stöðu og horfum í rekstri sveitarfélagsins í ljósi áframhaldandi verðbólgu- og vaxtaþrýstings. Verðbólga hefur reynst þrálátari en áður var gert ráð fyrir, verðbólguvæntingar eru áfram yfir markmiði og vaxtastig hátt, sem kallar á áframhaldandi aðhald í rekstri.
Bæjarráð leggur því ríka áherslu á að rekstur stofnana og deilda haldist innan samþykktra fjárheimilda og minnir forstöðumenn á verklagsreglur sveitarfélagsins um viðauka við fjárhagsáætlun og tilfærslu fjárheimilda milli deilda.
38.Uppbygging hjúkrunarheimilis í Stykkishólmi
Málsnúmer 1909042Vakta málsnúmer
Áður en tekin verður afstaða til kröfunnar telur bæjarráð nauðsynlegt að fyrir liggi fullnægjandi og afstemmt uppgjör, þar sem gerð verði grein fyrir kostnaðarskiptingu, grundvelli 17% hlutdeildar sveitarfélagsins og þeim heimildum og samþykktum sem lágu til grundvallar breytingum á kostnaðar- og greiðsluáætlunum.
Jafnframt er óskað eftir breyttum greiðsluáætlunum og samþykki þeirra, samningi um fjármögnun og upplýsingagjöf sem gert var ráð fyrir í samkomulagi aðila frá 17. maí 2018 og skilamati framkvæmdarinnar. Þá er óskað eftir gögnum sem sýna með hvaða hætti kostnaðaraukar og breytingar á fjárhagslegum forsendum framkvæmdarinnar voru kynntar stýrihópi og sveitarfélaginu og eftir atvikum bornar undir sveitarfélagið til samþykktar, auk gagna um boðun og aðkomu fulltrúa sveitarfélagsins að verkfundum þar sem fjallað var um breytingar á verkinu og kostnaðarauka.
Bæjarráð tekur ekki afstöðu til greiðsluskyldu sveitarfélagsins vegna fyrirliggjandi kröfu fyrr en framangreind yfirferð hefur farið fram og upplýsingar liggja fyrir.
Bæjarráð felur bæjarstjóra og fjármála- og skrifstofustjóra að kalla eftir framangreindum gögnum svo hægt sé að greina. Að þeirri yfirferð lokinni verði haldinn fundur fulltrúa beggja aðila vegna málsins.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til umræðu og afgreiðslu.
39.Öryggismyndavélar við inn- og útkeyrsluleiðir (flóttaleiðir)
Málsnúmer 2609018Vakta málsnúmer
Bæjarráð felur bæjarstjóra til viðbótar við framangreint að rýna möguleika á að bæta við myndavélum sveitarfélagsins með áherslu á aukið eftirlit í bænum.
40.Heildarskipulag áningastaðar og útsýnissvæðis á Súgandisey
Málsnúmer 2004031Vakta málsnúmer
41.Deiliskipulag við Reitarveg - þróun svæðisins í ljósi fyrirhugaðrar uppbyggingar
Málsnúmer 2609019Vakta málsnúmer
42.Atvinnusvæði við Kallhamar
Málsnúmer 2206035Vakta málsnúmer
43.Forsendur fjárhagsáætlunar 2027-2030
Málsnúmer 2609021Vakta málsnúmer
44.Stórþörungarækt í sjó
Málsnúmer 2609022Vakta málsnúmer
Bæjarráð telur mikilvægt að skoðað verði hvernig ný lagaumgjörð um stórþörungarækt geti stutt við frekari atvinnu- og þekkingaruppbyggingu við Breiðafjörð, samhliða því að hugað verði að samspili lagasetningar og strandsvæðisskipulags. Jafnframt verði sérstaklega horft til þess hvort Breiðafjörður geti nýst sem tilrauna- og þekkingarsvæði við fyrstu innleiðingu laganna.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ljúka við umsögn sveitarfélagsins, í samráði við oddvita, á grundvelli framangreindra áherslna og umræðna á fundinum og senda hana til Atvinnuvegaráðuneytisins.
Fundi slitið.