Merkjalýsing Kjarrhólmar
Málsnúmer 2610015
Vakta málsnúmerSkipulagsnefnd - 45. fundur - 15.10.2026
Lögð fram merkjalýsing að uppskiptingu landeignar. Skipt er út einni landspildu úr landi Saura L136954 og fær hún nafnið Kjarrhólmar. Ekki er til deiliskipulag af svæðinu. Merkjalýsingin er unnin skv. aðalskipulagi Helgafellssveitar 2012-2022. Stærð spildunar er 42.322,4 fermetrar (4,23 ha). Stærð Saura er 136,6 ha og minnkar um 4,23 ha eftir uppskiptingu og verður 132,37 ha.
Skipulagsnefnd samþykkti erindið.