48. fundur bæjarstjórnar - Opinn kynningarfundur vegna ársreiknings
48. fundur bæjarstjórnar Stykkishólms fer fram fimmtudaginn 7. maí kl. 17:00 á Amtsbókasafninu í Stykkishólmi. Tvö mál eru á dagskrá fundar en það síðara er Ársreikningur sveitarfélagsins fyrir árið 2025. Venju samkvæmt verður bæjarstjórnarfundi streymt í beinni útsendingu en að lokinni kynningu á ársreikning, umræðum og afgreiðslu hans verður bæjarstjórnarfundi slitið og útsendingu fundar hætt. Þá gefst íbúum kostur á því að spyrja eða leggja til athugasemdir vegna ársreikningsins.
Íbúar eru sérstaklega hvattir til að mæta á fund og hlýða á kynningu vegna ársreiknings. Þá má einnig benda á að bæjarstjórnarfundir eru alltaf opnir og íbúum velkomið að mæta á alla fundi bæjarstjórnar.
Smelltu á hnappinn hér að neðan til að kynna þér dagská fundar.
Smelltu á hnappinn hér að neðan til að horfa á beina útsendingu frá fundinum.