Sumarafleysing í íþróttamiðstöð
Sveitarfélagið Stykkishólmur óskar eftir að ráða sundlaugarvörð, (karl) til sumarafleysinga í íþróttamiðstöð Stykkishólms. Um er að ræða tímabundna 100% sumarafleysingu. Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri.
Starfssvið:
- Öryggisvarsla við sundlaug og sundlaugarsvæði
- Klefa- og baðvarsla
- Afgreiðsla, önnur þjónusta og þrif.
Hæfniskröfur:
- Góð samskiptahæfni og rík þjónustulund
- Tungumálakunnátta, íslenska og enska
- Hreint sakavottorð
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands ísl. Sveitarfélaga og Kjalar. Fyrirspurnir um nánari upplýsingar sendist á netfang sund@stykkisholmur.is, einnig má hafa samband í síma 8981260 eða 8648862.
Hægt er að sækja um starfið á íbúagátt Stykkishólms.
Umsóknarfrestur er til 14. maí 2025. Öllum umsóknum verður svarað.