Fara í efni

Deiliskipulag við Reitarveg - þróun svæðisins í ljósi fyrirhugaðrar uppbyggingar

Málsnúmer 2609019

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 46. fundur - 17.09.2026

Tekin til umræðu skipulagsmál við Reitarveg, fyrirhuguð uppbygging á svæðinu og möguleikar á heildstæðri endurskoðun gildandi deiliskipulags í ljósi áforma Skipavíkur ehf. um uppbyggingu við Reitarveg 10 og 12 og breytingu á gildandi deiliskipulagi. Í því samhengi er jafnframt vert að kanna framtíðaráform og afstöðu lóðarhafa við Reitarveg 14 og 16 og hvort áhugi sé á að skoða frekari möguleika á nýtingu og þróun lóða á þessum hluta Reitarvegar.
Bæjarráð samþykkir, í ljósi áforma Skipavíkur ehf. um uppbyggingu við Reitarveg 10 og 12, að óska eftir afstöðu lóðarhafa við Reitarveg 14 og 16 um hvort áhugi sé á að skoða frekari möguleika á nýtingu og þróun lóðanna á þessum hluta Reitarvegar, m.a. með hliðsjón af stærð framangreindra lóða. Komi fram vilji til að skoða málið áfram af þeirra hálfu verði í framhaldinu haft samráð við aðra lóðarhafa á svæðinu.
Getum við bætt efni síðunnar?