Fara í efni

Bæjarstjórn

48. fundur 07. maí 2026 kl. 17:19 í bæjarstjórnarsal
Nefndarmenn
  • Steinunn Ingibjörg Magnúsdóttir aðalmaður
  • Þórhildur Eyþórsdóttir aðalmaður
  • Ragnar Ingi Sigurðsson aðalmaður
  • Ragnar Már Ragnarsson aðalmaður
  • Haukur Garðarsson (HG) aðalmaður
  • Hrafnhildur Hallvarðsdóttir Forseti
  • Heiðrún Höskuldsdóttir (HHÖ) aðalmaður
Starfsmenn
  • Jakob Björgvin Jakobsson bæjarstjóri
  • Jón Sindri Emilsson starfsmaður tæknisviðs
  • Gyða Steinsdóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Gyða Steinsdóttir Skrifstofu- og fjármálastjóri
Dagskrá

1.Stykkishólmur í sókn - Þekkingarsetur við Breiðafjörð

Málsnúmer 2107012Vakta málsnúmer

Lögð fram gögn sem tengjast vinnu vegna stofnsetningar þekkingarsetur í Stykkishólmi.



Bæjarráð fól bæjarstjóra og verkefnastjóra á 46. fundi sínum að vinna að gerð viljayfirlýsingar við menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra um verkefnið.



Málið tekið fyrir í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn fagnar því að menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra Íslands hafi samþykkt að setja á fót þekkingarsetur á Vesturlandi með staðsetningu í Stykkishólmi. Bæjarstjórn telur að verkefnið geti orðið mikilvæg lyftistöng fyrir samfélagið á sviði menntunar, rannsókna, nýsköpunar og atvinnuþróunar.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að fela bæjarstjóra að ganga til samninga við menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið í samræmi við fyrirliggjandi gögn og undirrita fyrir hönd sveitarfélagsins þau gögn sem tengjast verkefninu þannig að það nái fram að ganga.

Samþykkt samhljóða.

Til máls tók RIS

Bókun bæjarfulltrúa H-lista vegna stofnun þekkingarseturs í Stykkishólmi:
Bæjarfulltrúar H-listans fagna þeim stóra áfanga sem náðst hefur með stofnun Þekkingar- og rannsóknarseturs við Breiðafjörð með staðsetningu í Stykkishólmi.

Við væntum þess að setrið muni efla og styðja við atvinnulíf á svæðinu og auka fjölbreytni og verði mikilvægur liður í að treysta stoðir samfélagsins til framtíðar. Við lýsum yfir ánægju með þann stuðning sem verkefnið hefur fengið frá háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti. Jafnframt fögnum við þeirri samvinnu og jákvæðni sem sýnd hefur verið af hálfu nágrannasveitarfélaga við Breiðafjörð og fjölmargra rannsóknastofnana sem boðið hefur verið að gerast stofnaðilar.

Það er sannfæring okkar að Þekkingar- og rannsóknarsetrið muni gegna lykilhlutverki í að tryggja byggðafestu og bæta lífskjör á svæðinu með því að renna fleiri stoðum undir efnahagslífið á grundvelli hugvits og sjálfbærni. Við teljum jafnframt að setrið geti gegnt mikilvægu hlutverki við að efla aðgengi íbúa svæðisins að menntun, rannsóknum og þekkingarstörfum í samstarfi við háskóla og rannsóknastofnanir.

Bæjarfulltrúar H-listans:
Hrafnhildur Hallvarðsdóttir
Ragnar Ingi Sigurðsson
Þórhildur Eyþórsdóttir
Steinunn Magnúsdóttir
Á fundinn mættu Sigurjón Örn Arnarson og Helena Rós Sigurðardóttir endurskoðendur frá KPMG

2.Ársreikningur Sveitarfélagsins Stykkishólms 2025

Málsnúmer 2604025Vakta málsnúmer

Lagður fram til síðari umræðu ársreikningur sveitarfélagsins fyrir árið 2025.



Bæjarstjórn samþykkti, á 47. fundi sínum, að vísa ársreikningi til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Bæjarstjóri gerir grein fyrir helstu lykiltölum ársreiknings Sveitarfélagsins Stykkishólms fyrir árið 2025:

Rekstrartekjur samkvæmt ársreikningi fyrir A og B hluta námu 2.709 millj. kr. á árinu en þar af námu rekstrartekjur A hluta 2.444 millj. kr. Rekstrarniðurstaða fyrir afskriftir og fjármagnsliði í A og B hluta var jákvæð um 353 millj. kr. og rekstrarniðurstaða án fjármunatekna og fjármagnsgjalda var jákvæð um 246 millj. kr. Rekstrarniðurstaða A og B hluta var jákvæð um 96 millj. kr. en fjárhagsáætlun með viðaukum hafði gert ráð fyrir jákvæðri rekstrarniðurstöðu að fjárhæð 100 millj. kr.

Rekstrarniðurstaða A hluta var jákvæð um 3 milljónir en fjárhagsáætlun með viðaukum hafði gert ráð fyrir jákvæðri rekstrarniðurstöðu um12 milljónir.
Rekstrartekjur A og B hluta jukust um 6,7% milli ára. Eru tekjur ársins í takt við áætlun. Rekstrargjöld jukust um 4,5% milli ára og eru 3% hærri en áætlun með viðaukum hafði gert ráð fyrir.

Veltufé frá rekstri nam á árinu 2025 291 millj. kr. samanborið við 206 millj. kr. árið áður. Handbært fé í árslok nam 63 millj. kr. og lækkaði um 10 millj. kr. á árinu.

Fjárfestingahreyfingar A og B hluta á árinu 2025 námu 312 millj. kr. Lántökur á árinu námu 325 millj. kr. og afborganir langtímalána voru 231 millj. kr.

Helstu fjárfestingar 2025:
-Grunnskóli 68 milljónir
-Regnbogaland 52 milljónir
-Íþróttahús 60 milljónir
-Sundlaug 38 milljónir
-Fráveituframkvæmdir 47 milljónir
-Gatnagerð 139 milljónir
-Stígagerð, gangstéttir og leikvellir 15 milljónir.

Skuldaviðmið A og B hluta Sveitarfélagsins Stykkishólmur í árslok 2025 var 111% en rekstrarjöfnuður A og B hluta síðastliðinna þriggja ára er jákvæður um 78 millj. kr. Er það ánægjulegur viðsnúningur en hann hefur verið neikvæður samfellt frá árinu 2021.

Áherslur bæjarstjórnar á árinu 2025 og á yfirstandandi ári eru áfram þær sömu. Það er að skapa áfram eftirsóknarvert umhverfi fyrir fólk og fyrirtæki, standa vörð um grunnþjónustu sveitarfélagsins, sérstaklega um hag barna og fjölskyldna þeirra og eldra fólks, og sækja af ábyrgð fram með samfélagslega mikilvægum fjárfestingum innviða sem komi til með að skapa svigrúm til eflingar samfélagsins á svæðinu á sama tíma og stefnt er að því að tryggja að skuldaviðmið og skuldahlutföll séu að lækka markvisst á tímabilinu. Þessar áherslur og markmið bæjarstjórnar endurspeglast í fyrirliggjandi ársreikningi og samþykktum áætlunum, en það er alltaf áskorun frá degi til dags að tryggja að þessi markmið nái fram að ganga.


Samkvæmt 1. mgr. 64. gr. sveitarstjórnarlaga ber bæjarstjórn að sjá til þess að rekstri, fjárfestingum og ráðstöfun eigna og sjóða sé þannig hagað á hverjum tíma að sveitarfélagið muni til framtíðar geta sinnt skyldubundnum verkefnum sínum. Samkvæmt niðurstöðu ársreiknings og áætlana sveitarfélagsins er ekkert bendir til þess að sú skylda bæjarstjórnar sé ekki uppfyllt.

Áfram þarf að leggja áherslu á ábyrga fjármálastjórnun þar sem gætt er aðhalds og ábyrgðar í rekstri sveitarfélagsins á sama tíma og þjónusta við íbúa verði eins og best verður á kosið. Það þarf að huga að því og vinna markvisst að því að ná enn meira upp veltufé frá rekstri, sem þarf að standa undir afborgunum skulda og skuldbindinga, líkt og endurspeglast í fyrirliggjandi ársreikningi. Bæjarstjórn og stjórnendur sveitarfélagsins þurfa áfram að vera og eru vakandi fyrir ákveðnum þáttum í rekstri sem endurspeglast í þessum ársreikningi, nú sem fyrr.

---

Bæjarstjórn samþykkir ársreikning Sveitarfélagsins Stykkishólms fyrir árið 2025.

Samþykkt með 4 atkvæðum Hrafnhildar Hallvarðsdóttur, Steinunnar Ingibjargar Magnúsdóttur, Ragnars Inga Sigurðssonar og Þórhildar Eyþórsdóttur, bæjarfulltrúa H-lista.

Haukur Garðarsson, Ragnar Már Ragnarsson og Heiðrún Höskuldsdóttir, bæjarfulltrúar Í-lista sitja hjá við afgreiðslu ársreiknings.

Til máls tóku HG, SIM, JBSJ, ÞE, RMR.


Bókun bæjarfulltrúa Íbúalista:
Bókun Íbúalistans vegna ársreiknings 2025
Íbúalistinn lýsir verulegum áhyggjum af þeirri mynd sem dregin er upp í frétt sveitarfélagsins Stykkishólms um ársreikning fyrir árið 2025. Að mati Íbúalistans stenst sú framsetning ekki faglega skoðun og gefur ekki rétta mynd af varanlegri stöðu reksturs sveitarfélagsins.
Ársreikningur 2025 sýnir jákvæða rekstrarniðurstöðu A og B hluta að fjárhæð um 96 milljónir króna. Fyrir liggur þó að þessi niðurstaða byggir að verulegu leyti á sameiningarframlagi að fjárhæð 96,6 milljónir króna. Að frádregnu sameiningarframlaginu hefði rekstrarniðurstaða A og B hluta orðið neikvæð um u.þ.b. hálfa milljón króna, miðað við fyrirliggjandi tölur.
Rekstrarniðurstaða A hluta (aðalsjóðs) var á árinu jákvæð um 3,3 milljónir króna. Að frádregnu sameiningarframlaginu hefði rekstur A hluta því skilað tapi sem nemur um 93 milljónum króna, sem undirstrikar að kjarnastarfsemi sveitarfélagsins stendur ekki undir sér án tímabundins utanaðkomandi stuðnings.
Í þessu samhengi telur Íbúalistinn mikilvægt að horfa til veltufjár frá rekstri, sem er lykilmælikvarði á getu sveitarfélagsins til að standa undir skuldbindingum og afborgunum lána. Þegar sameiningarframlag er dregið frá veltufé frá rekstri blasir við að undirliggjandi rekstur skilar mun veikari sjóðstreymi en heildartölur ársreikningsins gefa til kynna og er ekki nægjanlegt til að standa undir núverandi skuldabyrði án tímabundinna tekna.
Íbúalistinn bendir jafnframt á að sameiningarframlagið muni dragast verulega saman á næstu þremur árum og falla að því loknu alfarið niður.
Verðbólga er mikilvægur áhættuþáttur í rekstri sveitarfélagsins og getur breyst hratt, með verulegum áhrifum á rekstur. Miðað við núverandi stærð verðtryggðra lána og skuldbindinga má áætla að 1% hækkun verðbólgu auki skuldir sveitarfélagsins í kringum 25 milljónir króna. Hækkun verðbólgu leiðir til aukinna afborgana og fjármagnsgjalda og þrengir enn frekar svigrúm sveitarfélagsins til að standa undir skuldbindingum og afborgunum lána.
Íbúalistinn telur sérstaklega alvarlegt að þessi staða sé ekki skýrð með fullnægjandi hætti fyrir íbúum, heldur sé í stað þess lögð áhersla á jákvæða framsetningu sem dregur athyglina frá þeim áskorunum sem sveitarfélagið stendur frammi fyrir á næstu árum. Þá er jafnframt ljóst að lausafjárstaða sveitarfélagsins er þröng, veltufjárhlutfall undir viðmiðum og skuldir og skuldbindingar halda áfram að þrengja að fjárhagslegu svigrúmi.
Íbúalistinn telur því að niðurstaða ársreiknings 2025 eigi fyrst og fremst að vera tilefni til raunsærrar, aðhaldssamrar og gagnsærrar umræðu um framtíðarrekstur sveitarfélagsins, fremur en að vera túlkuð sem staðfesting á styrk eða sjálfbærni. Nauðsynlegt er að leggja fram skýra mynd af rekstri sveitarfélagsins án sameiningarframlags og móta trúverðuga stefnu til að tryggja fjárhagslegt jafnvægi til lengri tíma án þess að reiða sig á tímabundinn stuðning eða einskiptis ráðstafanir.
Það er brýnt að bæjarstjórn taki þessa stöðu föstum tökum og hefji þegar í stað vinnu við að endurskoða rekstur sveitarfélagsins með það að markmiði að standast viðmið Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga án þess að reiða sig á tímabundin óregluleg framlög.

Íbúalistinn vísar í fyrri bókanir og umfjallanir vegna fjármála sveitarfélagsins og telja enn að standa verði betur að gerð fjárhagsáætlunar fyrir sveitarfélagið sem og bæta upplýsingagjöf og eftirfylgni með stöðu rekstrar og fjárfestinga.

Undirrituð gera ekki athugasemd við framsetningu ársreikning 2025. Við munum sitja hjá við afgreiðslu ársreiknings 2025 til að mótmæla táknrænt að það hafi ekki verið tekið á skuldastöðunni hjá sveitarfélaginu meðan stærsta hluta sameiningarframlaga gætti og þannig skilað betra búi í lok kjörtímabils. Við munum óska eftir að setja skýringu á afgreiðslu okkar í ársreikninginn.

Að lokum vilja undirrituð koma fram þökkum til starfsfólks, bæjarfulltrúa og endurskoðenda sveitarfélagsins fyrir þeirra framlag við gerð ársreiknings.
Íbúalistinn
Haukur Garðarsson
Ragnar Már Ragnarsson
Heiðrún Höskuldsdóttir


Bókun bæjarfulltrúa H-lista vegna ársreiknings 2025:
Bæjarfulltrúar H-listans fagna fyrirliggjandi niðurstöðu ársreiknings sem sýnir fram á jákvæða rekstrarniðurstöðu sveitarfélagsins þrátt fyrir krefjandi rekstrarumhverfi síðustu ár og mikla verðbólgu. Niðurstaðan sýnir að við búum við ábyrga fjármálastjórn og erum að ná þeim árangri í rekstri og þeim markmiðum sem við höfum sett okkur til lengri tíma. Áfram þarf hins vegar að sýna útsjónarsemi við að ná fram enn meiri hagræðingu í rekstri og taka mið af langtíma markmiðum í fjárfestingum og fjármögnun þeirra.

Á sama tíma og rekstur sveitarfélagsins hefur styrkst hefur verið ráðist í umfangsmiklar og samfélagslega mikilvægar fjárfestingar í innviðum sveitarfélagsins til að mæta áframhaldandi fjölgun íbúa og auknum þörfum samfélagsins. Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá að sveitarfélaginu hefur tekist að halda skuldsetningu í skefjum á sama tíma og farið hefur verið í mikla uppbyggingu, en þróun langtímaskulda á tímabilinu skýrist að verulegu leyti af verðbólgu og verðbótum á lánum en ekki aukinni nettó lántöku sveitarfélagsins. Á kjörtímabilinu hefur sveitarfélagið þannig greitt meira niður af höfuðstól lána en tekið hefur verið í nýjum langtímalánum, þrátt fyrir umfangsmiklar fjárfestingar í nauðsynlegum innviðum sveitarfélagsins.

Við erum ánægð með þann árangur sem hefur náðst og þær lykiltölur sem hér hefur verið farið yfir. Þessar niðurstöður sýna að við erum vel í stakk búin til að takast á við það að halda áfram að byggja upp og gera rekstrarumhverfi okkar sterkt og sjálfbært.

Árið 2025 var mjög gott og jákvætt ár fyrir samfélagið og kjörtímabilið í heild sinni hefur verið farsælt fyrir sveitarfélagið. Það er ljóst að það hefur margt áunnist á síðustu árum og enn fleiri verkefni og áskoranir framundan sem gaman verður að takast á við.

Bæjarfulltrúar H-listans:
Hrafnhildur Hallvarðsdóttir
Ragnar Ingi Sigurðsson
Þórhildur Eyþórsdóttir
Steinunn Magnúsdóttir

Sigurjón og Helena véku af fundi.

Fundi slitið.

Getum við bætt efni síðunnar?