Skóla- og fræðslunefnd
Dagskrá
1.Starfsemi Grunnskólans í Stykkishólmi - Greinargerð stjórnenda
Málsnúmer 1910040Vakta málsnúmer
Lögð fram skýrsla Grunnskólans í Stykkishólmi, skólastjóri fer yfir starfsemi skólans.
Skólastjóri gerir grein fyrir skýslu sinni.
2.Starfsemi Tónlistaskóla Stykkishólms - Greinargerð stjórnanda
Málsnúmer 1910043Vakta málsnúmer
Lögð fram skýrsla Tónlistarskóla Stykkishólms, skólastjóri fer yfir starfsemi skólans.
Aðstoðarskólastjóri gerir grein fyrir starfsemi Tónlistarskóla Stykkishólms. Skóla- og fræðslunefnd fangar því að nemendum á biðlista í forskóla 1 hafi verið fundið pláss í Tónlistarskólanum.
3.Starfsemi Regnbogalands - skýrsla og yfirferð
Málsnúmer 1910041Vakta málsnúmer
Lögð fram skýrsla Regnbogalands, umsjónarmaður fer yfir starfsemina.
Forstöðumaður gerir grein fyrir skýrslu Regnbogalands. Skóla- og fræðslunefnd bendir á mikilvægi þess að verktakar taki tillit til starfsemi Regnbogalands þegar unnið er á svæðinu og girði af vinnusvæði eftir atvikum.
4.Trúnaðarmál
Málsnúmer 2610012Vakta málsnúmer
Formaður gerir grein fyrir málefni er varðar Grunnskólann í Stykkishólmi.
Lagt fram til kynningar.
5.Beiðni um akstursgreiðslur
Málsnúmer 2310009Vakta málsnúmer
Lögð fram að nýju beiðni um akstursgreiðslur, í ljósi úrskurðar, vegna barns sem sækir nám utan lögheimilssveitarfélags.
Skóla- og fræðslunefnd tekur undir umsögn skólastjóra um að Grunnskólinn í Stykkishólmi búi yfir faglegri þekkingu og úrræðum til að skipuleggja viðeigandi kennslu og stuðning fyrir nemandann. Jafnframt tekur nefndin undir að nánari útfærsla þurfi að byggjast á uppfærðum upplýsingum um þarfir hans og taka mið af líðan, félagslegum tengslum og nauðsynlegum undirbúningi.
Skóla- og fræðslunefnd leggur til við bæjarráð að umsögn skólastjóra, ásamt umsögn Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga, fyrirliggjandi matsgerð og öðrum gögnum málsins, verði lögð til grundvallar einstaklingsbundnu mati við endurafgreiðslu málsins.

6.Reglur um skólaakstur úr dreifbýli (staðfesting á núverandi fyrirkomulagi)
Málsnúmer 2611010Vakta málsnúmer
Lögð fram tillaga að reglum um skólaakstur í Sveitarfélaginu Stykkishólmi. Tillagan byggist á því fyrirkomulagi sem samþykkt var í Helgafellssveit á sínum tíma og hefur verið viðhaft áfram eftir sameiningu sveitarfélaganna sem gengur út á það að foreldrum í dreifbýli býðst að fá greiðslur byggðar á kólametragjaldi fyrir að aka börnum sínum úr dreifbýli í Grunnskólann í Stykkishólmi í stað þess að rekin sé skólarúta.
Með reglunum er fyrirkomulagið sem samþykkt var á sínum tíma fært í form reglna og afmarkað við þessar ferðir. Jafnframt er kveðið á um samninga, greiðsluviðmið, öryggi, árlega áætlun og málsmeðferð. Þá er tiltekið að samþykki fyrir skólavist utan sveitarfélagsins sem eða annað sambærilegur aktur veitir eðli málsins samkvæmt ekki rétt til greiðslu aksturskostnaðar.

Skóla- og fræðslunefnd styður að áfram verði byggt á því fyrirkomulagi að foreldrum séu greiddar kílómetragreiðslur fyrir akstur barna úr dreifbýli í Grunnskólann í Stykkishólmi samkvæmt samningi.
Skóla- og fræðslunefnd samþykkir reglur um skólaakstur og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja þær.
Skóla- og fræðslunefnd samþykkir reglur um skólaakstur og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja þær.
7.Átaksverkefni Grunnskólans í Stykkishólmi
Málsnúmer 2611005Vakta málsnúmer
Einar Gunnarsson, skólastjóri Barnaskóla Vestmannaeyja, kemur til fundar og gerir grein fyrir framgangi þróunarvekefnisins Kveikjum neistan sem hófst árið 2021 við grunnskóla Vestmannaeyja.
Skóla- og fræðslunefnd þakkar Einari Gunnarssyni fyrir greinargóða yfirferð. Skóla- og fræðslunefnd tekur jákvkætt í verkefnið og felur skólastjóra og formanni nefndarinnar að kanna áhuga kennara í Stykkishólmi á verkefninu og skoða verkefnið nánar, meðal annars m.t.t. samstarfs við aðra grunnskóla á Snæfellsnesi.
8.Gjaldskrár 2027
Málsnúmer 2610027Vakta málsnúmer
Lögð fram drög að gjaldskrám sveitarfélagsins fyrir árið 2027.
Bæjarstjórn samþykkti, á 53. fundi sínum, gjaldskrár fyrir Sveitarfélagið Stykkishólms fyrir árið 2027 og vísaði þeim til frekari umfjöllunar í bæjarráði, umsagnar í fastanefndum og til síðari umræðu í bæjarstjórn.

Skóla- og fræðslunefnd gerir ekki athugasemdir við gjaldskrár sveitarfélagsins 2027.
9.Fjárhagsáætlun 2027 og til þriggja ára 2028-2030
Málsnúmer 2609021Vakta málsnúmer
Lögð fram fjárhagsáætlun sveitarfélagsins 2027 og til þriggja ára 2028-2030.
Bæjarstjórn samþykkti, á 53. fundi sínum, að vísa fyrirliggjandi fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Stykkishólms 2027-2030, með áorðnum breytingum, til síðari umræðu í bæjarstjórn og vísar henni jafnframt til frekari umfjöllunar í bæjarráði og til umsagnar í öðrum fastanefndum sveitarfélagsins.

Skóla- og fræðslunefnd þakkar Kristrúnu frá Ásgarði og Jakobi Björgvini bæjarstjóra fyrir sína yfirferð.
Skóla- og fræðslunefnd hvetur bæjarstjórn til að kanna möguleika á að bjóða nemendum 3. og 4. bekkjar upp á frístundastarf, að öðru leyti gerir nefndin ekki athugasemdir við fjárhagsáætlun 2027-2030.
Skóla- og fræðslunefnd hvetur bæjarstjórn til að kanna möguleika á að bjóða nemendum 3. og 4. bekkjar upp á frístundastarf, að öðru leyti gerir nefndin ekki athugasemdir við fjárhagsáætlun 2027-2030.
Fundi slitið - kl. 19:12.