Fara í efni

Þjóðarsátt um verðstöðugleika

Málsnúmer 2609023

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn - 52. fundur - 01.10.2026

Lögð fram áskorun frá Starfsgreinasambandi Íslands og 18 aðildarfélögum þess um þjóðarsátt um verðstöðugleika.

SGS skorar á sveitarfélög landsins að taka þátt í sameiginlegu átaki til að ná niður verðbólgu og vöxtum og stuðla þannig að því að kjarasamningar haldi.



Óskað er eftir að áskorunin verði lögð fyrir bæjar-/sveitarstjórn og henni komið á framfæri við alla kjörna fulltrúa. Jafnframt óskar SGS eftir skriflegu svari sveitarfélagsins við erindinu.
Bæjarstjórn Stykkishólms þakkar Starfsgreinasambandi Íslands og aðildarfélögum þess fyrir erindið og tekur undir mikilvægi sameiginlegs átaks til að lækka verðbólgu og vexti, verja kaupmátt heimilanna og stuðla að því að gildandi kjarasamningar haldi.

Í samræmi við ályktun landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 25. september 2026 samþykkir bæjarstjórn að við gerð fjárhagsáætlunar og ákvörðun gjaldskráa fyrir árið 2027 verði hækkanir almennra gjaldskráa sveitarfélagsins að hámarki 2,5%.

Bæjarstjórn leggur áherslu á að árangur í baráttunni gegn verðbólgu krefjist samstilltra aðgerða ríkis, sveitarfélaga og atvinnulífs. Bæjarstjórn skorar því á ríkisvaldið og stofnanir þess að takmarka með sambærilegum hætti hækkanir gjaldskráa og álaga sem hafa bein áhrif á heimilin.

Samþykkt samhljóða.
Getum við bætt efni síðunnar?