Umferðaröryggismál 2026
Málsnúmer 2610014
Vakta málsnúmerSkipulagsnefnd - 45. fundur - 15.10.2026
Lagt fram til afgreiðslu umferðaröryggismál við Borgarbraut.
Skipulagsfulltrúi lagði fram til umræðu umferðaröryggismál við Borgarbraut við Flata- og Víkurhverfi. Enn fremur voru kynnt önnur svæði þar sem tillögur frá VSÓ um hraðatakmarkandi aðgerðir liggja fyrir. Skipulagsnefnd fór yfir málið og fól skipulagsfulltrúa að vinna nánar með umferðaröryggismál almennt í sveitarfélaginu. Samhliða verði útfærsla við Nesveg skoðuð.