Reglur um skólaakstur úr dreifbýli (staðfesting á núverandi fyrirkomulagi)
Málsnúmer 2611010
Vakta málsnúmerSkóla- og fræðslunefnd - 29. fundur - 09.11.2026
Lögð fram tillaga að reglum um skólaakstur í Sveitarfélaginu Stykkishólmi. Tillagan byggist á því fyrirkomulagi sem samþykkt var í Helgafellssveit á sínum tíma og hefur verið viðhaft áfram eftir sameiningu sveitarfélaganna sem gengur út á það að foreldrum í dreifbýli býðst að fá greiðslur byggðar á kólametragjaldi fyrir að aka börnum sínum úr dreifbýli í Grunnskólann í Stykkishólmi í stað þess að rekin sé skólarúta.
Með reglunum er fyrirkomulagið sem samþykkt var á sínum tíma fært í form reglna og afmarkað við þessar ferðir. Jafnframt er kveðið á um samninga, greiðsluviðmið, öryggi, árlega áætlun og málsmeðferð. Þá er tiltekið að samþykki fyrir skólavist utan sveitarfélagsins sem eða annað sambærilegur aktur veitir eðli málsins samkvæmt ekki rétt til greiðslu aksturskostnaðar.

Skóla- og fræðslunefnd samþykkir reglur um skólaakstur og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja þær.