Fara í efni

Safna- og menningarmálanefnd

100. fundur 12. september 2017 kl. 16:00 - 17:00 í fundarsal á 3. hæð
Nefndarmenn
  • Ragnheiður Valdimarsdóttir formaður
  • Ingibjörg Ágústdóttir aðalmaður
  • Bjarki Hjörleifsson aðalmaður
  • Árni Valgeirsson varamaður
  • Nanna Guðmundsdóttir forstöðumaður amtsbókasafns
  • Filip Polách
Starfsmenn
  • Hjördís Pálsdóttir
Fundargerð ritaði: Ragnheiður Valdimarsdóttir formaður
Dagskrá

1.100. fundur safna- og menningarmálanefndar

Málsnúmer 1709028Vakta málsnúmer

Ragnheiður fór yfir að borgandi gestum á söfnin hefur fækkað og bauð Nönnu Guðmundsdóttur forstöðumann Amtsbókasafns velkomna á sinn fyrsta fund. Filip Polách og Hjördís Pálsdóttir voru einnig boðin velkomin. Þar sem um 100. fund Safna- og menningarmálanefndar var að ræða var boðið upp á kaffi og vöfflur.

2.Norska húsið - BSH og Vatnasafn

Málsnúmer 1709029Vakta málsnúmer

Hjördís fór yfir fjölda gesta í Norska húsinu í sumar og stærri viðburði sem verið hafa á vegum safnsins síðan í vor.

Viðburðir Norska húsið:
15. apríl - 6. júni var fermingarsýning.
10. júni opnuðu sumarsýningar.
19. júni afmælishátíð, Norska húsið var 185 ára.
8. júli Þjóðbúningahátíðin Skotthúfan og námskeið í tengslum við hátíðina var haldið þann 19. júní sama daga og afmælishátíðin.
19. ágúst Danskir dagar, eplaskífur, brjóstsykursgerð og fleira.

Rætt var um hvort gengi á íslensku krónunni, breytt ferðahegðun Íslendinga og hækkun á aðgangseyri hefði haft áhrif á ferðamenn.

Sigurlína Sigurbjörnsdóttir hefur hafið starf í 50% stöðu við varðveisluhús Norska hússins - BSH á Reitarvegi. Hún er að endurbæta skráningar, setja inn ljósmyndir og fl. inn á skráningarkerfi safna sarpur.is.

Vatnasafn:
Rætt um að engin starfsmaður var á safninu í sumar og hefði það áhrif á fjölda gesta.
Gólfið hefði að hluta til verið slípað upp fyrir vorhátíð Artangel í sumar og væri nú erfitt að þrífa.

Minnst var á samningarviðræður í sambandi við endurskoðun á samning Vatnasafns.
Vorhátíð Vatnasafnsins var myndarleg í tilefni tíu ára afmælisins. Fernir tónleikar voru haldnir þar í sumar.
Filip benti á að það þarf að vera peningasöfnunarbaukur í Vatnasafninu.

Eldfjallasafn:
Filip fór yfir aðgangstölur í Eldfjallasafn. Það hefur verið tekin ákvörðun um að lækka aðgangseyri. Heimsóknatölur gætu lagast yfir veturinn þar sem vetrarferðaþjónusta virðist vera að aukast. Rætt var um fyrirhugaðar endurbætur á Eldfjallasafni og að safnið geti ekki verið í húsinu meðan endurbætur fara fram.

Hópar á vegum Haraldar Eldfjallafræðings hafa ekki komið í sumar, þetta voru hópur sem komu 1-2 sinnum í viku um það bil 25 manns í hverri ferð.
Filip er að vinna að að bæta kynningarmynd í Eldfjallasafni og vinna þrívíddarmynd á gólfi safnsins.

Öll söfnin ? næstu skref:
Til stendur að búa til auglýsingar til að setja á valda staði á Snæfellnesi, auglýsingarpóstkort til að dreifa í Stykkishólmi og fl., auglýsingaspjöld fyrir söfnin og auglýsingar á vefmiðlun.

Amtsbókasafn:
Amtsbókasafnið verður opið 18., 19., og 20. september frá kl. 14-18. Nánari opnunartími verður auglýstur síðar.
Önnur mál:
Harmonikkufélag hefur áhuga á að halda mót í Stykkishólmi árið 2018, eiga eftir að senda tölvupóst með nánari upplýsingum.

Fundi slitið - kl. 17:00.

Getum við bætt efni síðunnar?