Fara í efni

Sumarstörf í Stykkishólmi

23.03.2023
Fréttir Laus störf

Vilt þú vinna úti í sumar með ungu hressu fólki?

Sveitarfélagið Stykkishólmur auglýsir eftir starfsfólki í Þjónustumiðstöð, flokkstjórum og aðstoðar- og stuðningsfólk við sumarnámskeið sumarið 2023.

Flokkstjórar vinnuskóla

Æskilegt er að umsækjendur fyrir flokkstjóra hafi:

  • Ríka þjónustulund
  • Góða skipulagshæfileika, geta unnið sjálfstætt og hafi frumkvæði
  • Góða hæfni í mannlegum samskiptum
  • Stundvísi og jákvæðni
  • Mikla ábyrgðartilfinningu
  • Ánægju af því að vinna með og leiðbeina ungmennum.

Flokkstjórar stjórna daglegu starfi vinnuflokka skólans og stuðla að reglusemi, ástundun og góðri umgengni starfsmanna. Flokkstjórar vinna með unglingunum og sýna þeim hvernig staðið skuli að verki og leiðbeina um notkun á áhöldum og tækjum.

Nánari upplýsingar um vinnuskólann

Vinnutími er frá kl. 8:00-17:00 alla virka daga.

Vinnuskólinn verður auglýstur nánar þegar nær dregur sumri.

Starfsmenn í slátturgengi og græn störf

Starfið felst í slætti og umhirðu grænna svæða ásamt öðrum tilfallandi verkefnum í Þjónustumiðstöð.

Umsækjendur þurfa að búa yfir frumkvæði og hafa áhuga á útiveru og því að læra handbragð við umhirðu grænna svæða.

Starfstímabil er frá síðari hluta maímánaðar til síðari hluta ágústmánaðar. Vinnutími er frá kl. 8:00 til 17:00 virka daga.

Aðstoð og stuðningur við sumarnámskeið

Sveitarfélagið leitar einnig eftir aðstoðarfólki sem styður umsjónaraðila við leikjanámskeið fyrir nemendur í 1.-3. bekk og ævíntýranámskeið fyrir 4.-6. bekk. Einnig er leitað eftir stuðningsaðilum sem vinna með flokkstjórum og sinna stuðning við störf vinnuskólans.

Umsækjendur þurfa að hafa frumkvæði, vera hugmyndarík og skapandi, geta unnið sjálfstætt og hafa góða hæfni í mannlegum samskiptum, auk ánægju af að vinna með börnum.

Starfstímabil sumarnámskeiða er frá 5. júní til 30. júní með möguleika að hefja störf fyrr við undirbúning. Starfstímabil við stuðning í vinnuskóla getur verið 5. júní til 17. júlí með möguleika á lengri tíma.

Um öll störfin

Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Kjalar. leitað er eftir sakavottorði fyrir þau sem vinna störf á vinnustöðum með börnum, í samræmi við heimildir um slíkt í lögum.

Nánari upplýsingar um störf varðandi flokkstjóra vinnuskóla, sláttugengi og græn störf veitir Jón Beck Agnarsson, verkstjóri Þjónustumiðstöðvar í síma 892-1189. Nánari upplýsingar varðandi stuðning og leikjanámskeið veitir Magnús Ingi Bæringsson Tómstunda- og æskulýðsfulltrúi í síma 864-8862.

Upplýsingar um launakjör veitir Ríkharður Hrafnkelsson, mannauðs- og launafulltrúi, í síma 433-8100, en einnig má beina öllum fyrirspurnum á netfangið rikki@stykkisholmur.is. Hægt er að sækja um á íbúagátt Stykkishólms en einnig má skila inn umsóknum á netfangið rikki@stykkisholmur.is.

Getum við bætt efni síðunnar?