Bæjarstjórn
Dagskrá
1.Stjórn Náttúrustofu Vesturlands - 6
Málsnúmer 2609007FVakta málsnúmer
Lögð fram 6. fundargerð stjórnar Náttúrustofu Vesturlands.
Lagt fram til kynningar.
2.Æskulýðs- og íþróttanefnd (SH) - 6
Málsnúmer 2609006FVakta málsnúmer
Lögð fram 6. fundargerð æskulýðs- og íþróttanefndar.
Lagt fram til kynningar.
3.Skóla- og fræðslunefnd - 28
Málsnúmer 2610001FVakta málsnúmer
Lögð fram 28. fundargerð skóla- og fræðslunefndar.
Lagt fram til kynningar.
4.Skipulagsnefnd - 45
Málsnúmer 2610002FVakta málsnúmer
Lögð fram 45. fundargerð skipulagsnefndar.
Lagt fram til kynningar.
5.Bæjarráð - 47
Málsnúmer 2610003FVakta málsnúmer
Lögð fram fundargerð 47. fundar bæjarráðs.
Lagt fram til kynningar.
6.Fundargerðir - Samband íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2102003Vakta málsnúmer
Lögð fram nýjasta fundargerð Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar.
7.Styrkumsóknir 2026
Málsnúmer 2610001Vakta málsnúmer
Lagðar fram styrkumsóknir sem bárust á auglýstum umsóknartíma fá 16. september til 8. október.
Bæjarráð vísaði málinu, á 47. fundi sínum, til næsta bæjarráðsfundar og lagði til við bæjarstjórn að fela bæjarráði fullnaðarumboð til afgreiðslu málsins.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs og felur bæjarráði fullnaðarumboð til afgreiðslu málsins.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
8.Deiliskipulagsbreyting við Reitarveg 10-12
Málsnúmer 2610013Vakta málsnúmer
Lögð fram deiliskipulagsbreyting fyrir Reitarveg 10-12 þar sem óskað er eftir að auglýsa breytingu á deiliskipulagi Reitarvegar vegna nr. 10-12, skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd samþykkti, á 45. fundi sínum, að auglýsa breytingu á deiliskipulagi Reitarvegar 10-12 skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með fyrirvara um að aðrir lóðarhafar hafi ekki áhuga á að taka þátt í breytingum.
Bæjarráð staðfesti, á 47. fundi sínum, afgreiðslu skipulagsnefndar að því gefnu að ekki verði kostnaðarauki hjá sveitarfélaginu vegna gatnagerðar. Bæjarráð fól bæjarstjóra að ræða við forsvarsmenn Skipavíkur ehf. á sama grunni og fyrirliggjandi samningur við lóðarhafa í Víkurhverfi, varðandi kostnaðaraukningu og aðgengismál.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar og bæjarráðs.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
9.Merkjalýsing Kjarrhólmar
Málsnúmer 2610015Vakta málsnúmer
Lögð fram merkjalýsing að uppskiptingu landeignar. Skipt er út einni landspildu úr landi Saura L136954 og fær hún nafnið Kjarrhólmar. Ekki er til deiliskipulag af svæðinu. Merkjalýsingin er unnin skv. aðalskipulagi Helgafellssveitar 2012-2022. Stærð spildunar er 42.322,4 fermetrar (4,23 ha). Stærð Saura er 136,6 ha og minnkar um 4,23 ha eftir uppskiptingu og verður 132,37 ha.
Skipulagsnefnd samþykkti erindið á 45. fundi sínum.
Bæjarráð staðfesti afgreiðslu skipulagsnefndar á 47. fundi sínum.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
10.Dreifbýlisráð Sveitarfélagsins Stykkishólms - kosning
Málsnúmer 2610026Vakta málsnúmer
Lögð fram kjörskrá Sveitarfélagsins Stykkishólms fyrir kosningu í dreifbýlisráð sem fer fram laugardaginn 7. nóvember 2026, sbr. lög nr. 138/2011 og reglugerð um íbúakosningnar sveitarfélaga nr. 922/2023. Á kjörskrá eru 62 einstaklingar.
Bæjarráð staðfesti framlagða kjörskrá, á 47. fundi sínum, og veitti bæjarstjóra umboð til að undirrita hana, yfirfara og staðfesta breytingar sem kunna að verða gerðar á kjörskránni fram til kosninga í samræmi við III kafla laga nr. 5/1998, um íbúakosningar.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
11.Gjaldskrá fyrir geymslusvæði Sveitarfélagsins Stykkishólms - Endurskoðun
Málsnúmer 2610017Vakta málsnúmer
Lögð fram drög að nýjum reglum fyrir geymslusvæði sveitarfélagsins.
Bæjarráð samþykkti, á 47. fundi sínum, nýjar reglur fyrir geymslusvæði og lagði til við bæjarstjórn að samþykkja þær með áorðnum breytingum.

Bæjarstjórn samþykkir fyrirliggjandi reglur fyrir geymslusvæði Stykkishólms.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
12.Viðauki 3 við fjárhagsáætlun 2026-2029
Málsnúmer 2610024Vakta málsnúmer
Lagður fram viðauki 3 við fjárhagsáætlun 2026-2029.
Viðaukinn sýnir breytingar á flokkun málaflokka og deilda vegna breytingar á reglugerð 1212/2015 um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga.
Bæjarráð samþykkti, á 47. fundi sínum, viðauka 3 við fjárhagsáætlun 2026-2029 og lagði til við bæjarstjórn að samþykkja hann.

Bæjarstjórn samþykkir viðauka 3 við fjárhagsáætlun 2026-2029.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
Varaforseti bæjarstjórnar tók við fundarstjórn
13.Fjárhagsáætlun 2027 og til þriggja ára 2028-2030.
Málsnúmer 2609021Vakta málsnúmer
Lögð fram fjárhagsáætlun sveitarfélagsins 2027 og til þriggja ára 2028-2030.
Bæjarráð vísaði, á 43. fundi sínum, forsendum til samþykktar í bæjarstjórn. Bæjarstjórn samþykkti, á 51. fundi sínum, fyrirliggjandi forsendur fjárhagsáætlunar 2027 og til þriggja ára 2028-2030.
Bæjarráð samþykkti, á 47. fundi sínum, fyrliggjandi grunn að fjárhagsáætlun sveitarfélagsins 2027 og til þriggja ára 2028-2030 og vísaði fjárhagsáætlun til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
Þá er lögð fram tillaga forseta bæjarstjórnar um tímabundna lækkun launa bæjarfulltrúa og aðhald og stefnumörkun í fjármálum sveitarfélagsins fyrir árin 2027 og 2028 til afgreiðslu.

Lögð er fram, til fyrri umræðu, tillaga að fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Stykkishólms, stofnana og fyrirtækja, fyrir árið 2027 auk þriggja ára áætlunar fyrir árin 2028-2030, auk fyrirliggjandi tillögu forseta bæjarstjórnar.
Bæjarstjóri gerir grein fyrir helstu forsendum og áherslum í áætluninni.
Í kölfar ávarps bæjarstjóra gerir forseti grein fyrir tillögu sinni um tímabundna lækkun launa bæjarfulltrúa og aðhald og stefnumörkun í fjármálum sveitarfélagsins fyrir árin 2027 og 2028, ásamt fyrirliggjandi greinargerð.
Orðið er í kjölfarið gefið laust og í framhaldi af því gengið til afgreiðslu.
---
Bæjarstjórn samþykkir að útsvar hjá Sveitarfélaginu Stykkishólmi verði 14,97% á árinu 2027.
Samþykkt samhljóða.
---
Þá er tekin til afgreiðslu fyrirliggjandi tillaga forseta bæjarstjórnar, sem skiptist í tvo liði, samtengda, annars vegar um tímabundna lækkun launa bæjarfulltrúa og bæjarstjóra og hins vegar um aðhald og stefnumörkun í fjármálum sveitarfélagsins fyrir árin 2027 og 2028. Tillagan er tekin til afgreiðslu í tvennu lagi.
---
Fyrst er tekin til afgreiðslu fyrri hluti tillögu forseta: "1. Lækkun launa bæjarfulltrúa og bæjarstjóra"
1. Lækkun launa bæjarfulltrúa og bæjarstjóra
-A. Laun bæjarfulltrúa vegna starfa í bæjarstjórn og bæjarráði lækki um 50% frá 1. janúar til 31. desember 2027. Lækkun greiðslna vegna hlutverks forseta bæjarstjórnar lækki þó umfram aðra og lækki um 80%. Lækkunin taki til fastra mánaðargreiðslna og fundargreiðslna miðað við þær greiðslur sem annars hefðu gilt. Hvert hlutverk reiknist sérstaklega og sömu viðmið gildi um varamenn þegar þeir taka sæti.
-B. Forseta bæjarstjórnar verði falið að undirbúa og ganga frá skriflegu samkomulag við bæjarstjóra um launalækkun á sama tímabili. Lækkunin nemi í krónum meðaltalslækkunar (brúttó) til bæjarfulltrúa í bæjarstjórn.
Samþykkt samhljóða.
---
Næst er tekin til afgreiðslu seinni hluti tillögu forseta: "2. Eftirfarndi markmið og tillögur um aukið aðhald og afkomubata 2027-2028"
2. Eftirfarandi markmið og tillögur um aukið aðhald og afkomubata 2027-2028
-A. Stefnt verði að varanlegum árlegum afkomubata í A-hluta að fjárhæð 80?100 millj. kr., sem komi að fullu fram árið 2028. Megináhersla verði á lækkun rekstrarkostnaðar, einkum með endurskoðun mönnunar/stöðugilda og skipulagi þjónustu (þjónustustig).
-B. Við stefnumörkun og ákvörðunartöku verði miðað við að engin ný lán verði tekin árin 2027 og 2028. Fjárfestingar miðist við svigrúm rekstrar eftir afborganir, aðrar skuldbindingar og nauðsynlegt lausafé. Sala eigna, þar sem við á, geti aukið þetta svigrúm, ef þurfa þykir.
-C. Unnið verði áfram með fyrirliggjandi tillögur og aðrar mögulegar aðgerðar við fjárhagsáætlanir 2027 og 2028 sem styðji framangreind markmið í lið 2 i. Lagt er upp með að horfa til tillagna og hugmynda að stefnumörkun og áherslum í fjárhagsáætlun 2027 sem bæjarstjóri hefur tekið saman. ii. Bæjarráði verði falið að halda áfram greiningu, vinnu við frekari tillögugerð og kostnaðarmati aðhaldsaðgerða með bæjarstjóra og forstöðumönnum.
Samþykkt samhljóða
---
Forseti óskar eftir að það verði fært til bókar, svo að ekki gæti misskilnings, að tillaga 1a á ekki við um laun hjá nefndarmönnum í fastanefndum, öðrum en bæjarráði, nema athugsemdir komi fram um það frá bæjarfulltrúm. Þá óskar forseti jafnframt eftir því að það verði fært til bókar að það hafi verið sameiginleg niðurstaða bæjarfulltrúa H-lista og Í-lista í fundarhléi að fulltrúa Í-listans dragi til baka breytingartillögur sínar, en þeim verður bætt við undir gögn málsins.
---
Bæjarstjórn samþykkir að vísa fyrirliggjandi fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Stykkishólms 2027-2030, með áorðnum breytingum, til síðari umræðu í bæjarstjórn og vísar henni jafnframt til frekari umfjöllunar í bæjarráði og til umsagnar í öðrum fastanefndum sveitarfélagsins.
Samþykkt samhljóða.
Til máls tóku: JBSJ, BÁS, MAÞ, KH, RTE, SIM, ÞE.
---
Bókun Í-lista:
Íbúalistinn fagnar því að samstaða hafi náðst um að afgreiða sérstaklega tillögur um tímabundna lækkun launa bæjarfulltrúa og bæjarstjóra annars vegar og markmið um bættan rekstur sveitarfélagsins hins vegar.
Við styðjum markmið um aukið aðhald og varanlegan afkomubata. Fulltrúar Íbúalistans hafa um nokkurt skeið bent á mikilvægi þess að bregðast við þróun fjárhagsstöðu sveitarfélagsins og þeirri áhættu sem fylgir vaxandi skuldsetningu. Það er því ánægjulegt að nú sé samstaða um að horfa til nauðsynlegra aðgerða og skapa traustan og sjálfbæran fjárhagslegan grundvöll fyrir starfsemi sveitarfélagsins til framtíðar.
Við leggjum áherslu á að þær aðgerðir sem ráðist verður í byggist á vandaðri greiningu, raunhæfu kostnaðarmati og skýru mati á áhrifum þeirra á þjónustu, starfsfólk og íbúa sveitarfélagsins. Fjárhagsleg ábyrgð snýst ekki eingöngu um að draga úr útgjöldum, heldur einnig um skynsamlega nýtingu fjármuna, góða forgangsröðun og að tryggja að ákvarðanir skili raunverulegum og varanlegum árangri.
Íbúalistinn er tilbúinn til málefnalegs og uppbyggilegs samstarfs um þær ákvarðanir sem fram undan eru. Við leggjum áherslu á að allir bæjarfulltrúar hafi raunverulegt tækifæri til þátttöku í þeirri vinnu, með vandaðan undirbúning, gagnsæi og langtímahagsmuni samfélagsins að leiðarljósi.
Bæjarfulltrúa Í-lista.

Forseti bæjarstjórnar tók aftur við fundarstjórn.
14.Gjaldskrár 2027
Málsnúmer 2610027Vakta málsnúmer
Lögð fram drög að gjaldskrám sveitarfélagsins fyrir árið 2027.
Bæjarráð samþykkti, á 47. fundi sínum, tillögu að gjaldskrá 2027 og vísaði henni til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

Bæjarstjórn samþykkir gjaldskrár fyrir Sveitarfélagið Stykkishólms fyrir árið 2027 og vísar þeim til frekari umfjöllunar í bæjarráði, umsagnar í fastanefndum og til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
15.Tillaga Íbúalistans um bætt samráð og undirbúning bæjarstjórnarfunda
Málsnúmer 2610029Vakta málsnúmer
Lögð fram tillaga Í-lista um bætt samráð og undirbúning bæjarstjórnarfunda.
Rannveig Ernudóttir gerir grein fyrir tillögu sinni um bætt samráð og undirbúning bæjarstjórnarfunda og fyrirliggjandi greinargerð.
Steinunni Ingibjörg Magnúsdóttir lagði fram breytingartillögu fyrir hönd H-lista á fyrirliggjandi tillögu Í-lista og gerði grein fyrir afstöðu sinni og H-listans.
Forseti ber það upp hvort fundarmenn séu samþykkir því að hafa þann háttinn á að kjósið verði um breytingartillögu H-lista.
Samþykkt samhljóða.
Breytingartillaga H-lista er þá borin upp til afgreiðslu:
Bæjarstjórn vísar málinu til oddvita beggja lista til viðræðna um markmið, útfærslu og tilhögun samráðs og samstarfs listanna við undirbúning bæjarstjórnarfunda. Náist samkomulag verði það lagt fram til kynningar í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn samþykkir breytingartillögu samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
Til máls tóku: RTE, SIM,
Bókun Í-lista:
Íbúalistinn tekur vel í breytingartillögu um að vísa tillögu okkar um bætt samráð bæjarfulltrúa og undirbúning bæjarstjórnarfunda til bæjarráðs til frekari umfjöllunar.
Við teljum mikilvægt að skapa vettvang fyrir aukið samtal og samstarf kjörinna fulltrúa, óháð því hvaða lista þeir tilheyra, og fögnum því að vilji sé til að skoða hvernig best verði staðið að slíku verklagi.
Við vonum að umfjöllun bæjarráðs verði bæði uppbyggileg og markviss og leiði til raunhæfra úrbóta á vinnubrögðum og samstarfi innan bæjarstjórnar.
Íbúalistinn er að sjálfsögðu tilbúinn til virkrar þátttöku í þeirri vinnu.
Bæjarfulltrúar Íbúalistans.
Bókun bæjarfulltrúa H-lista:
Bæjarfulltrúar H-listans taka undir mikilvægi góðs samráðs, upplýsingamiðlunar og vandaðs undirbúnings bæjarstjórnarfunda. Þeir telja að reglubundnu pólitísku samráði milli lista verði best komið á með samkomulagi fulltrúa þeirra um markmið og fyrirkomulag.
Fyrirliggjandi tillaga gengur lengra með því að fela bæjarstjórn að koma á sérstökum, reglubundnum fundavettvangi áður en stjórnsýsluleg staða og starfsreglur hafa verið afmarkaðar. Samkvæmt gildandi samþykkt um stjórn sveitarfélagsins semur bæjarstjóri dagskrá bæjarstjórnarfunda í samráði við forseta. Samráð listanna þarf að falla að þeirri verkaskiptingu og virða sjálfstæðan rétt hvers bæjarfulltrúa til að bera fram mál og móta afstöðu sína.
Að mati bæjarfulltrúa H-listans er ekki þörf á sérstakri samþykkt bæjarstjórnar til þess að listarnir komi sér saman um pólitískt samráð eða sameiginlegan undirbúning fyrir fundi. Eðlilegt sé að fulltrúar þeirra ræði fyrst sín á milli hvernig slíku samstarfi verði best háttað og kynni bæjarstjórn niðurstöðuna.
Bæjarfulltrúar H-listans:
Björn Ásgeir Sumarliðason
Mattías Arnar Þorgrímsson
Þórhildur Eyþórsdóttir
Steinunn I. Magnúsdóttir

16.Minnispunktar bæjarstjóra
Málsnúmer 1808022Vakta málsnúmer
Lagðir fram minnispunktar bæjarstjóra.
Bæjarstjóri gerir grein fyrir minnispunktum sínum.
Fundi slitið.
-2610029 - Tillaga Íbúalistans um bætt samráð og undirbúning bæjarstjórnarfunda.