Staða félagsráðgjafa laus til umsóknar
Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga óskar eftir að ráða félagsráðgjafa eða einstakling með sambærilega menntun sem nýtist í starfi
Um er að ræða 100% stöðugildi, æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af störfum í barnavernd. Um er að ræða þverfaglega vinnu þvert á Snæfellsnes.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Barnavernd
- Þverfagleg teymisvinna
- Almenn félagsráðgjöf
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfi frá landlækni til að starfa sem félagsráðgjafi
- Frumkvæði, vandvirkni og sjálfstæði í starfi
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
Laun skv. kjarasamningum
Frekari upplýsingar um starfið veitir Ingveldur Eyþórsdóttir forstöðumaður Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga í síma 430-7800 eða ingveldur@fssf.is
Skriflegar umsóknir þar sem fram kemur menntun og fyrri störf ásamt sakavottorði og nöfnum umsagnaraðila berist skrifstofu FSS, Klettsbúð 4, 360 Snæfellsbæ eða á netfangið ingveldur@fssf.is
Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga áskilur sér rétt til að ráða hvern sem er eða hafna öllum umsóknum.
Umsóknareyðublöð má fá á heimasíðunni www.fssf.is
Umsóknarfrestur er til 27. janúar 2026