Fara í efni

Ungmennaráð

8. fundur 28. apríl 2025 kl. 17:00 - 18:15 í fundarsal á 3. hæð
Nefndarmenn
  • Heiðrún Edda Pálsdóttir aðalmaður
  • Hera Guðrún Ragnarsdóttir aðalmaður
  • Vignir Steinn Pálsson aðalmaður
  • Viktoría Sif Þráinsdóttir Norðdahl aðalmaður
  • Katrín Mjöll Magnúsdóttir aðalmaður
  • Bæring Nói Dagsson aðalmaður
  • Bryn Thorlacius aðalmaður
Starfsmenn
  • Jakob Björgvin Jakobsson bæjarstjóri
  • Magnús I. Bæringsson æskulýðs -og tómstundafulltrúi
Fundargerð ritaði: Bryn Thorlacius ritari
Dagskrá

1.Forvarnarstefna Snæfellsness

Málsnúmer 2504028Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að forvarnarstefnu Snæfellsness. Íþrótta- og tómstundafulltrúi gerir grein fyrir vinnunni.
Ungmennaráð fagnar vinnu við forvarnarstefnu Snæfellsnes og lýst vel á drög að stefnu og telur jákvætt að verið sé að vinna að sameiginlegum forvörnum á Snæfellsnesi.

2.Fyrirhugaðar framkvæmdir og staða verkefna

Málsnúmer 2404025Vakta málsnúmer

Íþrótta- og tómstundafulltrúi gerir grein fyrir helstu vekrefnum og framkvæmdum á döfinni hjá sveitarfélaginu.
Ungmennaráð fagnar fyrirhuguðum framkvæmdum.

3.Bæjarstjórn unga fólksins

Málsnúmer 2311010Vakta málsnúmer

Lögð fram skýrsla SSV með niðurstöðum af ungmennaþingi vesturlands sem haldið var í Ölver í haust.



Umræður og undirbúningur fyrir fund bæjarstjórnar unga fólksins sem fram fer 7. maí nk.
Ráðið fór yfir niðurstöðu ungmennaþings vesturlands ásamt umfjöllun frá síðasta bæjarstjórnarfundi unga fólksins sem fram fór fyrir ári síðan. Hugmyndir ræddar að málefnum fyrir fyrirhugaðan fund 7. maí og óskað eftir að hann hefjist kl. 16:30.

Eftirfarandi málefni var ákveðið að taka fyrir á bæjarstjórnarfundinum.

- Matur í FSN, Viktoría Sif og Hera Guðrún taka það fyrir.
- Samgöngur, Viktoría Sif og Hera Guðrún taka það fyrir.
- Heiðrún fjallar um ástand og stöðu grasmála á fótbolta- og sparkvelli.
- Bryn og Katrín Mjöll fjalla um gangstéttir.
- Vignir og Bæring taka fyrir ástand gatnakerfis.

Undirbúningsvinna sett af stað á fundinum og fundarfólki falið að klára sín málefni fyrir fundinn 7. maí og ákveða hver sér um að flytja málið.

Fundi slitið - kl. 18:15.

Getum við bætt efni síðunnar?