Fara í efni

Beiðni um umfjöllun og endurskoðun ákvörðunar

Málsnúmer 2610008

Vakta málsnúmer

Skóla- og fræðslunefnd - 28. fundur - 12.10.2026

Lagt fram erindi til skóla- og fræðslunefndar þar sem óskað er eftir umfjöllun nefndarinnar og endurskoðun ákvörðunar Tónlistarskóla Stykkishólms um synjun á námsumsókn.
Skóla- og fræðslunefnd þakkar erindið og tekur undir að markmið Tónlistarskóla Stykkishólms skuli ávallt vera að bjóða eins mörgum nemendum og unnt er hverju sinni upp á tónlistarnám.

Að fengnum útskýringum skólastjórnenda hvetur nefndin stjórnendur til að leita allra leiða til að vinna á biðlista fyrir forskóla 1.

Einnig ítrekar skóla- og fræðslunefnd mikilvægi þess að umsóknargögn séu skýr og umsóknarfrestur tilgreindur í auglýsingum skólans.
Getum við bætt efni síðunnar?