Fara í efni

Öryggismyndavélar við inn- og útkeyrsluleiðir (flóttaleiðir)

Málsnúmer 2609018

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 46. fundur - 17.09.2026

Tekið er til umræðu á vettvangi bæjarráðs að nýju mikilvægi þess að koma upp öryggismyndavélum við inn- og útkeyrsluleiðir. Slíkar myndavélar hafa víða verið settar upp í samstarfi sveitarfélaga og lögreglu, þar sem lögregla hefur bent á umtalsvert forvarnargildi þeirra gagnvart brotastarfsemi og möguleika þeirra til að styðja rannsóknir, m.a. með númeralestri.
Bæjarráð bendir á að sveitarfélagið hafi ítrekað óskað eftir að sett verði upp öryggismyndavélar við flóttaleiðir í sveitarfélaginu og liggur fyrir staðsetining myndavéla eftir skoðun lögreglunnar og Neyðarlínunar á málinu á sínum tíma. Bæjarráð leggur því þunga áherslu á mikilvægi þess að vélarnar verði settar upp hið fyrsta.

Bæjarráð felur bæjarstjóra til viðbótar við framangreint að rýna möguleika á að bæta við myndavélum sveitarfélagsins með áherslu á aukið eftirlit í bænum.
Getum við bætt efni síðunnar?