Skipulagsnefnd
Dagskrá
1.Deiliskipulagsbreyting við Reitarveg 10-12
Málsnúmer 2610013Vakta málsnúmer
Lögð fram deiliskipulagsbreyting fyrir Reitarveg 10-12 þar sem óskað er eftir að auglýsa breytingu á deiliskipulagi Reitarvegar vegna nr. 10-12, skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd samþykkir að auglýsa breytingu á deiliskipulagi Reitarvegar 10-12 skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með fyrirvara um aðrir lóðarhafar hafi ekki áhuga á að taka þátt í breytingum.
2.Merkjalýsing Kjarrhólmar
Málsnúmer 2610015Vakta málsnúmer
Lögð fram merkjalýsing að uppskiptingu landeignar. Skipt er út einni landspildu úr landi Saura L136954 og fær hún nafnið Kjarrhólmar. Ekki er til deiliskipulag af svæðinu. Merkjalýsingin er unnin skv. aðalskipulagi Helgafellssveitar 2012-2022. Stærð spildunar er 42.322,4 fermetrar (4,23 ha). Stærð Saura er 136,6 ha og minnkar um 4,23 ha eftir uppskiptingu og verður 132,37 ha.
Skipulagsnefnd samþykkti erindið.
3.Víkurhverfi - heildstæð endurskoðun deiliskipulags
Málsnúmer 2111004Vakta málsnúmer
Lagt fram til afgreiðslu endurskoðun á deiliskipulagi Víkurhverfis. Á 44. fundi nefndarinnar gerði skipulagshöfundur Víkurhverfis grein fyrir núgildandi deiliskipulagi Víkurhverfis og aðra þéttingarreiti í sveitarfélaginu. Skipulagsfulltrúa var falið að vinna málið áfram með skipulagshönnuði.
Skipulagsfulltrúi óskar eftir hugmyndum frá nefndinni um breytinguna.
Skipulagsfulltrúi óskar eftir hugmyndum frá nefndinni um breytinguna.
Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa til að koma hugmyndum áleiðis til skipulagshöfundar og vinna málið áfram með honum.
4.Umferðaröryggismál 2026
Málsnúmer 2610014Vakta málsnúmer
Lagt fram til afgreiðslu umferðaröryggismál við Borgarbraut.
Skipulagsfulltrúi lagði fram til umræðu umferðaröryggismál við Borgarbraut við Flata- og Víkurhverfi. Enn fremur voru kynnt önnur svæði þar sem tillögur frá VSÓ um hraðatakmarkandi aðgerðir liggja fyrir. Skipulagsnefnd fór yfir málið og fól skipulagsfulltrúa að vinna nánar með umferðaröryggismál almennt í sveitarfélaginu. Samhliða verði útfærsla við Nesveg skoðuð.
Fundi slitið - kl. 18:08.