Aðventan byrjar í Stykkishólmi
Aðventan er viðburðaríkur tími í Stykkishólmi og færist sífellt í aukanna að landsmenn sæki Hólminn heim til að upplifa töfrandi jólastemmninguna með heimamönnun.
Framundan er fyrsta helgin í aðventu og verður þá mikið um dýrðir í Hólminum. Hægt er að kynna sér dagskrá helgarinnar hér að neðan, eins og hún birtist á vef félags atvinnulífs í Stykkishólmi (visitstykkisholmur.is) Rétt er þó að taka fram að enn geta einhverjir viðburðir bæst við dagskránna.
FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER
09:00-18:00 Hárstofan: 20% afsláttur af öllum vörum.
12:00-18:00 Kram verslun: Svartir dagar, 20% afsláttur af öllu. * Ekki afsláttur af bókum og garni.
19:15 Íþróttamiðstöðin: Körfuboltaleikur, Snæfell - Breiðablik 1. deild karla.
LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER
09:00-11:00 Nýrækt: Hittið kindurnar í Nýrækt 4 (fjólubláu fjárhúsin).
11:00-13:00 Amtsbókasafnið: Ratleikur fyrir krakkana og hægt að spreyta sig á laufléttu jólaföndri. Jólabókaflóðið er svo í fullum gangi svo það er kjörið að ná sér í gott lesefni fyrir aðventuna.
11:00-14:00 Skipavík verslun: 20% afsláttur af Didrikson fatnaði.
12:00-17:00 Tang og Riis: Ingibjörg H. Ágústsdóttir opnar sýninguna Fuglar, Freyjur og Fiskar.
12:00-18:00 Kram verslun: Svartir dagar, 20% afsláttur af öllu. * Ekki afsláttur af bókum og garni.
13:00-15:00 Norska húsið: Anna Sigríður Gunnarsdóttir opnar sýninguna Talaðu við mig um vonina - leirgerfingar og skilaboðaskálar. Gríma Kristinsdóttir opnar ljósmyndasýningun Kollhnís.
13:00-16:00 Gallerí Braggi: Gallerí Braggi opinn.
13:00-17:00 Sjávarpakkhúsið: Skál fyrir aðventunni á Sjávarpakkhúsinu. Dagdrykkja, heitir drykkir og smákökur. Gjafabréf í jólapakkann.
16:00-21:00 Hótel Egilsen: Heitt súkkulaði & jólaglögg.
16:00-18:00 Fosshótel: Happy hour.
19:00 Fosshótel: Jólahlaðborð bókanir á stykkisholmur@fosshotel.is.
SUNNUDAGUR 29. NÓVEMBER
14:00-16:00 Fosshótel: Jólabasar Kvenfélagsins.