Fara í efni

Bæjarstjórn

52. fundur 01. október 2026 kl. 17:00 í bæjarstjórnarsal
Nefndarmenn
  • Steinunn Ingibjörg Magnúsdóttir aðalmaður
  • Þórhildur Eyþórsdóttir aðalmaður
  • Björn Ásgeir Sumarliðason (BÁS) aðalmaður
  • Mattías Arnar Þorgrímsson aðalmaður
  • Rannveig Tenchi Ernudóttir aðalmaður
  • Kristján Hildibrandsson (KH) aðalmaður
  • Skarphéðinn Berg Steinarsson varamaður
Starfsmenn
  • Jakob Björgvin Jakobsson bæjarstjóri
  • Gyða Steinsdóttir
  • Jón Sindri Emilsson
Fundargerð ritaði: Gyða Steinsdóttir fjármála- og skrifstofustjóri
Dagskrá
Forseti setti fundinn og bauð fundargesti velkomna.

Forseti bar upp tillögu um að eftirfarandi mál verði tekið inn á dagskrá fundarins með afbrigðum:

- 2006058 - Skipan í ungmennaráð

1.Bæjarráð - 46

Málsnúmer 2609005FVakta málsnúmer

Lögð fram 46. fundargerð bæjarráðs.
Lagt fram til kynningar.

2.Skóla- og fræðslunefnd - 27

Málsnúmer 2609004FVakta málsnúmer

Lögð fram 27. fundargerð skóla- og fræðslunefndar.
Lagt fram til kynningar.

3.Skipulagsnefnd - 44

Málsnúmer 2609003FVakta málsnúmer

Lögð fram 44. fundargerð skipulagsnefndar.
Lagt fram til kynningar.

4.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 50

Málsnúmer 2609002FVakta málsnúmer

Lögð fram 50. fundargerð afgreiðslufunda byggingarfulltrúa.
Lagt fram til kynningar.

5.Landbúnaðarnefnd - 5

Málsnúmer 2609001FVakta málsnúmer

Lögð fram 5. fundargerð landbúnaðarnefndar.
Lagt fram til kynningar.

6.Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga

Málsnúmer 2112008Vakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga fá fundi nr. 1001.
Lagt fram til kynningar.

7.Skipan í farsældarráð

Málsnúmer 2601019Vakta málsnúmer

Fyrir liggur að skipa þarf fulltrúa sveitarfélagsins í farsældarráð.
Bæjarstjórn samþykkir að skipa Þórhildi Eyþórsdóttur sem aðalmann og Klaudiu Gunnarsdóttur sem varamann.

Samþykkt samhljóða.

8.Raforkuöryggi á Snæfellsnesi

Málsnúmer 2004021Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað um uppbyggingu flutningskerfis raforku á Snæfellsnesi.



Bæjarráð fagnaði, á 46. fundi sínum, þeirri uppbyggingu sem átt hefur sér stað á flutningskerfi raforku á Snæfellsnesi og þeirri vinnu sem hafin er við undirbúning Vegamótalínu 2. Bæjarráð lagði ríka áherslu á að Vegamótalína 2 verði tekin inn á framkvæmdaáætlun næstu kerfisáætlunar og að undirbúningi verkefnisins verði áfram fylgt eftir af fullum þunga, enda er tvítenging Snæfellsness við meginflutningskerfið mikilvæg forsenda fyrir auknu afhendingaröryggi, orkuskiptum og áframhaldandi uppbyggingu á svæðinu. Bæjarráð lagði jafnframt ríka áherslu á að Vegamótalína 2 verði rekin á fullum afköstum (132 kV spennu) frá upphafi, þannig að sú fjárfesting og flutningsgeta sem í framkvæmdinni felst nýtist sem best frá fyrsta degi.



Ályktun bæjarráðs er lögð fram til staðfestingar í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs.

9.Ágangur búfjár

Málsnúmer 2302001Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf ráðuneytisins til þeirra sveitarfélaga þar sem málefni búfjárbeitar og ágangur búfjár kunna að koma upp, ásamt afriti af bréfi sem ráðuneytið sendi sveitarfélögum í febrúar 2024.



Bæjarráð vísaði málinu, á 46. fundi sínum, til umfjöllunar í landbúnaðarnefnd og fól nefndinni að rýna möguleika á breyttri nálgun fyrir næsta sumar og leita í því sambandi samráðs við landeigendur, sauðfjárbændur og aðra hagaðila eftir því sem tilefni er til. Jafnframt var nefndinni falið að leita samráðs við önnur sveitarfélög innan fjallskilaumdæmis Snæfellinga um hvort tilefni sé til breytinga á fjallskilasamþykkt, með það að markmiði að skýra framkvæmd og stuðla að aukinni sátt um þessi málefni.
Lagt fram til kynningar.

10.Erindi frá VR, LÍV og fagfélögnum

Málsnúmer 2609012Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá VR, LÍV og fagfélögnum til bæjarstjórnar.



Bæjarráð þakkaði, á 46. fundi sínum, fyrir erindið og vísaði því til vinnslu við vinnu við fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árið 2027 og þriggja ára áætlunar áranna 2028-2030.
Bæjarstjórn Stykkishólms þakkar VR, LÍV og Fagfélögunum fyrir erindið og tekur undir mikilvægi sameiginlegs átaks til að lækka verðbólgu og vexti, verja kaupmátt heimilanna og stuðla að því að gildandi kjarasamningar haldi.

Í samræmi við ályktun landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 25. september 2026 samþykkir bæjarstjórn að við gerð fjárhagsáætlunar og ákvörðun gjaldskráa fyrir árið 2027 verði hækkanir almennra gjaldskráa sveitarfélagsins að hámarki 2,5%. Bæjarstjórn leggur áherslu á að árangur í baráttunni gegn verðbólgu krefjist samstilltra aðgerða ríkis, sveitarfélaga og atvinnulífs. Bæjarstjórn skorar því jafnframt á ríkisvaldið og stofnanir þess að sýna sambærilegt aðhald og endurskoða fyrirhugaðar hækkanir gjalda og álaga á heimilin. Áhrif gjaldskráa á barnafjölskyldur og fólks í viðkvæmri stöðu verða metin við gerð fjárhagsáætlunar sveitarfélagsins.

Bæjarstjórn bendir á að sveitarfélagið hafi á undanförnum árum unnið markvisst að auknu framboði íbúðarhúsnæðis með skipulagsvinnu, gatnagerð, auknu lóðaframboði og stuðningi við uppbyggingu almennra leiguíbúða. Árið 2024 undirritaði sveitarfélagið samkomulag við ríkið og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun um að skapa skilyrði fyrir uppbyggingu 60 íbúða á fimm árum. Í Víkurhverfi hafa nú verið byggðar 34 íbúðir, þar af 12 almennar leiguíbúðir á vegum Brákar íbúðafélags fyrir tekju- og eignaminni heimili, fjármagnaðar meðal annars með stofnframlögum ríkis og sveitarfélags. Þá hefur sveitarfélagið undirritað viljayfirlýsingu við Skipavík ehf. um fyrirhugaða uppbyggingu 14-28 íbúða í nýjum hluta Víkurhverfis á næstu árum. Bæjarstjórn leggur áherslu á að halda þessari vinnu áfram í samræmi við húsnæðisáætlun sveitarfélagsins og stuðla að fjölbreyttum húsnæðiskostum.

Hvað varðar bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla bendir bæjarstjórn á að í Stykkishólmi hafi verið boðið upp á leikskólavist frá 12 mánaða aldri síðan 2008 og að ekkert barn sé nú á biðlista eftir leikskólavist. Bæjarstjórn telur því, hvað Sveitarfélagið Stykkishólm varðar, að það þurfi að beina áskorun um frekari aðgerðir til að brúa þetta bil að ríkisvaldinu.

Samþykkt samhljóða.

11.Þjóðarsátt um verðstöðugleika

Málsnúmer 2609023Vakta málsnúmer

Lögð fram áskorun frá Starfsgreinasambandi Íslands og 18 aðildarfélögum þess um þjóðarsátt um verðstöðugleika.

SGS skorar á sveitarfélög landsins að taka þátt í sameiginlegu átaki til að ná niður verðbólgu og vöxtum og stuðla þannig að því að kjarasamningar haldi.



Óskað er eftir að áskorunin verði lögð fyrir bæjar-/sveitarstjórn og henni komið á framfæri við alla kjörna fulltrúa. Jafnframt óskar SGS eftir skriflegu svari sveitarfélagsins við erindinu.
Bæjarstjórn Stykkishólms þakkar Starfsgreinasambandi Íslands og aðildarfélögum þess fyrir erindið og tekur undir mikilvægi sameiginlegs átaks til að lækka verðbólgu og vexti, verja kaupmátt heimilanna og stuðla að því að gildandi kjarasamningar haldi.

Í samræmi við ályktun landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 25. september 2026 samþykkir bæjarstjórn að við gerð fjárhagsáætlunar og ákvörðun gjaldskráa fyrir árið 2027 verði hækkanir almennra gjaldskráa sveitarfélagsins að hámarki 2,5%.

Bæjarstjórn leggur áherslu á að árangur í baráttunni gegn verðbólgu krefjist samstilltra aðgerða ríkis, sveitarfélaga og atvinnulífs. Bæjarstjórn skorar því á ríkisvaldið og stofnanir þess að takmarka með sambærilegum hætti hækkanir gjaldskráa og álaga sem hafa bein áhrif á heimilin.

Samþykkt samhljóða.

12.Stofnun barnaverndarþjónustu Snæfellsness, Borgarbyggðar & Hvalfjarðarsveitar

Málsnúmer 2403002Vakta málsnúmer

Lagður fram samningur aðildarsveitarfélaga að byggðasamlaginu Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga (FSS) um aðild að Barnaverndarþjónustu Vesturlands.



Bæjarráð samþykkti samninginn, á 46.fundi sínum, og vísaði honum til staðfestingar í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs.

Samþykkt samhljóða.

13.Minnisblað vegna skammtímadvalar í Holti

Málsnúmer 2609011Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað vegna skammtímadvalar í Holti og minnisblað vegna kostnaðarskiptingar sveitarfélaganna á Vesturlandi vegna skammtímadvalar í Holti.



Bæjarráð samþykkti þátttöku sveitarfélagsins í verkefninu á 46. fundi sínum.



Afgreiðsla bæjarráðs er lögð fram til staðfestingar í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs.

Samþykkt samhljóða.

14.Skógarstrandarvegur

Málsnúmer 1912009Vakta málsnúmer

Á 46. fundi bæjarráðs var staða uppbyggingar Skógarstrandarvegar tekin til umræðu í ljósi samþykktrar samgönguáætlunar fyrir árin 2026-2040, þar sem gert er ráð fyrir áframhaldandi uppbyggingu vegarins. Sérstaklega ver farið yfir stöðu undirbúnings vegna þverunar Álftafjarðar, þ.m.t. fyrirliggjandi valkosti um veglínu og næstu skref við undirbúning framkvæmdarinnar.



Bæjarráð fagnaði því að áframhaldandi uppbygging Skógarstrandarvegar hafi verið tryggð í samþykktri samgönguáætlun 2026-2040 og ítrekaði mikilvægi þess að framkvæmdum verði fylgt eftir af krafti. Skógarstrandarvegur er stofnvegur og hluti grunnnets samgangna og hefur sveitarfélagið um árabil lagt þunga áherslu á uppbyggingu hans með vísan til umferðaröryggis, byggðaþróunar, atvinnulífs og þjónustu á svæðinu. Samþykkt samgönguáætlun gerir ráð fyrir áframhaldandi fjármögnun vegarins, bæði á fyrsta tímabili og síðari tímabilum áætlunarinnar.



Bæjarráð lagði sérstaka áherslu á að útboð vegna kaflans frá Stykkishólmsvegi að Svelgsá verði auglýst sem fyrst og að framkvæmdum verði hagað þannig að unnt verði að ljúka verkinu eigi síðar en vorið 2027, í samræmi við fyrri áform Vegagerðarinnar. Bæjarráð óskaði jafnframt eftir að Vegagerðin skoði, í samráði við sveitarfélagið og eftir atvikum landeigendur, hvort unnt sé að koma fyrir tímabundinni hjáleið um sumarhúsasvæðið að Saurum á framkvæmdatíma.



Bæjarráð lagði jafnframt þunga áherslu á að undirbúningi áframhaldandi uppbyggingar vegarins frá Svelgsá verði hraðað, þar á meðal rannsóknum, valkostagreiningu og ákvörðun um framtíðarveglínu og þverun Álftafjarðar. Mikilvægt er að niðurstaða um nýja veglínu yfir Álftafjörð liggi fyrir eins fljótt og kostur þannig að unnt verði að hefja nauðsynlega skipulagsvinnu og tryggja samfellu í undirbúningi og framkvæmdum. Sveitarfélagið vinnur nú að nýju aðalskipulagi og því er sérstaklega brýnt að fyrir liggi framtíðarveglína yfir Álftafjörð svo unnt sé að samræma hana aðalskipulagi Sveitarfélagsins Stykkishólms og Dalabyggðar. Í því sambandi lagði bæjarráð áherslu á mikilvægi þess að um þessa vinnu ríki náið samráð Vegagerðarinnar og beggja sveitarfélaga sitthvorum megin Álftafjarðar.



Ályktun bæjarráðs er lögð fram til staðfestingar í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn staðfestir ályktun bæjarráðs.

Bæjarstjórn felur bæjarstjóra að koma ályktuninni á framfæri við innviðaráðherra, þingmenn Norðvesturkjördæmis og Vegagerðina.

Samþykkt samhljóða.

15.Deiliskipulag hafnarsvæðis

Málsnúmer 1604036Vakta málsnúmer

Lagt er til að hafin verði vinna við deiliskipulag á hafnarsvæði til að bæta nýtingu, skipulag og skapa tækifæri til uppbyggingar í samvinnu skipulagsnefndar, atvinnu- og nýsköpunarnefndar og hafnarstjórnar og að skipaður verði starfshópur vegna þeirra vinnu sem vinni með skipulagsfulltrúa að tillögu að nýju deiliskipulagi.



Bæjarráð samþykkti tillöguna, á 46. fundi sínum, og lagði til við bæjarstjórn að skipaður verði starfshópur vegna þeirra vinnu sem vinni með skipulagsfulltrúa að tillögu að nýju deiliskipulagi.



Afgreiðsla bæjarráðs er lögð fram til staðfestingar í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs og að í stafshópinn verði skipaðir eftirtaldir:

Formaður hafnarstjórnar
Formaður atvinnu- og nýsköpunarnefndar
Formaður skipulagsnefndar
Fulltrúi tilnefndur af oddvita Í-lista
Fulltrúi tilnefndur af oddvita H-lista

Til máls tóku: SBS, JBSJ, KH, SIM.

Samþykkt með 4 atkvæðum fulltrúa H- lista. Þrír fulltrúar Í-lista sátu hjá.

16.Víkurhverfi - heildstæð endurskoðun deiliskipulags

Málsnúmer 2111004Vakta málsnúmer

Lagt er til að skipulagsnefnd verði falið, í samvinnu við skipulagsfulltrúa og skipulagshönnuð, að hefja heildstæða yfirferð og endurskoðun á deiliskipulagi Víkurhverfis fyrir svæðið norðaustan Borgarbrautar. Markmiðið verði að samræma skipulag svæðisins og heimfæra yfir hverfið í heild þær áherslur sem mótaðar hafa verið með síðari breytingum á deiliskipulagi Víkurhverfis, þannig að svæðið myndi eina samfellda skipulagslega heild. Við vinnuna verði m.a. horft til byggðamynsturs og heildaryfirbragðs, fjölbreytni í húsagerðum og íbúðastærðum, hagkvæmrar landnýtingar og þéttingar byggðar, götumyndar, umferðaröryggis, göngu- og stígatenginga, grænna svæða og gæða almenningsrýma. Jafnframt verði tekið mið af þeirri uppbyggingu sem þegar hefur átt sér stað eða verið heimiluð á svæðinu og horft til samræmis við áframhaldandi uppbyggingu Víkurhverfis vestan Borgarbrautar.



Bæjarráð samþykkti, á 46. fundi sínum, að skipulagsnefnd verði falið, í samvinnu við skipulagsfulltrúa og skipulagshönnuð, að hefja heildstæða yfirferð og endurskoðun á deiliskipulagi Víkurhverfis fyrir svæðið norðaustan Borgarbrautar.



Afgreiðsla bæjarráðs er lögð fram til staðfestingar í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs.

Samþykkt samhljóða.

Til máls tóku: KH, SIM,

17.Lögheimilisskráning fasteignaeigenda í Stykkishólmi

Málsnúmer 2609014Vakta málsnúmer

Á 46. fundi bæjarráðs var staða lögheimilisskráningar í íbúðarhúsnæði í sveitarfélaginu þar sem enginn einstaklingur er skráður með lögheimili tekið til umræðu með það markmiði að greina möguleika á að hvetja viðkomandi fasteignaeigendur til að skrá lögheimili sitt í sveitarfélaginu, enda megi ætla að framangreindir eigendur íbúðarhúsnæðis í sveitarfélaginu nýti með ýmsum hætti þá innviði og þjónustu sem sveitarfélagið stendur að og vilji leggja sitt af mörkum til að standa undir þeirri þjónustu og viðhalda góðu þjónustustigi í samfélaginu.



Áður hefur sveitarfélagið beint sambærilegri hvatningu til eigenda íbúðarhúsnæðis í Stykkishólmi sem ekki áttu þar lögheimili.



Bæjarráð fól bæjarstjóra, á 46. fundi sínum, að láta taka saman uppfærðar upplýsingar um fjölda íbúðarhúsnæða í sveitarfélaginu þar sem enginn einstaklingur er skráður með lögheimili og vinna drög að bréfi til viðkomandi fasteignaeigenda sem og atvinnurekenda.



Bæjarráð lagði til við bæjarstjórn að hún hvetji þá fasteignaeigendur sem eiga sitt annað heimili í Sveitarfélaginu Stykkishólmi, en eru skráðir með lögheimili annars staðar, til að skrá lögheimili sitt í sveitarfélaginu, en með því leggi þeir sitt af mörkum til að standa undir þeim innviðum og þeirri þjónustu sveitarfélagsins sem þeir nýta ásamt öðrum íbúum sveitarfélagsins og taki þannig virkari þátt í að viðhalda góðu þjónustustigi í samfélaginu.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs.

Samþykkt samhljóða.

18.Kosningu í dreifbýlisráð

Málsnúmer 2608036Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur frá innviðaráðuneytinu þar sem fram kemur að breyting á samþykkt um stjórn Sveitarfélagsins Stykkishólms birtist í B-deild Stjórnartíðinda 29. september. Sama dag voru jafnframt birtar nýjar reglur sveitarfélagsins um kosningu í dreifbýlisráð.



Á 46. fundi bæjarráðs var tekin til umræðu ákvörðun um kjördag vegna kosningar í dreifbýlisráð.



Bæjarráð lagði til við bæjarstjórn að boðað verði til beinnar kosningar tveggja aðalmanna og tveggja varamanna í dreifbýlisráð Sveitarfélagsins Stykkishólms og að kjördagur verði laugardaginn 7. nóvember 2026.



Bæjarráð lagði jafnframt til að bæjarstjóra verði falið að annast nauðsynlegar tilkynningar vegna kosningarinnar, þ.m.t. til kjörstjórnar og Þjóðskrár Íslands. Jafnframt verði því beint til kjörstjórnar að Félagsheimilið Skjöldur verði kjörstaður vegna kosningarinnar.



Kjörstjórn annist að öðru leyti undirbúning og framkvæmd kosningarinnar, þ.m.t. endanlega ákvörðun um kjörstað og opnunartíma, í samræmi við samþykkt um stjórn sveitarfélagsins, reglur um kosningu í dreifbýlisráð og reglugerð um íbúakosningar sveitarfélaga.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs.

Samþykkt samhljóða.

19.Heimild til grenndarkynningar Víkurflöt 10

Málsnúmer 2609005Vakta málsnúmer

Óskað er eftir heimild til að grenndarkynna byggingu 12 fermetra geymsluskúrs á lóðinni. Óskað er eftir að kynna fyrir eigendum Garðaflatar 7 og 9 og Víkurflatar 8.



Skipulagsnefnd heimilaði, á 44. fundi sínum, byggingu geymsluskúrs á lóðinni að undangenginni grenndarkynningu. Grenndarkynna skal fyrir eigendum Garðaflatar 7 og 9 og Víkurflatar 8.



Bæjarráð staðfesti, á 46. fundi sínum, afgreiðslu skipulagsnefndar.



Afgreiðsla bæjarráðs er lögð fram til staðfestingar í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs.

Samþykkt samhljóða.

20.Viðauki 2 við fjárhagsáætlun 2026-2029

Málsnúmer 2609017Vakta málsnúmer

Lagður fram viðauki 2 við fjárhagsáætlun 2026-2029.



Bæjarráð samþykkti, á 46. fundi sínum, viðauka 2 við fjárhagsáætlun 2026-2029 og lagði til við bæjarstjórn að samþykkja hann.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu bæjarráðs um að samþykkja viðauka 2 við fjárhagsáætlun 2026-2029.

Samþykkt samhljóða.

21.Uppbygging hjúkrunarheimilis í Stykkishólmi

Málsnúmer 1909042Vakta málsnúmer

Lögð fram gögn og upplýsingar vegna uppgjörs á framkvæmdum við hjúkrunarheimili í Stykkishólmi.



Bæjarráð lýsti, á 46. fundi sínum, verulegum áhyggjum af stöðu uppgjörs framkvæmdarinnar og þeirri umtalsverðu viðbótarkröfu sem nú er gerð á sveitarfélagið, löngu eftir að framkvæmdum lauk. Samkvæmt upplýsingum Framkvæmdasýslunnar/Ríkiseigna í árslok 2022 var hlutdeild sveitarfélagsins vegna hjúkrunarheimilishlutans metin um 104 m.kr., en fyrirliggjandi uppgjörsgögn gera nú ráð fyrir verulega hærri hlutdeild. Þá var á þeim tíma gert ráð fyrir að endanlegt uppgjör verkefnisins færi fram á árinu 2023.



Áður en tekin verður afstaða til kröfunnar telur bæjarráð nauðsynlegt að fyrir liggi fullnægjandi og afstemmt uppgjör, þar sem gerð verði grein fyrir kostnaðarskiptingu, grundvelli 17% hlutdeildar sveitarfélagsins og þeim heimildum og samþykktum sem lágu til grundvallar breytingum á kostnaðar- og greiðsluáætlunum.



Jafnframt er óskað eftir breyttum greiðsluáætlunum og samþykki þeirra, samningi um fjármögnun og upplýsingagjöf sem gert var ráð fyrir í samkomulagi aðila frá 17. maí 2018 og skilamati framkvæmdarinnar. Þá er óskað eftir gögnum sem sýna með hvaða hætti kostnaðaraukar og breytingar á fjárhagslegum forsendum framkvæmdarinnar voru kynntar stýrihópi og sveitarfélaginu og eftir atvikum bornar undir sveitarfélagið til samþykktar, auk gagna um boðun og aðkomu fulltrúa sveitarfélagsins að verkfundum þar sem fjallað var um breytingar á verkinu og kostnaðarauka.



Bæjarráð tekur ekki afstöðu til greiðsluskyldu sveitarfélagsins vegna fyrirliggjandi kröfu fyrr en framangreind yfirferð hefur farið fram og upplýsingar liggja fyrir.



Bæjarráð fól bæjarstjóra og fjármála- og skrifstofustjóra að kalla eftir framangreindum gögnum svo hægt sé að greina. Að þeirri yfirferð lokinni verði haldinn fundur fulltrúa beggja aðila vegna málsins.



Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til umræðu og afgreiðslu.
Bæjarstjórn Stykkishólms lýsir verulegum áhyggjum af því hversu lengi hefur dregist að ljúka endanlegu uppgjöri vegna framkvæmda við hjúkrunarheimilið í Stykkishólmi og þeirri umtalsverðu viðbótarkröfu sem nú er gerð á sveitarfélagið, löngu eftir að framkvæmdum lauk.

Bæjarstjórn telur að gera verði ríkar kröfur til ríkisstofnana sem fara með umsjón slíkra framkvæmda um reglubundna upplýsingagjöf um þróun kostnaðar, breytingar á fjárhagslegum forsendum og fjárhagslegum skuldbindingum, í samræmi við lög og reglur um opinberar framkvæmdir. Þá samþykkti sveitarfélagið árið 2021 tilteknar forsendur fyrir verkefnið og kostnaðarþátttöku, en fyrirliggjandi uppgjör gerir nú ráð fyrir verulega hærri hlutdeild sveitarfélagsins.

Bæjarstjórn leggur áherslu á að við endanlegt uppgjör verði gerður greinarmunur á kostnaði sem tilheyrir uppbyggingu hjúkrunarheimilisins og öðrum kostnaði vegna viðhalds og endurbóta á húsnæðinu. Fyrirliggjandi gögn benda til þess að umtalsverður hluti kostnaðar við framkvæmdina hafi lotið að viðhaldi og endurbótum á húsnæðinu fremur en sjálfri uppbyggingu hjúkrunarheimilisins. Þá leggur bæjarstjórn sérstaka áherslu á að kostnaðarhlutdeild verði ekki lögð á sveitarfélagið nema fyrir liggi að viðkomandi kostnaður falli undir skuldbindingar þess og að til hans hafi verið stofnað á grundvelli viðeigandi heimilda og samþykkta af hálfu sveitarfélagsins.

Bæjarstjórn beinir því til Framkvæmdasýslunnar - Ríkiseigna að taka uppgjörið til heildstæðrar yfirferðar í samráði við sveitarfélagið og vinna að málefnalegri og sanngjarnri niðurstöðu.

Bæjarstjórn samþykkir að senda Framkvæmdasýslunni - Ríkiseignum og viðkomandi ráðherra ályktun bæjarstjórnar.


Til máls tóku SBS, BÁS, JBSJ.

Samþykkt samhljóða.


22.Erindi frá Aftanskin

Málsnúmer 2609026Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Aftanskin, félagi eldri borgara í Stykkishólmi, þar sem félagið lýsir áhyggjum vegna stöðu húsnæðismála aldraðara í sveitarfélaginu.
Bæjarstjórn þakkar Aftanskin, félagi eldri borgara í Stykkishólmi, fyrir erindið. Bæjarstjórn bendir á mikilvægi áframhaldandi uppbyggingar og þróunar Höfðaborgar í samræmi við stefnumörkun sveitarfélagsins, meðal annars með fjölgun íbúða fyrir eldra fólk. Jafnframt leggur bæjarstjórn áherslu á að húsnæðisúrræði mæti fjölbreyttum þörfum eldra fólks og stuðli að öryggi, félagslegum tengslum og virkni.

Bæjarstjórn vísar málinu til nánari umfjöllunar í bæjarráði og eftir atvikum öðrum fastanefndum sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða.

Til máls tók RTE.

23.Skipan í ungmennaráð

Málsnúmer 2006058Vakta málsnúmer

Lagðar fram tillögur til samþykktar í ungmennaráð 2026-2027.
Framlagðar tillögur:

Æskulýðs- og Íþróttanefnd:
Aðalmaður Hera Guðrún Ragnarsdóttir

Fjölbrautaskóli Snæfellinga:
Aðalmaður Ragnheiður Emma Einarsdóttir
Aðalmaður Igor Mikolaj Kowalski
Varamaður Kristjana Ósk Steindórsdóttir

UMF Snæfell
Aðalmaður Katrín Mjöll Magnúsdóttir
Aðalmaður Adda Sigríður Ásmundsdóttir
Varamaður Þorvarður Daníel Einarsson

Grunnskólinn í Stykkishólmi:
Aðalmaður Jón Dagur Jónsson
Aðalmaður Hákon Hólmgeirsson
Varamaður Ylfa Jónsdóttir

Bæjarstjórn samþykkir framlagðar tillögur.

Samþykkt samhljóða.

24.Fækkun lögregluembætta

Málsnúmer 2609027Vakta málsnúmer

Lögð fram áform dómsmálaráðherra um fyrirhugaðar breytingar á skipulagi lögreglu. Áformin fela í sér fækkun lögregluembætta úr níu í þrjú, þar sem embætti lögreglustjórans á Vesturlandi verði sameinað embættunum á Vestfjörðum, Norðurlandi vestra og Norðurlandi eystra.



Samkvæmt kynningu ráðuneytisins er breytingunum ætlað að efla löggæslu og sérhæfingu, halda fjölda starfsstöðva óbreyttum og tryggja nálægð við ákvarðanatöku með aðstoðarlögreglustjórum.



Málið er lagt fram til umfjöllunar vegna þeirra hagsmuna sem undir eru og í ljósi þess að mikilvægt er að afla frekari upplýsinga um áhrif á Vesturlandi með áherslu á þjónustu í sveitarfélaginu og nærliggjandi svæðum.
Bæjarstjórn Stykkishólms leggur áherslu á mikilvægi embættis lögreglustjórans á Vesturlandi og þeirrar þjónustu sem lögreglan veitir íbúum, atvinnulífi og gestum svæðisins.

Bæjarstjórn tekur undir markmið um að efla löggæslu og sérhæfingu lögreglunnar og leggur áherslu á að fyrirhugaðar skipulagsbreytingar verði metnar ítarlega með tilliti til áhrifa á þjónustu í Stykkishólmi og á Vesturlandi.

Bæjarstjórn felur bæjarstjóra að afla nánari upplýsinga um málið og eiga samráð við Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi í því sambandi. Bæjarstjóri leggi fyrir bæjarráð minnisblað um stöðu áformanna, möguleg áhrif þeirra á þjónustu og öryggi á svæðinu og tillögur að frekari viðbrögðum sveitarfélagsins, eftir því sem tilefni er til.

Samþykkt samhljóða.

25.Afsögn bæjarfulltrúa

Málsnúmer 2608050Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi þar sem Ólöf Inga Stefánsdóttir segir af sér sem varabæjarfulltrúi.



Bæjarráð vísaði, á 46. fundi sínum, afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
Fyrir liggur að Ólöf Inga Stefánsdóttir flutti lögheimili sitt úr sveitarfélaginu 22. ágúst 2026 og missti við það kjörgengi, sbr. 1. mgr. 30. gr. sveitarstjórnarlaga og 23. gr. samþykktar um stjórn sveitarfélagsins. Færist því næsti maður á Í-lista upp um eitt sæti.

Bæjarstjórn þakkar Ólöfu Ingu fyrir samstarfið og óskar henni alls hins besta.

Samþykkt samhljóða.
Fylgiskjöl:

26.Kjör nefnda í samræmi við samþykktir Sveitarfélagsins Stykkishólms

Málsnúmer 2205039Vakta málsnúmer

Kosningar í nefndir og ráð í kjölfar þess fulltrúi Í-lista missti kjörgengi sitt sbr. mál nr. 25.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu Í-lista að skipun eftirtaldra í fastanefndum í stað Ólafar Ingu Stefánsdóttur sem hefur misst kjörgengi:

Aðalmaður í atvinnu- og nýsköpunarnefnd:
Georg Pétur Ólafsson

Varamaður í skóla- og fræðslunefnd:
Jón Einar Jónsson

Varamaður í stjórn Náttúrustofu Vesturlands:
Hjalti Hrafn Hafþórsson

Samþykkt samhljóða.

27.Forsendur fjárhagsáætlunar 2027-2030

Málsnúmer 2609021Vakta málsnúmer

Lagðar fram forsendur fjárhagsáætlunar 2027 og til þriggja ára 2028-2030.



Bæjarráð vísaði, á 43. fundi sínum, forsendum til samþykktar í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn samþykkir fyrirliggjandi forsendur fjárhagsáætlunar 2027 og til þriggja ára 2028-2030.

Samþykkt með 4 atkvæðum fulltrúa H- lista. Fulltrúar Í- lista sitja hjá.

Til máls tóku JBSJ, SBS, SIM, KH.

28.Minnispunktar bæjarstjóra

Málsnúmer 1808022Vakta málsnúmer

Lagðir fram minnispunktar bæjarstjóra.
Bæjarstjóri gerir grein fyrir minnispunktum sínum.

Fundi slitið.

Getum við bætt efni síðunnar?