Umræður um varðveislu sögu gömlu húsana í Stykkishólmi út frá hlið iðnaðarmanna.
Safna- og menningarmálanefnd tekur jákvætt í að varðveita sögu gömlu húsanna í Stykkishólmi út frá reynslu og þekkingu iðnaðarmanna sem komið hafa að byggingu, viðhaldi og endurgerð þeirra.
Safna- og menningarmálanefnd telur mikilvægt að skrá frásagnir af vinnubrögðum, efnisnotkun, breytingum og viðgerðum og tengja þær ljósmyndum, teikningum og öðrum heimildum. Sérstaklega verði hugað að því að varðveita þekkingu sem annars gæti glatast.
Safna- og menningarmálanefnd felur formanni nefndarinnar og forstöðumönnum safna að móta tillögu að afmörkuðum fyrsta áfanga verkefnisins.