Safna- og menningarmálanefnd
1.Erindisbréf safna- og menningarmálanefndar
Málsnúmer 1909026Vakta málsnúmer
2.Norska Húsið - Yfirlit yfir faglegan rekstur
Málsnúmer 1905061Vakta málsnúmer
3.Ársskýrlsa Norska hússins
4.Starfsemi Amtsbókasafnsins í Stykkishólmi - skýrsla og yfirferð
Málsnúmer 1910042Vakta málsnúmer
Safna- og menningarmálanefnd óskar jafnframt eftir að á næsta fundi verði sérstaklega farið yfir stöðu Ljósmyndasafnsins, skráningu og varðveislu mynda, rafrænt aðgengi og möguleika á aukinni miðlun safnkostsins.
5.Ársskýrsla Amtsbókasafnsins í Stykkishólmi
Málsnúmer 2411012Vakta málsnúmer
Lagt fram til kynningar.
6.Framtíðaráform Vatnasafns
Málsnúmer 2010035Vakta málsnúmer
Safna- og menningarmálanefnd lýsti, á 4. fundi sínum, skýrum vilja til að ná samningi um framtíð Vatnasafns í Stykkishólmi. Í því samhengi lagði nefndin ríka áherslu á mikilvægi þess að sveitarfélagið fái viðeigandi stuðning til uppbyggingar menningarinnviða í samræmi við fyrirliggjandi gögn, enda sé slíkur stuðningur lykilatriði í ljósi umfangsmikilla og langtímasamninga sem nú liggja fyrir um rekstur safnsins. Nefndin tók jafnframt undir efni minnisblaðs bæjarstjóra, minnisblað verkefnastjóra menningarmála á Vesturlandi og fundargerð vinnuhóps um framtíðarfyrirkomulag safnsins.
Bæjarráð samþykkti á 24. fundi sínum afgreiðslu nefndarinnar og vísaði málinu áfram til frekari vinnu í vinnuhópi um framtíð Vatnasafns.
Safna- og menningarmálanefnd þakkaði, á 6. fundi sínum, fyrir framlagðar upplýsingar, þar á meðal minnisblað bæjarstjóra, drög að nýjum samningi um Vatnasafnið og minnisblað verkefnastjóra menningarmála á Vesturlandi. Nefndin taldi að framangreind gögn varpi skýru ljósi á bæði menningarlegt gildi Vatnasafnsins og þau umfangsmiklu fjárhagslegu og rekstrarlegu verkefni sem tengjast framtíð safnsins. Nefndin ítrekaði fyrri afstöðu sína, líkt og fram kom á 4. fundi nefndarinnar, um að mikilvægt sé að ná samningi um framtíð Vatnasafnsins í Stykkishólmi. Í því samhengi lagði nefndin þunga áherslu á að sveitarfélagið fái viðeigandi stuðning til uppbyggingar menningarinnviða og til að mæta þeim langtímasamningsskuldbindingum sem fram koma í nýjum samningsdrögum. Nefndin tók undir þau sjónarmið sem fram koma í minnisblaði bæjarstjóra um að utanaðkomandi fjármögnun sé nauðsynleg forsenda þess að unnt sé að gera bindandi samning til lengri tíma. Nefndin tók jafnframt undir að tækifæri til að efla menningartengda ferðaþjónustu og samfélagslega virkni safnsins séu veruleg og vægi þess innan samtímalistar er ómetanlegt, en að viðhaldsþörf húseignarinnar og listaverksins kalli á aðkomu ríkisins, líkt og rakið er í framlögðum gögnum.
Safna- og menningarmálanefnd hvatti til þess að vinnuhópur um framtíð Vatnasafns fundi með annars vegar fulltrúum ríkisins og hins vegar fulltrúum listamannsins til að fara yfir stöðu málsins. Með vísan til framangreinds samþykkti nefndin að vísa málinu áfram til frekari vinnu í vinnuhópi um framtíð Vatnasafns og óskaði eftir að næstu skref í samningsgerð verði lögð fyrir nefndina þegar þau liggja fyrir.
Bæjarráð þakkaði, á 39. fundi sínum, fyrir framlagðar upplýsingar og ítarlega umfjöllun safna- og menningarmálanefndar um framtíðaráform Vatnasafnsins. Bæjarráð tók undir afstöðu nefndarinnar um að utanaðkomandi fjármögnun sé lykilforsenda þess að unnt sé að gera langtímasamning um rekstur safnsins. Bæjarráð staðfesti að öðru leyti afgreiðslu nefndarinnar. Bæjarráð samþykki að vísa málinu áfram til áframhaldandi vinnu starfshóps um framtíð Vatnasafnsins og fól bæjarstjóra jafnframt að fylgja málinu eftir gagnvart ríkinu. Bæjarráð óskaði einnig eftir að starfshópurinn leggi fram tillögur um næstu skref í samningsgerð og aðkomu ríkisins þegar þær liggja fyrir.
Bæjarstjórn staðfesti afgreiðslu bæjarráðs og safna- og menningarmálanefndar á 43. fundi sínum.
Á 40. fundi bæjarráðs var málið tekið up upp að nýju í kjölfar samskipta milli sveitarfélagsins og fulltrúa listamannsins varðandi næstu skref málsins með áherslu farsæla lausn á húsnæðisþætti málsins. Fulltrúi Roni Horn mætti til fundar við bæjarráð.
Bæjarráð fól bæjarstjóra að vinna áfram að málinu með áherslu farsæla lausn á húsnæðisþætti málsins.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir málinu á 7. fundi safna- og menningarmálanefndar. Nefndin taldi mikilvægt að skoða alla möguleika í stöðunni en vísaði frekari umræðu til næsta fundar sem stefnt er að halda fljótlega.
Bæjarráð staðfestir, á 42. fundi sínum,, afgreiðslu safna- og menningarmálanefndar.
Safna- og menningarmálanefnd tekur undir fyrri afgreiðslur bæjarráðs um áframhaldandi vinnu að farsælli lausn á húsnæðis- og rekstrarfyrirkomulagi safnsins. Nefndin ítrekar að utanaðkomandi fjármögnun sé nauðsynleg forsenda langtímaskuldbindinga sveitarfélagsins.
7.Miðbæjarskipulag Stykkishólms
Málsnúmer 2609013Vakta málsnúmer
8.Búðanes og Hjallatangi - göngustígar og skilti
Málsnúmer 1904035Vakta málsnúmer
Safna- og menningarmálanefnd leggur áherslu á að Minjastofnun Ísland óski eftir því að verkefnið verði fært á verkefnaáætlun landsáætlunar um uppbyggingu innviða.
9.Skýrsla um Svæðisgarðinn Snæfellsnes
Málsnúmer 2204002Vakta málsnúmer
10.Kosning varaformanns og ritara
Málsnúmer 2211039Vakta málsnúmer
11.Upplýsingaskilti um Walter Mitty á hafnarsvæði
Málsnúmer 1905066Vakta málsnúmer
Safna- og menningarmálanefnd tekur undir að skýra þurfi ábyrgð á uppsetningu, uppfærslu og viðhaldi þeirrar vefsíðu sem QR-kóði á skiltinu myndi vísa á. Nefndin telur að annað hvort yrði hún vistuð á vefsíðu sveitarfélagsins eða Félags atvinnulífs í Stykkishólmi (visitstykkisholmur.is).
Safna- og menningarmálanefnd leggur til að skipaður verði vinnuhópur sem falið verði að vinna tillöguna áfram.
12.Sátan - Rokkhátíð í Stykkishólmi
Málsnúmer 2305023Vakta málsnúmer
Bæjarráð lýsti, á 44. fundi sínum, ánægju með hvernig til tókst með hátíðina í ár og lýsir fyrir sitt leyti yfir vilja til áframhaldandi samstarfs. Bæjarráð lagði þó áherslu á mikilvægi þess að undirbúningur og samskipti við forstöðumenn þeirra stofnana sveitarfélagsins sem tengjast þeim mannvirkjum sem nýtt eru vegna hátíðarinnar fari fram með góðum fyrirvara. Bæjarráð óskaði eftir umsögn safna- og menningarmálanefndar um áframhaldandi samstarf sveitarfélagsins við forsvarsmenn hátíðarinnar vegna tónlistarhátíðarinnar Sátunnar.
Safna- og menningarmálanefnd telur að við gerð nýs samnings verði kveðið á um kostnað og ábyrgð á frágangi, en færa þurfi fyrir því sérstök rök ef niðurgreiðsla sveitarfélagsins ætti að koma til. Þá leggur nefndin áherslu á að dagsetningar og fyrirkomulag liggi fyrir með góðum fyrirvara og að undirbúningur fari fram í nánu samráði við forstöðumann íþróttamiðstöðvar.
13.Minnisvarði um Júlíönu Jónsdóttur
Málsnúmer 2610021Vakta málsnúmer
Bæjarráð fagnaði, á 47. fundi sínum, fyrirliggjandi hugmynd að uppsetningu listaverks til heiðurs Júlíönu Jónsdóttur og óskaði eftir umsögn safna- og menningarmálanefndar og skipulagsnefndar um málið.
14.Samkomuhúsið í Stykkishólmi við Aðalgötu 6
Málsnúmer 2006020Vakta málsnúmer
15.Menningarstefna Stykkishólmsbæjar
Málsnúmer 1610018Vakta málsnúmer
16.Söguskilti um miðbæ Stykkishólms við Bókhlöðuhöfða
Málsnúmer 2603012Vakta málsnúmer
17.Gönguferðabók um Stykkishólm
Málsnúmer 2402003Vakta málsnúmer
18.Hafmeyjan - Varðveisla, endurgerð, staðsetning
Málsnúmer 1905063Vakta málsnúmer
Málefni hafmeyjunar tekin til umræðu í nefndinni á ný.
Safna- og menningarmálanefnd telur jafnframt mikilvægt að unnið verði að hönnun Hólmgarðsins með tilliti til mögulegrar staðsetningar Hafmeyjunnar og umhverfis í kringum hana. Í þeirri vinnu verði haft samráð við Kvenfélagið Hringinn, meðal annars um sögu styttunnar, staðsetningu og umhverfi.
19.Heildarskipulag áningastaðar og útsýnissvæðis á Súgandisey
Málsnúmer 2004031Vakta málsnúmer
Fjöregg í Súgandisey er tekið til umræðu á ný í safna- og menningarmálanefnd.
20.Saga Stykkishólms
Málsnúmer 2611004Vakta málsnúmer
Safna- og menningarmálanefnd leggur til tekin verði saman staða verkefnisins og hvort möguleiki sé á því að ljúka við vinnu þriðja bindis af þeim aðila sem áður var með verkið áður en næstu skref verði tekin.
21.Gömlu húsin í Stykkishólmi
Málsnúmer 2611003Vakta málsnúmer
Safna- og menningarmálanefnd telur mikilvægt að skrá frásagnir af vinnubrögðum, efnisnotkun, breytingum og viðgerðum og tengja þær ljósmyndum, teikningum og öðrum heimildum. Sérstaklega verði hugað að því að varðveita þekkingu sem annars gæti glatast.
Safna- og menningarmálanefnd felur formanni nefndarinnar og forstöðumönnum safna að móta tillögu að afmörkuðum fyrsta áfanga verkefnisins.
22.Gjaldskrár 2027
Málsnúmer 2610027Vakta málsnúmer
Bæjarstjórn samþykkti, á 53. fundi sínum, gjaldskrár fyrir Sveitarfélagið Stykkishólms fyrir árið 2027 og vísaði þeim til frekari umfjöllunar í bæjarráði, umsagnar í fastanefndum og til síðari umræðu í bæjarstjórn.
23.Fjárhagsáætlun 2027 og til þriggja ára 2028-2030
Málsnúmer 2609021Vakta málsnúmer
Bæjarstjórn samþykkti, á 53. fundi sínum, að vísa fyrirliggjandi fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Stykkishólms 2027-2030, með áorðnum breytingum, til síðari umræðu í bæjarstjórn og vísar henni jafnframt til frekari umfjöllunar í bæjarráði og til umsagnar í öðrum fastanefndum sveitarfélagsins.
Fundi slitið.