Fara í efni

Tillaga Íbúalistans um bætt samráð og undirbúning bæjarstjórnarfunda

Málsnúmer 2610029

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn - 53. fundur - 29.10.2026

Lögð fram tillaga Í-lista um bætt samráð og undirbúning bæjarstjórnarfunda.
Rannveig Ernudóttir gerir grein fyrir tillögu sinni um bætt samráð og undirbúning bæjarstjórnarfunda og fyrirliggjandi greinargerð.

Steinunni Ingibjörg Magnúsdóttir lagði fram breytingartillögu fyrir hönd H-lista á fyrirliggjandi tillögu Í-lista og gerði grein fyrir afstöðu sinni og H-listans.

Forseti ber það upp hvort fundarmenn séu samþykkir því að hafa þann háttinn á að kjósið verði um breytingartillögu H-lista.

Samþykkt samhljóða.


Breytingartillaga H-lista er þá borin upp til afgreiðslu:

Bæjarstjórn vísar málinu til oddvita beggja lista til viðræðna um markmið, útfærslu og tilhögun samráðs og samstarfs listanna við undirbúning bæjarstjórnarfunda. Náist samkomulag verði það lagt fram til kynningar í bæjarstjórn.

Bæjarstjórn samþykkir breytingartillögu samhljóða.

Samþykkt samhljóða.


Til máls tóku: RTE, SIM,


Bókun Í-lista:
Íbúalistinn tekur vel í breytingartillögu um að vísa tillögu okkar um bætt samráð bæjarfulltrúa og undirbúning bæjarstjórnarfunda til bæjarráðs til frekari umfjöllunar.

Við teljum mikilvægt að skapa vettvang fyrir aukið samtal og samstarf kjörinna fulltrúa, óháð því hvaða lista þeir tilheyra, og fögnum því að vilji sé til að skoða hvernig best verði staðið að slíku verklagi.

Við vonum að umfjöllun bæjarráðs verði bæði uppbyggileg og markviss og leiði til raunhæfra úrbóta á vinnubrögðum og samstarfi innan bæjarstjórnar.

Íbúalistinn er að sjálfsögðu tilbúinn til virkrar þátttöku í þeirri vinnu.

Bæjarfulltrúar Íbúalistans.



Bókun bæjarfulltrúa H-lista:
Bæjarfulltrúar H-listans taka undir mikilvægi góðs samráðs, upplýsingamiðlunar og vandaðs undirbúnings bæjarstjórnarfunda. Þeir telja að reglubundnu pólitísku samráði milli lista verði best komið á með samkomulagi fulltrúa þeirra um markmið og fyrirkomulag.

Fyrirliggjandi tillaga gengur lengra með því að fela bæjarstjórn að koma á sérstökum, reglubundnum fundavettvangi áður en stjórnsýsluleg staða og starfsreglur hafa verið afmarkaðar. Samkvæmt gildandi samþykkt um stjórn sveitarfélagsins semur bæjarstjóri dagskrá bæjarstjórnarfunda í samráði við forseta. Samráð listanna þarf að falla að þeirri verkaskiptingu og virða sjálfstæðan rétt hvers bæjarfulltrúa til að bera fram mál og móta afstöðu sína.

Að mati bæjarfulltrúa H-listans er ekki þörf á sérstakri samþykkt bæjarstjórnar til þess að listarnir komi sér saman um pólitískt samráð eða sameiginlegan undirbúning fyrir fundi. Eðlilegt sé að fulltrúar þeirra ræði fyrst sín á milli hvernig slíku samstarfi verði best háttað og kynni bæjarstjórn niðurstöðuna.

Bæjarfulltrúar H-listans:
Björn Ásgeir Sumarliðason
Mattías Arnar Þorgrímsson
Þórhildur Eyþórsdóttir
Steinunn I. Magnúsdóttir
Getum við bætt efni síðunnar?