Skóla- og fræðslunefnd
Dagskrá
1.Starfsemi Grunnskólans í Stykkishólmi - Greinargerð stjórnenda
Málsnúmer 1910040Vakta málsnúmer
Lögð fram skýrsla Grunnskólans í Stykkishólmi, skólastjóri fer yfir starfsemi skólans.
Skólastjóri gerir grein fyrir skýslu sinni.
2.Starfsemi Tónlistaskóla Stykkishólms - Greinargerð stjórnanda
Málsnúmer 1910043Vakta málsnúmer
Lögð fram skýrsla Tónlistarskóla Stykkishólms, skólastjóri fer yfir starfsemi skólans.
Aðstoðarskólastjóri gerir grein fyrir skýrslu sinni. Nefndin fagnar sérstaklega söngsal Tónlistarskólans í samstarfi við Grunnskólann.
3.Starfsemi Regnbogalands - skýrsla og yfirferð
Málsnúmer 1910041Vakta málsnúmer
Lögð fram skýrsla Regnbogalands, umsjónarmaður fer yfir starfsemina.
Skólastjóri gerir grein fyrir skýrslu Regnbogalands.
4.Starf foreldrafélaga
Málsnúmer 2610009Vakta málsnúmer
Starf og hlutverk foreldrafélaga tekið til umræðu.
Fulltrúar foreldrafélags Grunnskólans í Stykkishólmi gera grein fyrir störfum félagsins.
5.Skólaráð og starf þeirra
Málsnúmer 2610010Vakta málsnúmer
Skólaráð og starf þeirra tekið til umræðu.
Skólastjóri gerir grein fyrir störfum skólaráðs.
6.Lýðræðisleg þátttaka nemenda og foreldra
Málsnúmer 2610011Vakta málsnúmer
Lýðræðisleg þátttaka nemenda og foreldra tekin til umræðu í skóla- og fræðslunefnd.
Skólastjóri gerir grein fyrir leiðum nemenda og foreldra til að hafa áhrif á nám og félagslíf skólans.
7.Beiðni um umfjöllun og endurskoðun ákvörðunar
Málsnúmer 2610008Vakta málsnúmer
Lagt fram erindi til skóla- og fræðslunefndar þar sem óskað er eftir umfjöllun nefndarinnar og endurskoðun ákvörðunar Tónlistarskóla Stykkishólms um synjun á námsumsókn.
Skóla- og fræðslunefnd þakkar erindið og tekur undir að markmið Tónlistarskóla Stykkishólms skuli ávallt vera að bjóða eins mörgum nemendum og unnt er hverju sinni upp á tónlistarnám.
Að fengnum útskýringum skólastjórnenda hvetur nefndin stjórnendur til að leita allra leiða til að vinna á biðlista fyrir forskóla 1.
Einnig ítrekar skóla- og fræðslunefnd mikilvægi þess að umsóknargögn séu skýr og umsóknarfrestur tilgreindur í auglýsingum skólans.
Að fengnum útskýringum skólastjórnenda hvetur nefndin stjórnendur til að leita allra leiða til að vinna á biðlista fyrir forskóla 1.
Einnig ítrekar skóla- og fræðslunefnd mikilvægi þess að umsóknargögn séu skýr og umsóknarfrestur tilgreindur í auglýsingum skólans.
8.Trúnaðarmál
Málsnúmer 2610006Vakta málsnúmer
Formaður gerir grein fyrir umsókn um skólavist utan lögheimilssveitarfélags fyrir nemanda sem áfram verður búsettur í Stykkishólmi.
Skóla- og fræðslunefnd hvetur bæjarráð til að afla umsagna frá skólastjóra og Félags-og skólaþjónustu Snæfellinga, vegna málsins og samþykkja fyrirliggjandi umsókn styðji umsagnir málið.
9.Trúnaðarmál
Málsnúmer 2610012Vakta málsnúmer
Formaður gerir grein fyrir málefni er varðar Grunnskólann í Stykkishólmi.
Skóla- og fræðslunefnd tók málið til umfjöllunar. Formaður gerði grein fyrir þeim upplýsingum sem hún hafði fengið vegna málsins. Vegna þeirra takmörkuðu upplýsinga sem liggja fyrir hjá nefndinni er a.m.k. ljóst að taka þarf málið alvarlega og brýnt að skólinn vinni hratt og örugglega að viðeigandi lausnum.
Fundi slitið - kl. 19:10.